Regulation No. 470/2012 on fishing for halibut
颁布于 2012-05-30 · 文本截至 2026-10-01
以研究形式发布的公开法律与官方指引,不构成法律、税务或金融建议。
研究内容本身以英文撰写。标题和标签已翻译,调查结果和引文未翻译。
关于这部法律
- 原标题
- Reglugerð um veiðar á lúðu.
- 语言
- Icelandic
- 类型
- 条例
- 组织
- European Union
- 国家
- 冰岛
- 主题
- Fisheries and aquaculture
- 关键词
- marine fisheries, fishing authorization, bycatch, protection of species, fishery management and conservation, data collection/reporting, authorization/permit, biodiversity
在哪里阅读
该法律没有记录来源链接。
文本
所收录的法律原文,按条款排列。每个条款都有自己的链接。
Nr. 470 30. maí 2012 REGLUGERÐ um veiðar á lúðu. 1. gr. Allar beinar veiðar á lúðu (hvítlúðu) í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar, þ.m.t. veiðar með sérútbúnum krókum (haukalóðum). Leyfi til lúðuveiða skulu gefin út, fyrir hvert fiskveiðiár, þegar talið er, samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar, að lúðustofninn þoli veiðar. 2. gr. Komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli skal umsvifalaust sleppa lífvænlegri lúðu. Við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar. Við handfæra- og sjóstangaveiðar skal losa lúðuna varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð. 3. gr. Til að koma í veg fyrir að stórlúða fari í móttöku skips, er skylt við botnvörpuveiðar þar sem móttaka er lægra en aðalþilfar skipsins, að hafa rist þar sem fiski er hleypt í móttöku. Fiskistofu er heimilt að veita undanþágu frá notkun ristar, t.d. vegna smæðar báts. Þá er skipum sem stunda humarveiðar heimil undanþága frá notkun ristar. Rimlabil ristarinnar skal að hámarki vera 40 sm. Gildir þetta á svæði sem afmarkast af línu sem dregin er austur úr Dalatanga, réttsælis og allt að línu sem dregin er réttvísandi norðvestur úr Horni. 4. gr. Lúðuafli skal seldur á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafurðir. Lúðuafli sætir álagn ingu gjalds samkvæmt ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, með síðari breytingum. Það skal nema andvirði gjaldskylds afla. Uppgjör vegna lúðuafla skal skiptast á fjögur þriggja mánaða tímabil á fiskveiðiárinu. 5. gr. Skipstjóra er skylt að halda afladagbók, sbr. reglugerð nr. 557/2007, um afladagbækur, með síðari breytingum. Skrá skal í afladagbók upplýsingar s.s. um veiðarfæri, veiðistað og veiðidag, um þá lúðu sem sleppt er í hverju kasti/lögn/togi. 6. gr. Með mál sem kunna að rísa út af brotum á ákvæðum reglugerðar þessarar skal farið að hætti sakamála. Brot varða viðurlögum samkvæmt 17. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiði landhelgi Íslands, með síðar breytingum. 7. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr., 2. mgr. 7. gr. og 14. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, og 14. gr. laga nr. 37/1992 um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, og öðlast þegar gildi. Reglugerðina skal taka til endurskoðunar þegar skilyrði eru til útgáfu leyfa til lúðuveiða, sbr. 2. mgr. 1. gr. Nr. 470 30. maí 2012 Við gildistöku þessarar reglugerðar falla úr gildi reglugerð nr. 477/2011 um bann við notkun haukalóða við lúðuveiðar og reglugerð nr. 1164/2011 um bann við veiðum á lúðu, með síðari breytingu. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 30. maí 2012. F. h. r. Sigurgeir Þorgeirsson. Arnór Snæbjörnsson. B-deild – Útgáfud.: 1. júní 2012