Regulation no. 333 on the use of the Keyhole label in food marketing
颁布于 2021-03-11 · 文本截至 2026-10-01
以研究形式发布的公开法律与官方指引,不构成法律、税务或金融建议。
研究内容本身以英文撰写。标题和标签已翻译,调查结果和引文未翻译。
关于这部法律
- 原标题
- Reglugerð um notkun Skráargatsins við markaðssetningu matvæla.
- 语言
- Icelandic
- 类型
- 条例
- 国家
- 冰岛
- 主题
- Food and nutrition
- 关键词
- consumer protection, packaging/labelling, vending, sugar, oils/oilseeds/fats, fish products, meat, milk/dairy products, fruits/edible nuts, vegetables/legumes, food additives, processing/handling, classification/declassification, nutrition, public health, food safety and quality, agricultural commodities, internal trade
- 类别
- agriculture, softs
在哪里阅读
文本
所收录的法律原文,按条款排列。每个条款都有自己的链接。
Nr. 333 11. mars 2021 REGLUGERÐ um notkun Skráargatsins við markaðssetningu matvæla. 1. gr. Gildissvið. Reglugerðin gildir um valfrjálsa merkingu og markaðssetningu með Skráargatinu. Skráargatið er tengt við innihald fitu, sykurtegunda, trefja og salts í matvælum í þeim matvælaflokkum sem eru í viðauka II. 2. gr. Skilgreiningar. Í þessari reglugerð merkir: Fita eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda. Fita og fitublöndur til matargerðar eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013 frá 17. desember 2013 um sameiginlegt markaðskerfi fyrir landbúnaðarafurðir skv. 78. gr. í VII. viðauka um smyrjanlega fitu og samsvarandi vörur. Forpökkuð matvæli eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda. Glútenlaust eins og skilgreint er í framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 828/2014 frá 30. júlí 2014 um kröfur um miðlun upplýsinga til neytenda um að matvæli séu glúten laus eða glútenskert. Heilkorn er í reglugerð þessari allur frækjarni korns eða korntegunda (fræhvíta, kím og klíð). Frækjarninn má vera brotinn, malaður eða álíka en hlutarnir verða að vera í sömu hlutföllum og heili frækjarninn að því er varðar viðkomandi korntegundir. Heilkornaskilgreiningin nær yfir kornteg undirnar hveiti, spelt, rúg, hafra, bygg, maís, hrísgrjón, hirsi, dúrru og aðrar Sorghum-tegundir. Kjöt eins og skilgreint er í f-lið 1. mgr. 2. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda. Lagarafurðir, tilreiddar lagarafurðir og lifandi samlokur eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 853/2004 frá 29. apríl 2004 um sérstakar reglur um hollustuhætti sem varða matvæli úr dýraríkinu. Mettaðar fitusýrur eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda. Nýfæði eða ný innihaldsefni matvæla með sætueiginleika eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 frá 25. nóvember 2015 um nýfæði. Plöntusteról, plöntusterólesterar, plöntustanól eða plöntustanólesterar eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýs inga um matvæli til neytenda. Salt eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda. Sykurtegundir eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda. Transfitusýrur eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda. Trefjar eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 frá 25. október 2011 um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda. Viðbætt bragð er í reglugerð þessari viðbætt krydd ásamt bragðefnum eða innihaldsefnum mat væla með bragðgefandi eiginleika eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 frá 16. desember 2008 um bragðefni og tiltekin innihaldsefni matvæla, sem hafa bragð gefandi eiginleika, til notkunar í og á matvæli. Nr. 333 11. mars 2021 Viðbættar sykurtegundir eru í reglugerð þessari allar ein- og tvísykrur sem er bætt í við fram leiðslu matvæla. Sykurtegundir sem finnast náttúrulega í hunangi, sírópi, ávaxtasafa, ávaxtasaft og ávaxtaþykkni eru einnig meðtaldar. Vinnsla og óunnar afurðir eins og skilgreint er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 852/2004 frá 29. apríl 2004 um hollustuhætti sem varða matvæli. 3. gr. Útlit Skráargatsins. Grafísk hönnun Skráargatsins kemur fram í viðauka I. Skráargatið skal prenta með grænum eða svörtum lit. 4. gr. Matvæli sem heimilt er að merkja með Skráargatinu. Skráargatið má nota við merkingu og kynningu á matvælum ef matvælin uppfylla öll skilyrði matvælaflokka skv. viðauka II. Skráargatið má nota á: 1. Forpökkuð matvæli sem falla undir viðauka II. 2. Matvæli sem eru ekki forpökkuð og tilheyra eftirtöldum matvælaflokkum: a. Grænmeti o.fl. sem er óunnið (matvælaflokkur 1). b. Ávextir og ber (matvælaflokkur 2). c. Brauð (matvælaflokkar 8a og b). d. Hrökkbrauð (matvælaflokkur 9). e. Ostar, aðrir en ferskir ostar (matvælaflokkur 16). f. Jurtavalkostir við osta (matvælaflokkur 17). g. Lagarafurðir og lifandi samlokur (matvælaflokkur 21). h. Kjöt (matvælaflokkur 23). Skráargatið má ekki nota á: 1. Matvæli sem eftirfarandi innihaldsefnum hefur verið bætt í: a. Sætuefni (aukefni). b. Samþykkt nýfæði og ný innihaldsefni með sætueiginleika. c. Plöntusteróla, plöntusterólestera, plöntustanóla eða plöntustanólestera. 2. Matvæli sem eru sérstaklega ætluð börnum undir þriggja ára aldri. 5. gr. Almenn skilyrði. Matvæli sem merkt eru með Skráargatinu mega ekki innihalda meira en 2 grömm af iðnaðar framleiddum transfitusýrum í hverjum 100 grömmum af heildarfitumagni. Eingöngu má bæta fitu, sykurtegundum eða salti í þá matvælaflokka sem hafa skilyrði um fitu, sykurtegundir eða salt í viðauka II. Engu að síður má bæta þessum næringarefnum í aðra matvæla flokka, þó eingöngu að því lágmarksmagni sem nauðsynlegt er til að ná æskilegum áhrifum. 6. gr. Notkun Skráargatsins á matvælum sem ekki eru forpökkuð. Þegar Skráargatið er notað við markaðssetningu matvæla sem ekki eru forpökkuð skulu upplýs ingar varðandi grundvöll fyrir notkun Skráargatsins vera aðgengilegar sé þess óskað. Ákvæði 1. mgr. gilda ekki um: 1. Grænmeti o.fl. sem er óunnið (matvælaflokkur 1). 2. Aldin og ber (matvælaflokkur 2). 3. Lagarafurðir (matvælaflokkur 21). Nr. 333 11. mars 2021 7. gr. Ábyrgð matvælafyrirtækja. Matvælafyrirtæki sem nota Skráargatið, skulu tryggja að notkun þess sé í samræmi við reglugerð þessa. Öll notkun Skráargatsins við markaðssetningu verður að vera skýr og má hún ekki vera villandi eða blekkjandi fyrir neytendur. 8. gr. Eftirlit og gjaldtaka. Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. gr. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Ef eftirlitsaðili óskar eftir, skal stjórnandi matvælafyrirtækis leggja fram niðurstöður úr faggilt um prófunum sem staðfesta að notkun merkisins sé í samræmi við viðkomandi skilyrði í viðauka II. Matvælafyrirtæki skal greiða fyrir eftirlit samkvæmt reglugerð þessari í samræmi við 25. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. Það sama á við um prófun opinberra eftirlitssýna. 9. gr. Þvingunarúrræði og viðurlög. Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr. 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. 10. gr. Lagastoð, gildistaka o.fl. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 18. gr. b og 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Við gildistöku reglugerðarinnar fellur úr gildi reglugerð nr. 428/2015 um notkun Skráargatsins við markaðssetningu matvæla. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Ákvæði til bráðabirgða. Þrátt fyrir gildistöku reglugerðar þessarar er framleiðsla og merking matvæla í samræmi við ákvæði eldri reglugerðar nr. 428/2015 um notkun Skráargatsins við markaðssetningu matvæla heimil til 1. september 2022. Leyfilegt er að dreifa matvælum framleiddum og merktum í samræmi við reglugerð nr. 428/2015 þar til birgðir eru uppurnar. Þá er heimilt að merkja og markaðssetja matvæli sem framleidd eru í samræmi við reglugerð þessa, með Skráargatinu ásamt tákninu ® í samræmi við 3. gr. og I. viðauka við reglugerð nr. 428/2015 um notkun Skráargatsins við markaðssetningu matvæla til 1. september 2024. Heimilt er að markaðssetja matvæli, sem merkt eru Skráargatinu ásamt tákninu (®) fyrir 1. september 2024, þar til birgðir eru uppurnar. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. mars 2021. Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Iðunn Guðjónsdóttir. Nr. 333 11. mars 2021 VIÐAUKI I Grafísk hönnun Skráargatsins. VIÐAUKI II Matvæli sem má markaðssetja með Skráargatinu. Skilyrði fyrir hvern matvælaflokk: Matvælaflokkar (með skilyrðum) Skilyrði Grænmeti, ávextir, ber og hnetur 1. Grænmeti, belgjurtir (jarðhnetur ekki meðtaldar), kartöflur og aðrir rótarávextir. Vörurnar mega vera unnar. Óunnar kryddjurtir eru einnig meðtaldar. viðbætt fita, að hámarki 3 g/100 g viðbætt fita má innihalda að hámarki 20% af mettuðum fitusýrum viðbættar sykurtegundir, að hámarki 1 g/100 g salt, að hámarki 0,5 g/100 g 2. Ávextir og ber sem eru óunnin. Vörurnar geta þó verið hitameðhöndlaðar. 3. Óunnar hnetur og jarðhnetur. Vörurnar geta þó verið hitameðhöndlaðar. mettaðar fitusýrur, að hámarki 10 g/100 g Mjöl, korn og hrísgrjón 4. Korn, mjöl, flögur og brotnir frækjarnar korntegunda sem innihalda 100% heilkorn, reiknað út frá þurrefnisinnihaldi kornhlutans. Klíði og kím eru undanskilin kröfunni um heilkorn. Kornhlutanum má skipta út í heild eða að hluta til fyrir grænmeti (kartöflur ekki meðtaldar), belgjurtir (jarðhnetur ekki meðtaldar) eða rótarávexti með sama notkunargildi. trefjar, a.m.k. 6 g/100 g Nr. 333 11. mars 2021 Matvælaflokkar (með skilyrðum) Skilyrði 5. Hrísgrjón sem innihalda 100% heilkorn, reiknað út frá þurrefnisinnihaldi vörunnar. trefjar, a.m.k. 3 g/100 g 6. Morgunkorn og múslí sem innihalda a.m.k. 55% af heilkorni, reiknað út frá þurrefnisinnihaldi vörunnar. Ef varan inniheldur grænmeti (kartöflur ekki meðtaldar), belgjurtir (jarðhnetur ekki meðtaldar) eða rótarávexti er sá hluti vörunnar, sem samanstendur af þessu, ekki tekinn með við útreikning á magni heilkorns. Glútenlaust morgunkorn og múslí, skulu innihalda a.m.k. 20% af heilkorni, reiknað út frá þurrefnisinnihaldi vörunnar. fita, að hámarki 8 g/100 g sykurtegundir, að hámarki 13 g/100 g þar af viðbættar sykurtegundir, að hámarki 9 g/100 g trefjar, a.m.k. 6 g/100 g salt, að hámarki 1 g/100 g Grautar, brauð og pasta 7. Grautar og grautarduft (tilreitt samkvæmt leiðbeiningum framleiðandans) sem innihalda a.m.k. 55% af heilkorni, reiknað út frá þurrefnisinnihaldi vörunnar. Ef varan inniheldur grænmeti (kartöflur ekki meðtaldar), belgjurtir (jarðhnetur ekki meðtaldar) eða rótarávexti er sá hluti vör unnar, sem samanstendur af þessu, ekki tek inn með við útreikning á magni heilkorns. fita, að hámarki 4 g/100 g sykurtegundir, að hámarki 5 g/100 g trefjar, a.m.k. 1 g/100 g salt, að hámarki 0,3 g/100 g Skilyrðin gilda um vöruna tilbúna til neyslu 8. a) Brauð og brauðblöndur þar sem aðeins skal bæta við vökva og e.t.v. geri og sem innihalda a.m.k. 30% af heilkorni, reiknað út frá þurrefnisinnihaldi vörunnar. Ef varan inniheldur grænmeti (kartöflur ekki meðtaldar), belgjurtir (jarðhnetur ekki meðtaldar) eða rótarávexti er sá hluti vörunnar, sem samanstendur af þessu, ekki tekinn með við útreikning á magni heilkorns. Vörur sem eru í flokki 8b) eru ekki meðtaldar. Glútenlaus brauð og brauðblöndur, skulu innihalda a.m.k. 10% af heilkorni, reiknað út frá þurrefnisinnihaldi vörunnar. fita, að hámarki 7 g/100 g sykurtegundir, að hámarki 5 g/100 g trefjar, a.m.k. 5 g/100 g salt, að hámarki 1,0 g/100 g Skilyrðin gilda um vöruna tilbúna til neyslu b) Rúgbrauð og aðrar vörur, að stofni til úr rúgi, ásamt brauðblöndum þar sem aðeins skal bæta við vökva og e.t.v. geri. Varan skal innihalda a.m.k. 35% af heilkorni, reiknað út frá þurrefnis innihaldi vörunnar. Í vörunum skal a.m.k. 30% af korntegundunum vera rúgur. fita, að hámarki 7 g/100 g sykurtegundir, að hámarki 5 g/100 g trefjar, a.m.k. 6 g/100 g salt, að hámarki 1,2 g/100 g Skilyrðin gilda um vöruna tilbúna til neyslu Nr. 333 11. mars 2021 Matvælaflokkar (með skilyrðum) Skilyrði Ef varan inniheldur grænmeti (kartöflur ekki meðtaldar), belgjurtir (jarðhnetur ekki meðtaldar) eða rótarávexti er sá hluti vörunnar, sem samanstendur af þessu, ekki tekinn með við útreikning á magni heilkorns. 9. Hrökkbrauð og bruður ásamt tilbúnum blöndum fyrir slíkar vörur, þar sem aðeins skal bæta við vökva og e.t.v. geri. Varan skal innihalda a.m.k. 50% af heilkorni, reiknað út frá þurrefnisinnihaldi vörunnar. Ef varan inniheldur grænmeti (kartöflur ekki meðtaldar), belgjurtir (jarðhnetur ekki meðtaldar) eða rótarávexti er sá hluti vörunnar, sem samanstendur af þessu, ekki tekinn með við útreikning á magni heilkorns. Samsvarandi glútenlausar vörur skulu innihalda a.m.k. 15% af heilkorni, reiknað út frá þurrefnisinnihaldi vörunnar. fita, að hámarki 7 g/100 g sykurtegundir, að hámarki 5 g/100 g trefjar, a.m.k. 6 g/100 g salt, að hámarki 1,3 g/100 g Skilyrðin gilda um vöruna tilbúna til neyslu 10. Pasta (ófyllt). Varan skal innihalda a.m.k. 50% af heilkorni, reiknað út frá þurrefnisinnihaldi vörunnar. Ef varan inniheldur grænmeti (kartöflur ekki meðtaldar), belgjurtir (jarðhnetur ekki meðtaldar) eða rótarávexti er sá hluti vörunnar, sem samanstendur af þessu, ekki tekinn með við útreikning á magni heilkorns. Fyrir glútenlaust pasta (ófyllt) er ekki gerð krafa um að varan innihaldi heilkorn. trefjar, a.m.k. 6 g/100 g salt, að hámarki 0,1 g/100 g Skilyrðin gilda miðað við þurrefnisinnihald vörunnar Mjólk, sýrðar mjólkurvörur og valkostir úr jurtaríkinu 11. a) Mjólk og sýrðar mjólkurvörur, sem eru ætlaðar til drykkjar, án viðbætts bragðs. Samsvarandi laktósafríar vörur og laktósafríir mjólkurdrykkir eru einnig meðtalin. fita, að hámarki 0,7 g/100 g b) Vörur úr jurtaríkinu sem notaðar eru á sama hátt og vörur í matvælaflokki 11a), án viðbætts bragðs. fita, að hámarki 1,5 g/100 g mettaðar fitusýrur, að hámarki 33% af heildarfituinnihaldi vörunnar sykurtegundir, að hámarki 5 g/100 g salt, að hámarki 0,1 g/100 g 12. a) Sýrðar mjólkurvörur, sem ekki eru ætlaðar til drykkjar, án viðbætts bragðs. Samsvarandi laktósafríar vörur eru einnig meðtaldar. fita, að hámarki 1,5 g/100 g b) Vörur úr jurtaríkinu sem notaðar eru á sama hátt og vörur í matvælaflokki 12a), án viðbætts bragðs. fita, að hámarki 1,5 g/100 g mettaðar fitusýrur, að hámarki 33% af heildarfituinnihaldi vörunnar Nr. 333 11. mars 2021 Matvælaflokkar (með skilyrðum) Skilyrði sykurtegundir, að hámarki 5 g/100 g salt, að hámarki 0,1 g/100 g 13. a) Sýrðar mjólkurvörur, sem ekki eru ætlaðar til drykkjar, með viðbættu bragði. Samsvarandi laktósafríar vörur eru einnig meðtaldar. fita, að hámarki 1,5 g/100 g viðbættar sykurtegundir, að hámarki 4 g/100 g b) Vörur úr jurtaríkinu, sem notaðar eru á sama hátt og vörur í matvælaflokki 13a), með viðbættu bragði. fita, að hámarki 1,5 g/100 g mettaðar fitusýrur, að hámarki 33% af heildarfituinnihaldi vörunnar sykurtegundir, að hámarki 8 g/100 g salt, að hámarki 0,1 g/100 g 14. a) Vörur sem eru samsettar úr blöndu af mjólk og rjóma, sem notaðar eru á sama hátt og rjómi og samsvarandi sýrðar vörur, án viðbætts bragðs. Samsvarandi laktósafríar vörur eru einnig meðtaldar. fita, að hámarki 5 g/100 g b) Vörur úr jurtaríkinu að hluta eða öllu leyti, sem notaðar eru á sama hátt og vörur í matvælaflokki 14a), án viðbætts bragðs. fita, að hámarki 5 g/100 g mettaðar fitusýrur, að hámarki 33% af heildarfituinnihaldi vörunnar sykurtegundir, að hámarki 5 g/100 g salt, að hámarki 0,3 g/100 g 15. a) Vörur sem eru samsettar úr blöndu af mjólk og rjóma, sem notaðar eru á sama hátt og rjómi og samsvarandi sýrðar vörur, með viðbættu bragði. Samsvarandi laktósafríar vörur eru einnig meðtaldar. fita, að hámarki 5 g/100 g sykurtegundir, að hámarki 5 g/100 g salt, að hámarki 0,8 g/100 g b) Vörur úr jurtaríkinu að hluta eða öllu leyti, sem notaðar eru á sama hátt og vörur í matvælaflokki 15a), með viðbættu bragði. fita, að hámarki 5 g/100 g mettaðar fitusýrur, að hámarki 33% af heildarfituinnihaldi vörunnar sykurtegundir, að hámarki 5 g/100 g salt, að hámarki 0,8 g/100 g Ostar og valkostir úr jurtaríkinu 16. Ostar, aðrir en ferskostar (matvælaflokkur 18). Vörurnar geta verið með viðbættu bragði. fita, að hámarki 17 g/100 g salt, að hámarki 1,6 g/100 g 17. Vörur úr jurtaríkinu að hluta eða öllu leyti, sem notaðar eru á sama hátt og vörur í matvælaflokki 16. Vörurnar geta verið með viðbættu bragði. fita, að hámarki 17 g/100 g mettaðar fitusýrur, að hámarki 20% af heildarfituinnihaldi vörunnar salt, að hámarki 1,5 g/100 g 18. Ferskostar og svipaðar vörur. Vörurnar geta verið með viðbættu bragði. fita, að hámarki 5 g/100 g viðbættar sykurtegundir, að hámarki 1 g/100 g salt, að hámarki 0,9 g/100 g Nr. 333 11. mars 2021 Matvælaflokkar (með skilyrðum) Skilyrði Fita, fitublöndur og olíur 19. Fita og fitublöndur til matargerðar. Vörurnar geta verið með viðbættu bragði. fita, að hámarki 80 g/100 g mettaðar fitusýrur, að hámarki 33% af heildarfituinnihaldi vörunnar salt, að hámarki 1,1 g/100 g 20. Matarolíur, fljótandi fita og fljótandi fitublöndur til matargerðar. Vörurnar geta verið með viðbættu bragði. mettaðar fitusýrur, að hámarki 20% af heildarfituinnihaldi vörunnar salt, að hámarki 1,0 g/100 g Lagarafurðir og vörur úr lagarafurðum 21. Lagarafurðir og lifandi samlokur. Vörurnar geta verið tilreiddar. 22. Vörur sem eru framleiddar úr a.m.k. 50% af unnum lagarafurðum. Vörurnar mega innihalda sósu eða lög. Hundraðshlutinn og skilyrðin gilda um þann hluta vörunnar sem er ætlaður til neyslu. Varan má vera brauðhúðuð ef tilreiðsla samkvæmt leiðbeiningum framleiðandans hefur ekki í för með sér að fitu sé bætt við vöruna. 22. a) Vörur úr lagarafurðum sem falla ekki undir matvælaflokka 22 b-d. fita önnur en fiskfita, að hámarki 10 g/100 g sykurtegundir, að hámarki 5 g/100 g salt, að hámarki 1,5 g/100 g 22. b) Áleggsvörur, sneiddar. - fita önnur en fiskfita, að hámarki 10 g/100 g sykurtegundir, að hámarki 5 g/100 g salt, að hámarki 2,5 g/100 g 22. c) Reyktur eða grafinn fiskur. - fita önnur en fiskfita, að hámarki 10 g/100 g sykurtegundir, að hámarki 5 g/100 g salt, að hámarki 3,0 g/100 g 22. d) Kavíar og annað fisklagmeti. - fita önnur en fiskfita, að hámarki 10 g/100 g sykurtegundir, að hámarki 5 g/100 g salt, að hámarki 3 g/100 g Kjöt og vörur sem innihalda kjöt 23. Kjöt sem er óunnið. - fita, að hámarki 10 g/100 g 24. Kjöt og vörur sem innihalda kjöt. Að minnsta kosti 50% af vörunni skal vera framleitt úr kjöti, korntegundum (100% heilkorn), grænmeti (kartöflur ekki meðtaldar), belgjurtum (jarðhnetur ekki meðtaldar) eða rótar ávöxtum. Kjötinnihaldið má þó ekki vera minna en 20% af vörunni. Þessi krafa gildir þó ekki um lifrarkæfu þar sem varan skal vera framleidd úr a.m.k. 35% af kjöti. Varan má innihalda sósu eða lög. Hundraðshlutinn og skilyrðin gilda um þann hluta vörunnar sem er ætlaður til neyslu. Varan getur verið brauðhúðuð ef tilreiðsla samkvæmt leiðbeiningum framleiðandans hefur ekki í för með sér að fitu sé bætt við vöruna. 24. a) Hráar vörur úr heilum eða niðurskornum kjötstykkjum sem eru lögð í kryddlög eða krydduð. fita, að hámarki 10 g/100 g sykurtegundir, að hámarki 3 g/100 g salt, að hámarki 1,0 g/100 g Fyrir sprautusaltaðar vörur. - fita, að hámarki 10 g/100 g sykurtegundir, að hámarki 3 g/100 g salt, að hámarki 0,5 g/100 g Nr. 333 11. mars 2021 Matvælaflokkar (með skilyrðum) Skilyrði 24. b) Hráar vörur eða vörur tilbúnar til neyslu sem innihalda hakkað kjöt. fita, að hámarki 10 g/100 g viðbættar sykurtegundir, að hámarki 3 g/100 g salt, að hámarki 1,7 g/100 g Fyrir pylsur. - fita, að hámarki 10 g/100 g viðbættar sykurtegundir, að hámarki 3 g/100 g - salt, að hámarki 2,0 g/100 g Fyrir áleggspylsur. - fita, að hámarki 10 g/100 g viðbættar sykurtegundir, að hámarki 3 g/100 g salt, að hámarki 2,2 g/100 g Fyrir hakkað kjöt sem einungis vatni og salti er bætt í. fita, að hámarki 10 g/100 g sykurtegundir, að hámarki 3 g/100 g salt, að hámarki 1,0 g/100 g 24. c) Vörur, tilbúnar til neyslu eða reyktar, sem innihalda heil kjötstykki eða niðurskorið kjöt og sem falla ekki undir matvælaflokk 24b). fita, að hámarki 10 g/100 g viðbættar sykurtegundir, að hámarki 3 g/100 g salt, að hámarki 2,0 g/100 g Fyrir áleggsvörur - fita, að hámarki 10 g/100 g viðbættar sykurtegundir, að hámarki 3 g/100 g salt, að hámarki 2,5 g/100 g Vörur að hluta eða öllu leyti úr jurtaríkinu 25. Vörur að hluta eða öllu leyti úr jurtaríkinu, sem notaðar eru á sama hátt og lagar- og kjötafurðir í matvælaflokkum 22 og 24. Varan skal samanstanda af a.m.k. 50% af korntegundum (100% heilkorn), grænmeti (kartöflur ekki meðtaldar), belgjurtum (jarðhnetur ekki meðtaldar), rótarávöxtum eða próteini (ekki dýraprótein). Varan má ekki innihalda kjöt eða lagarafurðir. Varan getur innihaldið sósu eða lög. Hundraðshlutinn og skilyrðin gilda um þann hluta vörunnar sem er ætlaður til neyslu. Varan má vera brauðhúðuð ef tilreiðsla samkvæmt leiðbeiningum framleiðandans hefur ekki í för með sér að fitu sé bætt við vöruna. 25. a) Fyrir sneiddar áleggsvörur. - fita, að hámarki 10 g/100 g mettaðar fitusýrur, að hámarki 3,5 g/100 g viðbættar sykurtegundir, að hámarki 3 g/100 g salt, að hámarki 1,5 g/100 g 25. b) Fyrir aðrar vörur í matvælaflokki 25. - fita, að hámarki 10 g/100 g mettaðar fitusýrur, að hámarki 3,5 g/100 g viðbættar sykurtegundir, að hámarki 3 g/100 g salt, að hámarki 1,0 g/100 g Nr. 333 11. mars 2021 Matvælaflokkar (með skilyrðum) Skilyrði Tilbúnir réttir 26. Tilbúnir réttir með grænmeti, próteinhluta og kolvetnahluta. Tilbúnir réttir með: 1) a.m.k. 28 g af grænmeti (kartöflur ekki meðtaldar), belgjurtum (jarðhnetur ekki meðtaldar), rótarávöxtum eða ávöxtum og berjum í hverjum 100 g af vöru, 2) próteinhluta og 3) kolvetnahluta, og sem falla ekki undir matvælaflokka 27, 28, 29 eða 30. Ef kolvetnahluti réttarins inniheldur korn tegundir skal hann uppfylla kröfuna varð andi heilkorn sem er tilgreind í þeim mat vælaflokki sem á við fyrir kolvetnahlutann. Ef glútenlaust pasta er notað í réttinn skal það vera í samræmi við kröfuna varðandi trefjar í matvælaflokki 10. mettaðar fitusýrur, að hámarki 1,8 g/100 g. viðbættar sykurtegundir, að hámarki 3 g/100 g salt, að hámarki 0,8 g/100 g 27. Tilbúnir réttir með grænmeti og e.t.v. með próteinhluta eða kolvetnahluta: 1) a.m.k. 50 g af grænmeti (kartöflur ekki meðtaldar), belgjurtum (jarðhnetur ekki meðtaldar), rótarávöxtum eða ávöxtum og berjum í hverjum 100 g af vöru ásamt e.t.v. 2a) próteinhluta eða 2b) kolvetnahluta. Ef kolvetnahluti réttarins inniheldur korn tegundir skal hann uppfylla kröfuna varð andi heilkorn sem er tilgreind í þeim mat vælaflokki sem á við fyrir kolvetnahlutann. Ef glútenlaust pasta er notað í réttinn skal það vera í samræmi við kröfuna varðandi trefjar í matvælaflokki 10. mettuð fita, að hámarki 1,5 g/100 g viðbættar sykurtegundir, að hámarki 3 g/100 g salt, að hámarki 0,8 g/100 g 28. Hálfmánar (piroger), pítsur, vorrúllur og bökur, aðrar en eftirréttir og svipaðar vörur. Varan skal innihalda a.m.k. 28 g af grænmeti (kartöflur ekki meðtaldar), belg jurtum (jarðhnetur ekki meðtaldar), rótarávöxtum eða ávöxtum og berjum í hverjum 100 g. Ef varan inniheldur kornhluta skal hann innihalda a.m.k. 30% af heilkorni, reiknað út frá þurrefnisinnihaldi kornhlutans. Ef varan inniheldur a.m.k. 50 g af grænmeti (kartöflur ekki meðtaldar), belgjurtum (jarðhnetur ekki meðtaldar), rótarávöxtum eða ávöxtum og berjum í hverjum 100 g skal kornhluti vörunnar, sé hann til staðar, mettaðar fitusýrur, að hámarki 2,0 g/100 g viðbættar sykurtegundir, að hámarki 3 g/100 g salt, að hámarki 1,0 g/100 g Nr. 333 11. mars 2021 Matvælaflokkar (með skilyrðum) Skilyrði innihalda a.m.k. 15% af heilkorni, reiknað út frá þurrefnisinnihaldi kornhlutans. Ef kornhlutinn er glútenlaus er þó gerð krafa um að heilkorn séu 10%, reiknað út frá þurrefnisinnihaldi kornhlutans. 29. Smurbrauð, samlokur, vefjur og svipaðar vörur. Varan skal innihalda a.m.k. 25 g af græn meti (kartöflur ekki meðtaldar), belgjurtum (jarðhnetur ekki meðtaldar), rótarávöxtum eða ávöxtum og berjum í hverjum 100 g. Ef varan inniheldur kornhluta skal hann innihalda a.m.k. 30% af heilkorni, reiknað út frá þurrefnisinnihaldi kornhlutans. Ef varan inniheldur a.m.k. 50 g af grænmeti (kartöflur ekki meðtaldar), belgjurtum (jarðhnetur ekki meðtaldar), rótarávöxtum eða ávöxtum og berjum í hverjum 100 g skal kornhluti vörunnar, sé hann til staðar, innihalda a.m.k. 15% af heilkorni, reiknað út frá þurrefnisinnihaldi kornhlutans. Ef kornhlutinn er glútenlaus er þó gerð krafa um að heilkorn séu 10%, reiknað út frá þurrefnisinnihaldi kornhlutans. mettaðar fitusýrur, að hámarki 2,0 g/100 g. viðbættar sykurtegundir, að hámarki 3 g/100 g salt, að hámarki 0,9 g/100 g 30. Súpur. Varan skal innihalda a.m.k. 35 g af græn meti (kartöflur ekki meðtaldar), belgjurtum (jarðhnetur ekki meðtaldar), rótarávöxtum eða ávöxtum og berjum í hverjum 100 g. Ef varan inniheldur kornhluta skal hann uppfylla kröfuna varðandi heilkorn í þeim matvælaflokki sem á við fyrir kornhlutann. Ef glútenlaust pasta er notað í réttinn skal það vera í samræmi við kröfuna varðandi trefjar í matvælaflokki 10. mettaðar fitusýrur, að hámarki 1,5 g/100 g viðbættar sykurtegundir, að hámarki 3 g/100 g salt, að hámarki 0,8 g/100 g Skilyrðin eiga við um vöruna tilbúna til neyslu Salatsósur og sósur 31. Salatsósur úr olíu og ediki. Vörurnar geta verið með viðbættu bragði. mettaðar fitusýrur, að hámarki 20% af fituinnihaldinu sykurtegundir, að hámarki 5 g/100 g salt, að hámarki 0,8 g/100 g 32. Sósur með máltíðum (tilbúnar vörur og vörur sem eru tilreiddar samkvæmt leiðbeiningum framleiðandans). fita, að hámarki 5 g/100 g mettaðar fitusýrur, að hámarki 33% af fituinnihaldi sykurtegundir, að hámarki 5 g/100 g salt, að hámarki 0,8 g/100 g Skilyrðin eiga við um vöruna tilbúna til neyslu B-deild – Útgáfud.: 26. mars 2021