跳到主要内容
Nelum
冰岛的法律

Act No. 68 on Iceland's Accession to the Convention on Future Multilateral Cooperation in Northeast Atlantic Fisheries

颁布于 1981-05-29 · 文本截至 2026-10-01

以研究形式发布的公开法律与官方指引,不构成法律、税务或金融建议。

研究内容本身以英文撰写。标题和标签已翻译,调查结果和引文未翻译。

关于这部法律

原标题
Lög um aðild Íslands að samningi um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar á Norðaustur-Atlantshafi.
语言
Icelandic
类型
法令
组织
European Union
国家
冰岛
主题
Fisheries and aquaculture, Sea
关键词
ratification, international cooperation, marine fisheries, sustainable use, enforcement/compliance

在哪里阅读

    该法律没有记录来源链接。

文本

所收录的法律原文,按条款排列。每个条款都有自己的链接。

  1. Lög um aðild Íslands að samningi um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar á Norðaustur-Atlantshafi 1981 nr. 68 29. maí Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga. Tóku gildi 18. júní 1981. Breytt með: L. 19/1991 (tóku gildi 1. júlí 1992 nema 1. og 3. mgr. 29. gr. sem tóku gildi 17. apríl 1991). L. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér. 1. gr. Ríkisstjórninni er heimilt að fullgilda fyrir Íslands hönd samning frá 18. nóvember 1980 um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar á Norðaustur-Atlantshafi. Samningurinn er prentaður sem fylgiskjal með lögum þessum. 2. gr. [Ráðherra] 1) er heimilt að setja reglur 2) um framkvæmd samningsins. 1)L. 126/2011, 93. gr. 2)Rg. 263/1970 (um alþjóðlegt fiskveiðieftirlit utan landhelgi og fiskveiðilögsögu). Augl. 222/1971 (um bann við síldveiði með herpinót á svæði í hafinu suður af Írlandi og vestur af Englandi). Rg. 181/1976 (um takmörkun á síldveiðum íslenskra skipa í Norðursjó, Skagerak og á svæði VI (a) vestan Skotlands). 3. gr. Brot á reglum sem settar verða samkvæmt 2. gr. laga þessara skulu varða sektum 2000–40.000 gullkrónum, sbr. lög nr. 4 11. apríl 1924. Ennfremur er heimilt að gera afla og veiðarfæri upptæk. Auk þess má láta brot varða skipstjóra fangelsi allt að 6 mánuðum þegar sakir eru miklar eða þegar um ítrekað brot er að ræða. [Kyrrsetja skal] 1) skip, sem staðið er að meintum ólöglegum veiðum, þegar er það kemur til hafnar, og er eigi heimilt að láta það laust fyrr en dómur hefur verið kveðinn upp í máli ákæruvaldsins gegn skipstjóra skipsins eða máli hans lokið á annan hátt og sekt og kostnaður greiddur að fullu. Þó er heimilt að láta skip laust fyrr ef sett er bankatrygging, eða önnur trygging jafngild að mati dómara, fyrir greiðslu sektarinnar og málskostnaðar. Til tryggingar greiðslu sektar samkvæmt þessari grein og kostnaðar skal vera lögveð í skipinu. … 2) 1)L. 19/1991, 195. gr. 2)L. 88/2008, 233. gr. 4. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. … Fylgiskjal. Samningur um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar á Norðaustur Atlantshafi.1) 1)Sjá Lagasafn 1995, bls. 950–953.

Act No. 68 on Iceland's Accession to the Convention on Future Multilateral Cooperation in Northeast Atlantic Fisheries · Nelum