Act No.66 amending the Fisheries Management Act and other Acts (bluefin tuna)
颁布于 2022-06-15 · 文本截至 2026-10-01
以研究形式发布的公开法律与官方指引,不构成法律、税务或金融建议。
研究内容本身以英文撰写。标题和标签已翻译,调查结果和引文未翻译。
关于这部法律
- 原标题
- Lög um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða og fleiri lögum (bláuggatúnfiskur).
- 语言
- Icelandic
- 类型
- 法令
- 国家
- 冰岛
- 主题
- Fisheries and aquaculture
- 关键词
- marine fisheries, fishing authorization, foreign fishing, fishery management and conservation, authorization/permit
在哪里阅读
该法律没有记录来源链接。
文本
所收录的法律原文,按条款排列。每个条款都有自己的链接。
Lög um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða og fleiri lögum (bláuggatúnfiskur). I. KAFLI Breyting á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. 1. gr. Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 4. gr. og 1. málsl. 5. gr. er aðilum sem uppfylla skilyrði 2. málsl. 5. gr. heimilt að taka á leigu erlent skip, til allt að sex mánaða hvert almanaksár, til veiða og vinnslu samkvæmt veiðiheimildum Íslands á austur-atlantshafsbláuggatúnfiski innan og utan íslenskrar fiskveiðilandhelgi. Heimild þessi gildir til og með 31. desember 2028. II. KAFLI Breyting á lögum um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 22/1998. 2. gr. Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. gr. er aðilum sem uppfylla skilyrði 2. málsl. 5. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, heimilt að taka á leigu erlent skip, til allt að sex mánaða hvert almanaksár, til veiða og vinnslu samkvæmt veiðiheimildum Íslands á austur-atlantshafs bláuggatúnfiski innan og utan íslenskrar fiskveiðilandhelgi. Heimild þessi gildir til og með 31. desember 2028. III. KAFLI Breyting á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997. 3. gr. Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 3. og 4. gr. er aðilum sem uppfylla skilyrði 2. málsl. 5. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, heimilt að taka á leigu erlent skip, til allt að sex mánaða hvert almanaksár, til veiða og vinnslu samkvæmt veiðiheimildum Íslands á austur-atlantshafs bláuggatúnfiski innan og utan íslenskrar fiskveiðilandhelgi. Heimild þessi gildir til og með 31. desember 2028. 2 IV. KAFLI Breyting á lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, nr. 34/1991. 4. gr. Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 4. gr. er aðilum sem uppfylla skilyrði 2. málsl. 5. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, heimilt að taka á leigu erlent skip, til allt að sex mánaða hvert almanaksár, til veiða og vinnslu samkvæmt veiðiheimildum Íslands á austur-atlantshafs bláuggatúnfiski innan og utan íslenskrar fiskveiðilandhelgi. Heimild þessi gildir til og með 31. desember 2028. 5. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Samþykkt á Alþingi 15. júní 2022.