Act No. 60 amending various acts regarding public oversight of the Food Administration (harmonization of fee provisions)
颁布于 2023-06-08 · 文本截至 2026-10-01
以研究形式发布的公开法律与官方指引,不构成法律、税务或金融建议。
研究内容本身以英文撰写。标题和标签已翻译,调查结果和引文未翻译。
关于这部法律
- 原标题
- Lög um breytingu á ýmsum lögum er varða opinbert eftirlit Matvælastofnunar (samræming gjaldtökuheimilda).
- 语言
- Icelandic
- 类型
- 法令
- 国家
- 冰岛
- 主题
- Livestock, Food and nutrition, Fisheries and aquaculture, Cultivated plants
- 关键词
- fees/royalties, enforcement/compliance, institution, governance, inspection, food safety and quality
- 类别
- agriculture
在哪里阅读
该法律没有记录来源链接。
文本
所收录的法律原文,按条款排列。每个条款都有自己的链接。
Lög um breytingu á ýmsum lögum er varða opinbert eftirlit Matvælastofnunar (samræming gjaldtökuheimilda). I. KAFLI Breyting á lögum um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum, nr. 51/1981. 1. gr. 2. mgr. 3. gr. laganna fellur brott. 2. gr. Á eftir 3. gr. laganna kemur ný grein, 3. gr. a, svohljóðandi: Fyrir eftirlit, umsýslu og skjalaskoðun Matvælastofnunar samkvæmt lögum þessum skal greiða gjald sem ekki er hærra en raunkostnaður til að standa straum af eftirtöldum kostn aðarþáttum: a. launum starfsfólks sem sinnir störfum vegna eftirlits, umsýslu og skjalaskoðunar, b. öðrum kostnaði vegna starfsfólks, þ.m.t. kostnaði af aðstöðu, áhöldum, búnaði, þjálfun og ferðalögum, svo og tengdum kostnaði, c. kostnaði vegna sýnatöku opinberra eftirlitsaðila og kostnaði sem opinberar rannsókna stofur innheimta vegna sýnatöku, greiningar, prófunar og sjúkdómsgreininga sem fram kvæmdar eru á opinberum rannsóknastofum. Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um eftirlit, umsýslu og skjalaskoðun Matvælastofn unar og skal hann gefa út gjaldskrá fyrir eftirlit Matvælastofnunar að fengnum tillögum stofn unarinnar. Við gerð reglugerðar og gjaldskrár Matvælastofnunar er heimilt að taka tillit til eftirfar andi atriða: a. hvers konar fyrirtæki um er að ræða og viðkomandi áhættuþátta, b. hagsmuna fyrirtækja með litla framleiðslu, c. hefðbundinna aðferða við framleiðslu, vinnslu og dreifingu, d. þarfa fyrirtækja með aðsetur á svæðum sem líða fyrir landfræðilegar takmarkanir. Matvælastofnun skal afla umsagnar hlutaðeigandi hagsmunasamtaka og kynna þeim efni og forsendur reglugerðar og/eða gjaldskrár stofnunarinnar með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara. Hafi umsagnir þeirra ekki borist Matvælastofnun að mánuði liðnum er ráðherra þó heimilt að setja reglugerð og gjaldskrá án umsagna þeirra. 2 Eftirlitsgjald skal greiða samkvæmt framlögðum reikningi opinbers eftirlitsaðila. Innheimta má eftirlitsgjaldið með fjárnámi án undangengins dóms eða sáttar. Opinberum eftirlitsaðilum er heimilt að krefjast dráttarvaxta af ógreiddri fjárkröfu vegna eftirlits frá og með gjalddaga fram að greiðsludegi. II. KAFLI Breyting á lögum um innflutning dýra, nr. 54/1990. 3. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 18. gr. a laganna: a. Í stað 1. málsl. kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um framkvæmd og inntak eftirlits, umsýslu og skjalaskoðunar Matvælastofnunar og skal hann gefa út gjaldskrá að fengnum tillögum stofnunarinnar. Við gerð reglugerðar og gjaldskrár opinberra eftirlitsaðila er heimilt að taka tillit til eftirfarandi atriða: a. hvers konar fyrirtæki um er að ræða og viðkomandi áhættuþátta, b. hagsmuna fyrirtækja með litla framleiðslu, c. hefðbundinna aðferða við framleiðslu, vinnslu og dreifingu, d. þarfa fyrirtækja með aðsetur á svæðum sem líða fyrir landfræðilegar takmarkanir. b. Í stað orðsins „Ráðherra“ í 2. málsl. kemur: Matvælastofnun. c. Í stað orðanna „ráðherra að mánuði liðnum er honum“ í 3. málsl. kemur: Matvælastofn un að mánuði liðnum er ráðherra. III. KAFLI Breyting á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993. 4. gr. Við 13. gr. laganna bætast fjórar nýjar málsgreinar, svohljóðandi: Fyrir eftirlit, umsýslu og skjalaskoðun Matvælastofnunar vegna aukaafurða dýra skal greiða gjald sem ekki er hærra en raunkostnaður til að standa straum af eftirtöldum kostn aðarþáttum: a. launum starfsfólks sem sinnir störfum vegna eftirlits, umsýslu og skjalaskoðunar, b. öðrum kostnaði vegna starfsfólks, þ.m.t. kostnaði af aðstöðu, áhöldum, búnaði, þjálfun og ferðalögum, svo og tengdum kostnaði, c. kostnaði vegna sýnatöku opinberra eftirlitsaðila og kostnaði sem opinberar rannsókna stofur innheimta vegna sýnatöku, greiningar, prófunar og sjúkdómsgreininga sem fram kvæmdar eru á opinberum rannsóknastofum. Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um eftirlit, umsýslu og skjalaskoðun Matvælastofn unar vegna aukaafurða dýra og skal hann gefa út gjaldskrá fyrir eftirlit Matvælastofnunar að fengnum tillögum stofnunarinnar. Við gerð reglugerðar og gjaldskrár opinberra eftirlitsaðila er heimilt að taka tillit til eftir farandi atriða: a. hvers konar fyrirtæki um er að ræða og viðkomandi áhættuþátta, b. hagsmuna fyrirtækja með litla framleiðslu, c. hefðbundinna aðferða við framleiðslu, vinnslu og dreifingu, d. þarfa fyrirtækja með aðsetur á svæðum sem líða fyrir landfræðilegar takmarkanir. Matvælastofnun skal afla umsagnar hlutaðeigandi hagsmunasamtaka og kynna þeim efni og forsendur reglugerðar og/eða gjaldskrár stofnunarinnar með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara. 3 Hafi umsagnir þeirra ekki borist Matvælastofnun að mánuði liðnum er ráðherra þó heimilt að setja reglugerð og gjaldskrá án umsagna þeirra. IV. KAFLI Breyting á lögum um fiskeldi, nr. 71/2008. 5. gr. Í stað 4. mgr. 14. gr. laganna koma sex nýjar málsgreinar, svohljóðandi: Fyrir eftirlit, umsýslu og skjalaskoðun Matvælastofnunar eða faggiltra eftirlitsaðila á hennar vegum skal greiða gjald sem ekki er hærra en raunkostnaður til að standa straum af eftirtöldum kostnaðarþáttum: a. launum starfsfólks sem sinnir störfum vegna eftirlits, umsýslu og skjalaskoðunar, b. öðrum kostnaði vegna starfsfólks, þ.m.t. kostnaði af aðstöðu, áhöldum, búnaði, þjálfun og ferðalögum, svo og tengdum kostnaði, c. kostnaði vegna sýnatöku opinberra eftirlitsaðila og kostnaði sem opinberar rannsókna stofur innheimta vegna sýnatöku, greiningar, prófunar og sjúkdómsgreininga sem fram kvæmdar eru á opinberum rannsóknastofum. Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um eftirlit, umsýslu og skjalaskoðun Matvælastofn unar og skal hann gefa út gjaldskrá fyrir eftirlit Matvælastofnunar að fengnum tillögum stofn unarinnar. Við gerð reglugerðar og gjaldskrár opinberra eftirlitsaðila er heimilt að taka tillit til eftir farandi atriða: a. hvers konar fyrirtæki um er að ræða og viðkomandi áhættuþátta, b. hagsmuna fyrirtækja með litla framleiðslu, c. hefðbundinna aðferða við framleiðslu, vinnslu og dreifingu, d. þarfa fyrirtækja með aðsetur á svæðum sem líða fyrir landfræðilegar takmarkanir. Matvælastofnun skal afla umsagnar hlutaðeigandi hagsmunasamtaka og kynna þeim efni og forsendur reglugerðar og/eða gjaldskrár stofnunarinnar með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara. Hafi umsagnir þeirra ekki borist Matvælastofnun að mánuði liðnum er ráðherra þó heimilt að setja reglugerð og gjaldskrá án umsagna þeirra. Eftirlitsgjald skal greiða samkvæmt framlögðum reikningi opinbers eftirlitsaðila. Innheimta má eftirlitsgjaldið með fjárnámi án undangengins dóms eða sáttar. Opinberum eftirlitsaðilum er heimilt að krefjast dráttarvaxta af ógreiddri fjárkröfu vegna eftirlits frá og með gjalddaga fram að greiðsludegi. V. KAFLI Breyting á lögum um útflutning hrossa, nr. 27/2011. 6. gr. Í stað 3. mgr. 2. gr. laganna koma sex nýjar málsgreinar, svohljóðandi: Fyrir eftirlit, umsýslu og skjalaskoðun Matvælastofnunar samkvæmt lögum þessum skulu útflytjendur hrossa greiða gjald sem ekki er hærra en raunkostnaður til að standa straum af eftirtöldum kostnaðarþáttum: a. launum starfsfólks sem sinnir störfum vegna eftirlits, umsýslu og skjalaskoðunar, b. öðrum kostnaði vegna starfsfólks, þ.m.t. kostnaði af aðstöðu, áhöldum, búnaði, þjálfun og ferðalögum, svo og tengdum kostnaði, c. kostnaði vegna sýnatöku opinberra eftirlitsaðila og kostnaði sem opinberar rannsókna stofur innheimta vegna sýnatöku, greiningar, prófunar og sjúkdómsgreininga sem fram kvæmdar eru á opinberum rannsóknastofum. 4 Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um eftirlit, umsýslu og skjalaskoðun Matvælastofn unar og skal hann gefa út gjaldskrá fyrir eftirlit Matvælastofnunar að fengnum tillögum stofn unarinnar. Við gerð reglugerðar og gjaldskrár opinberra eftirlitsaðila er heimilt að taka tillit til eftir farandi atriða: a. hvers konar fyrirtæki um er að ræða og viðkomandi áhættuþátta, b. hagsmuna fyrirtækja með litla framleiðslu, c. hefðbundinna aðferða við framleiðslu, vinnslu og dreifingu, d. þarfa fyrirtækja með aðsetur á svæðum sem líða fyrir landfræðilegar takmarkanir. Matvælastofnun skal afla umsagnar hlutaðeigandi hagsmunasamtaka og kynna þeim efni og forsendur reglugerðar og/eða gjaldskrár stofnunarinnar með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara. Hafi umsagnir þeirra ekki borist Matvælastofnun að mánuði liðnum er ráðherra þó heimilt að setja reglugerð og gjaldskrá án umsagna þeirra. Eftirlitsgjald skal greiða samkvæmt framlögðum reikningi opinbers eftirlitsaðila. Innheimta má eftirlitsgjaldið með fjárnámi án undangengins dóms eða sáttar. Opinberum eftirlitsaðilum er heimilt að krefjast dráttarvaxta af ógreiddri fjárkröfu vegna eftirlits frá og með gjalddaga fram að greiðsludegi. VI. KAFLI Breyting á lögum um skeldýrarækt, nr. 90/2011. 7. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna: a. Í stað orðsins „skal“ í 4. mgr. kemur: er heimilt að. b. Í stað orðsins „Ráðherra“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: Matvælastofnun. c. Í stað orðanna „ráðherra að mánuði liðnum er honum“ í 2. málsl. 5. mgr. kemur: Mat vælastofnun að mánuði liðnum er ráðherra. VII. KAFLI Breyting á lögum um velferð dýra, nr. 55/2013. 8. gr. Í stað 2. mgr. 33. gr. laganna koma sex nýjar málsgreinar, svohljóðandi: Fyrir eftirlit, umsýslu og skjalaskoðun Matvælastofnunar samkvæmt lögum þessum skal greiða gjald sem ekki er hærra en raunkostnaður til að standa straum af eftirtöldum kostn aðarþáttum: a. launum starfsfólks sem sinnir störfum vegna eftirlits, umsýslu og skjalaskoðunar, b. öðrum kostnaði vegna starfsfólks, þ.m.t. kostnaði af aðstöðu, áhöldum, búnaði, þjálfun og ferðalögum, svo og tengdum kostnaði, c. kostnaði vegna sýnatöku opinberra eftirlitsaðila og kostnaði sem opinberar rannsókna stofur innheimta vegna sýnatöku, greiningar, prófunar og sjúkdómsgreininga sem fram kvæmdar eru á opinberum rannsóknastofum. Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um eftirlit, umsýslu og skjalaskoðun Matvæla stofnunar og skal hann gefa út gjaldskrá fyrir eftirlit Matvælastofnunar að fengnum tillögum stofnunarinnar. Við gerð reglugerðar og gjaldskrár opinberra eftirlitsaðila er heimilt að taka tillit til eftir farandi atriða: a. hvers konar fyrirtæki um er að ræða og viðkomandi áhættuþátta, b. hagsmuna fyrirtækja með litla framleiðslu, 5 c. hefðbundinna aðferða við framleiðslu, vinnslu og dreifingu, d. þarfa fyrirtækja með aðsetur á svæðum sem líða fyrir landfræðilegar takmarkanir. Matvælastofnun skal afla umsagnar hlutaðeigandi hagsmunasamtaka og kynna þeim efni og forsendur reglugerðar og/eða gjaldskrár stofnunarinnar með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara. Hafi umsagnir þeirra ekki borist Matvælastofnun að mánuði liðnum er ráðherra þó heimilt að setja reglugerð og gjaldskrá án umsagna þeirra. Eftirlitsgjald skal greiða samkvæmt framlögðum reikningi opinbers eftirlitsaðila. Innheimta má eftirlitsgjaldið með fjárnámi án undangengins dóms eða sáttar. Opinberum eftirlitsaðilum er heimilt að krefjast dráttarvaxta af ógreiddri fjárkröfu vegna eftirlits frá og með gjalddaga fram að greiðsludegi. 9. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Samþykkt á Alþingi 8. júní 2023.