跳到主要内容
Nelum
冰岛的法律

Act No. 51 amending the Food Act and the Act on Food, Feed, Fertiliser, and Seed Products Control (organic production)

颁布于 2022-06-09 · 文本截至 2026-10-01

以研究形式发布的公开法律与官方指引,不构成法律、税务或金融建议。

研究内容本身以英文撰写。标题和标签已翻译,调查结果和引文未翻译。

关于这部法律

原标题
Lög um breytingu á lögum um matvæli og lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru (lífræn framleiðsla).
语言
Icelandic
类型
法令
国家
冰岛
主题
Agricultural and rural development, Food and nutrition, Cultivated plants
关键词
ecological production/organic production, pesticides, food safety and quality, seeds/planting material, plant production
类别
agriculture

在哪里阅读

    该法律没有记录来源链接。

文本

所收录的法律原文,按条款排列。每个条款都有自己的链接。

  1. Lög um breytingu á lögum um matvæli og lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru (lífræn framleiðsla). I. KAFLI Breyting á lögum um matvæli, nr. 93/1995. 1. gr. Við 1. málsl. 1. mgr. 2. gr. laganna bætist: þ.m.t. lífrænnar framleiðslu. 2. gr. Eftirfarandi orðskýringar bætast við 4. gr. laganna í viðeigandi stafrófsröð: 1. Aðlögun að lífrænni framleiðslu er umbreyting frá framleiðslu sem ekki er lífræn til lífrænnar framleiðslu á tilteknu tímabili. 2. Lífræn framleiðsla og tengd vottun er notkun framleiðsluaðferða, þ.m.t. á aðlögunartímanum, á öllum stigum framleiðslu, vinnslu og dreifingar í samræmi við reglugerð (ESB) 2018/848, svo sem kveðið er á um í reglugerð sem ráðherra setur með heimild skv. 31. gr. a. 3. gr. Við 6. gr. laganna bætist nýr stafliður, svohljóðandi: lífrænni framleiðslu, að undanskilinni smásölu. 4. gr. Á eftir IV. kafla A laganna kemur nýr kafli, IV. kafli B, Lífræn framleiðsla, með þremur nýjum greinum, 13. gr. g – 13. gr. i, svohljóðandi: a. (13. gr. g.) Óheimilt er að nota hvers kyns orð, orðmyndir, hugtök, myndir eða tákn sem vísa til lífrænnar framleiðslu á merkingum umbúða, í auglýsingaefni eða viðskiptaskjölum nema framleiðslan uppfylli skilyrði í reglugerð um lífræna framleiðslu og hafi hlotið vottun til notkunar á vörumerki til lífrænnar framleiðslu frá lögbæru yfirvaldi eða vottunarstofu, sbr. 23. gr. b. (13. gr. h.) Um tíðni eftirlits með lífrænni framleiðslu gilda ákvæði reglugerðar sem ráðherra setur, sbr. 1. mgr. 31. gr. a. c. (13. gr. i.) Heimilt er að fella tímabundið úr gildi eða afturkalla vottorð um lífræna framleiðslu að hluta eða í heild þegar ekki er farið eftir ákvæðum reglugerða um lífræna framleiðslu og notkun framleiðsluaðferða sem ráðherra setur, sbr. 5. mgr. 31. gr. a. 5. gr. Við 7. mgr. 22. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Um tíðni eftirlits með lífrænni vottun gilda ákvæði 13. gr. h. 6. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 31. gr. a laganna: a. Á eftir orðunum „erfðabreytt matvæli og merkingar þeirra“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara. b. Á eftir 4. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Ráðherra er heimilt að innleiða með reglugerð reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 frá 30. maí 2018 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara og um niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 834/2007, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31/2022 frá 4. febrúar 2022. II. KAFLI Breyting á lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994. 7. gr. Við 2. gr. laganna bætist nýr málsliður svohljóðandi: Um lífræna framleiðslu fóðurs, áburðar og sáðvöru gilda ákvæði reglugerðar sem ráðherra setur. 8. gr. Eftirfarandi orðskýring bætist við 2. gr. a laganna í viðeigandi stafrófsröð: Lífræn framleiðsla er notkun framleiðsluaðferða sem eru í samræmi við reglugerð sem ráðherra setur, sbr. 8. mgr. 7. gr. 9. gr. Á eftir 5. gr. laganna kemur ný grein, 5. gr. a, svohljóðandi: Óheimilt er að nota hvers kyns orð, orðmyndir, hugtök, myndir eða tákn sem vísa til lífrænnar framleiðslu á merkingum umbúða, í auglýsingaefni eða viðskiptaskjölum nema framleiðslan uppfylli skilyrði lífrænt vottaðrar framleiðslu og hafi hlotið vottun þar um frá lögbæru yfirvaldi og tilnefndri vottunarstofu, sbr. 7. gr. j. 10. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna: a. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Um lífræna framleiðslu gilda ákvæði reglugerðar sem ráðherra setur, sbr. 1. mgr. 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, og 8. mgr. b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Ráðherra er heimilt að innleiða með reglugerð reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 frá 30. maí 2018 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara og um niðurfellingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 834/2007, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31/2022 frá 4. febrúar 2022. 11. gr. Á eftir 1. mgr. 9. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Heimilt er að fella tímabundið úr gildi eða afturkalla vottorð um lífræna framleiðslu að hluta eða í heild þegar ekki er farið eftir ákvæðum reglugerða um lífræna framleiðslu sem ráðherra setur, sbr. 2. gr. 12. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög um lífræna landbúnaðarframleiðslu, nr. 162/1994. Samþykkt á Alþingi 9. júní 2022. Deila

Act No. 51 amending the Food Act and the Act on Food, Feed, Fertiliser, and Seed Products Control (organic production) · Nelum