Act No. 36 on standards and the national standards body of Iceland Icelandic Standards
颁布于 2003-03-20 · 文本截至 2026-10-01
以研究形式发布的公开法律与官方指引,不构成法律、税务或金融建议。
研究内容本身以英文撰写。标题和标签已翻译,调查结果和引文未翻译。
关于这部法律
- 原标题
- Lög um staðla og Staðlaráð Íslands.
- 语言
- Icelandic
- 类型
- 法令
- 组织
- European Union
- 国家
- 冰岛
- 主题
- General
- 关键词
- standards, institution, international cooperation, governance
在哪里阅读
该法律没有记录来源链接。
文本
所收录的法律原文,按条款排列。每个条款都有自己的链接。
Lagasafn. Íslensk lög 15. apríl 2023. Útgáfa 153b. Prenta í tveimur dálkum. Lög um staðla og Staðlaráð Íslands 2003 nr. 36 20. mars Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga. Tóku gildi 3. apríl 2003. Breytt með: L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við menningar- og viðskiptaráðherra eða menningar- og viðskiptaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér. 1. gr. Hugtökin staðall, alþjóðlegur staðall, stöðlun, tækniforskrift og sammæli skulu hafa alþjóðlega viðurkennda merkingu hér á landi eins og hún kemur fram í íslenskum staðli um íðorð í stöðlun og skyldri starfsemi. 2. gr. Íslenskur staðall er staðall sem hefur verið staðfestur af Staðlaráði Íslands. Heimilt er að gefa út íslenskan staðal á erlendu tungumáli ef sýnt er að það hindri ekki eðlileg not hans. 3. gr. Staðall er til frjálsra afnota. Stjórnvöld geta þó gert notkun tilgreinds staðals skyldubundna með vísun til hans og hlutaðeigandi laga. Skal hann þá staðfestur með reglugerð af hlutaðeigandi ráðuneyti og skal í reglugerð vísa til staðalsins. 4. gr. Staðlaráð Íslands er samstarfsráð þeirra sem hagsmuna hafa að gæta af stöðlum. Aðild að ráðinu er öllum heimil. Staðlaráð Íslands setur sér starfsreglur sem ráðherra staðfestir þar sem m.a. skal kveða á um skipulag ráðsins, stjórn þess og daglega starfsemi. Staðlaráð Íslands ræður sér framkvæmdastjóra. Hann fer með daglega stjórn ráðsins og ber ábyrgð á rekstri þess gagnvart stjórn þess. Stjórn Staðlaráðs Íslands hefur það hlutverk að staðfesta alþjóðlega staðla og annast gerð íslenskra staðla í samvinnu við hagsmunaaðila, svo sem hlutaðeigandi ráðuneyti, stofnanir, samtök og fyrirtæki. Staðlaráð Íslands getur starfrækt fagstaðlaráð á einstökum fagsviðum í samvinnu við hlutaðeigandi hagsmunaaðila. Hlutverk fagstaðlaráða er að samræma og hafa frumkvæði að stöðlunarvinnu á sínu sviði. 5. gr. Staðlaráð Íslands á aðild að alþjóðasamstarfi staðlaráða fyrir Íslands hönd og fer með atkvæði landsins á þeim vettvangi. Heimilt er þó ráðinu að fela stofnun, fyrirtæki eða samtökum að annast í umboði þess þátttöku í alþjóðastaðlasamstarfi. 6. gr. Eigi sjaldnar en ársfjórðungslega skal á vegum Staðlaráðs Íslands gefa út Staðlatíðindi þar sem m.a. skal: 1. tilkynna um ný stöðlunarverkefni, 2. auglýsa frumvörp að íslenskum stöðlum og kalla eftir athugasemdum innan tiltekins tímafrests og 3. tilkynna um staðfestingu Staðlaráðs Íslands á nýjum íslenskum stöðlum. Við útgáfu auglýsinga og ákvörðun tímafrests samkvæmt þessari grein skal miðað við að þeir sem hagsmuna hafa að gæta geti haft áhrif á gerð staðalsins. Á vegum Staðlaráðs Íslands skal haldin skrá yfir alla gildandi íslenska staðla. Skráin skal birt eigi sjaldnar en einu sinni á ári. Jafnframt skal Staðlaráð Íslands sjá til þess að á hverjum tíma séu til eintök af öllum gildandi íslenskum stöðlum. 7. gr. Til að standa straum af starfsemi Staðlaráðs Íslands rennur hluti af gjaldstofni tryggingagjalds samkvæmt lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, til Staðlaráðs Íslands. Aðrar tekjur Staðlaráðs Íslands eru m.a. aðildargjöld, sem ráðið ákveður, tekjur af verkefnum fyrir opinbera aðila og sala á stöðlum og þjónustu. 8. gr. [Ráðherra] fer með framkvæmd laga þessara. Hann getur með reglugerð sett nánari 1) 2)
ákvæði um framkvæmd þeirra, að fenginni umsögn Staðlaráðs Íslands. L. 126/2011, 362. gr. 2)Rg. 319/1993, sbr. 276/1996. Rg. 798/2014. 1) 9. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. …