跳到主要内容
Nelum
冰岛的法律

Act No. 33 on the Maritime Safety School

颁布于 1991-03-07 · 文本截至 2026-10-01

以研究形式发布的公开法律与官方指引,不构成法律、税务或金融建议。

研究内容本身以英文撰写。标题和标签已翻译,调查结果和引文未翻译。

关于这部法律

原标题
Lög um Slysavarnaskóla sjómanna.
语言
Icelandic
类型
法令
组织
European Union
国家
冰岛
主题
Sea
关键词
navigation, risk assessment/management

在哪里阅读

    该法律没有记录来源链接。

文本

所收录的法律原文,按条款排列。每个条款都有自己的链接。

  1. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect. Þingskjal 838, 113. löggjafarþing 175. mál: Slysavarnaskóli sjómanna. Lög nr. 33 19. mars 1991. Lög um Slysavarnaskóla sjómanna. 1. gr. Slysavarnafélag Íslands skal starfrækja Slysavarnaskóla sjómanna og fer Slysavarnafélagið með yfirstjórn skólans er starfar á vegum þess og ábyrgð. Markmið skólans er að auka öryggi sjómanna með fræðslu og þjálfun í meðferð björgunar- og öryggisbúnaðar og almennri fræðslu um slysavarnir á sjó. 2. gr. Slysavarnaskóli sjómanna skal halda námskeið fyrir starfandi og verðandi sjómenn um öryggis- og björgunarmál á helstu útgerðarstöðum landsins og annast öryggis- og slysavarnafræðslu fyrir nemendur í skipstjórnar- og vélstjórnarnámi. Aðalkennslugreinar skólans eru: Fræðsla um öryggismál, slysavarnir, björgunaraðferðir, skyndihjálp, flutningur sjúkra og slasaðra, meðferð björgunarbúnaðar, slökkvibúnaðar og reykköfunartækja. 3. gr. Samgönguráðherra skipar fimm manna skólanefnd Slysavarnaskóla sjómanna til fjögurra ára í senn. Einn skal tilnefndur af Sjómannasambandi Íslands, einn af Farmanna- og fiskimannasambandI Íslands og þrír tilnefndir af Slysavarnafélagi Íslands. Ráðherra skipar einn fulltrúa Slysavarnafélags Íslands formann skólanefndar. Meginhlutverk skólanefndar er að fjalla um málefni Slysavarnaskólans, einkum varðandi tækjakaup og búnað hans, viðhald, framkvæmdir og áframhaldandi uppbyggingu. Skólanefnd gerir, að fenginni umsögn öryggisfræðslunefndar sjómanna, tillögur til stjórnar Slysavarnafélags Íslands um námskeiðahald, námsskrá og lengd námskeiða á vegum skólans. 4. gr. Skólanefnd ræður skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna en um mannaráðningar fer samkvæmt lögum Slysavarnafélags Íslands. 5. gr. Kostnaður við rekstur skólans skal greiddur úr ríkissjóði. Slysavarnafélag Íslands gerir fjárhagsáætlun fyrir skólann og leggur fyrir samgönguráðuneytið til staðfestingar. 6. gr. https://www-althingi-is.translate.goog/altext/pdf/113/s/0838.pdf? x tr sl=is& x tr tl=en& x tr hl=en& x tr pto=wapp https://www-althingi-is.translate.goog/altext/wpd/113/s/0838.wpd? x tr sl=is& x tr tl=en& x tr hl=en& x tr pto=wapp https://www-althingi-is.translate.goog/dba-bin/ferill.pl?ltg=113&mnr=175& x tr sl=is& x tr tl=en& x tr hl=en& x tr pto=wapp Lög þessi öðlast þegar gildi. Ákvæði til bráðabirgða. Samgönguráðherra skal eigi síðar en 1. febrúar 1993 leggja fram frumvarp til laga um breyting á lögum um lögskráningu sjómanna sem m. a. kveði á um skyldu sjómanna, sem lögskráðir eru, til að hafa hlotið grundvallarfræðslu um öryggismál í Slysavarnaskóla sjómanna þegar lögskráning fer fram. Samþykkt á Alþingi 7. mars 1991.

Act No. 33 on the Maritime Safety School · Nelum