Act No. 31 on the Food Fund
颁布于 2020-04-30 · 文本截至 2026-10-01
以研究形式发布的公开法律与官方指引,不构成法律、税务或金融建议。
研究内容本身以英文撰写。标题和标签已翻译,调查结果和引文未翻译。
关于这部法律
- 原标题
- Lög um Matvælasjóð.
- 语言
- Icelandic
- 类型
- 法令
- 国家
- 冰岛
- 主题
- Food and nutrition
- 关键词
- special fund, processing/handling, agricultural commodities, fish products, research, innovation
在哪里阅读
该法律没有记录来源链接。
文本
所收录的法律原文,按条款排列。每个条款都有自己的链接。
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2020. Útgáfa 150c. Prenta í tveimur dálkum. Lög um Matvælasjóð 2020 nr. 31 30. apríl Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga. Tóku gildi 7. maí 2020. Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér. 1. gr. Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Matvælasjóður lýtur stjórn fjögurra manna sem ráðherra skipar til þriggja ára í senn. Einn skal skipaður samkvæmt tilnefningu Bændasamtaka Íslands, einn samkvæmt tilnefningu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og tveir án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ef til atkvæðagreiðslu kemur innan stjórnar og atkvæði falla jafnt ræður atkvæði formanns. Stjórn sjóðsins gerir tillögur um úthlutanir úr sjóðnum að fenginni umsögn fagráðs sem stjórnin skipar til fjögurra ára í senn. Fagráð skal skipað allt að sjö einstaklingum. Fagráð er til ráðgjafar um fagleg málefni við úthlutanir úr sjóðnum. Jafnframt er fagráð ráðgefandi fyrir stjórn sjóðsins eftir því sem óskað er. Stjórn sjóðsins mótar stefnu fyrir sjóðinn og ber undir ráðherra til samþykktar. Ráðstöfunarfé sjóðsins samanstendur af fjárveitingu af fjárlögum hverju sinni og öðrum tekjum eftir því sem þeim er til að dreifa. Stjórn sjóðsins hefur umsjón með rekstri hans. Heimilt er að fela þriðja aðila reksturinn. Stjórnin skilar ársreikningi og reglulegu yfirliti um störf sín til ráðherra. Þóknun stjórnar er ákveðin af ráðherra. Kostnaður af rekstri sjóðsins greiðist af tekjum hans. Stjórn sjóðsins setur starfsreglur um auglýsingar, meðferð og mat umsókna, framkvæmd úthlutunar, fagráð o.fl. 2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Lög um Framleiðnisjóð landbúnaðarins, nr. 89/1966, falla úr gildi 31. desember 2020. Skal starfsemi sjóðsins þá vera lokið. Matvælasjóður tekur við öllum eignum hans og skuldbindingum frá þeim tíma. Skipa skal stjórn fyrir Matvælasjóð svo fljótt sem verða má eftir gildistöku laga þessara sem þegar skal hefja vinnu við stefnumótun fyrir sjóðinn og undirbúning að starfsemi hans. 3. gr. … Ákvæði til bráðabirgða. Þrátt fyrir ákvæði 2.–4. tölul. 3. gr. skal Framleiðnisjóður landbúnaðarins halda sömu skattalegu stöðu og hingað til út starfstíma sinn.