跳到主要内容
Nelum
冰岛的法律

Act No. 31 on the characterisation of fishing vessels

颁布于 1925-06-27 · 文本截至 2026-10-01

以研究形式发布的公开法律与官方指引,不构成法律、税务或金融建议。

研究内容本身以英文撰写。标题和标签已翻译,调查结果和引文未翻译。

关于这部法律

原标题
Lög um einkenning fiskiskipa.
语言
Icelandic
类型
法令
组织
European Union
国家
冰岛
主题
Fisheries and aquaculture
关键词
fishing vessel, marine fisheries, maritime zone, offences/penalties

在哪里阅读

    该法律没有记录来源链接。

文本

所收录的法律原文,按条款排列。每个条款都有自己的链接。

  1. Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2020. Útgáfa 150c. Prenta í tveimur dálkum. Lög um einkenning fiskiskipa 1925 nr. 31 27. júní Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga. Tóku gildi 23. september 1925. Breytt með: L. 116/1990 (tóku gildi 31. des. 1990). L. 19/1991 (tóku gildi 1. júlí 1992 nema 1. og 3. mgr. 29. gr. sem tóku gildi 17. apríl 1991). 1. gr. Öll skip, íslensk sem erlend, sem ætluð eru til fiskiveiða, skulu bera á sér glöggt heiti sitt og heimilisfang, er þau koma í íslenska landhelgi eða hafast þar við. 1) Botnvörpuskip og önnur fiskiskip, sem knúin eru eimorku, skulu bera nafn sitt og heimilisfang á afturstafni, enda skal setja nafn skips og önnur einkennismerki beggja megin á framstafn. Sleppa má nafni skipsins á framstafni, ef einkennismerki skipsins eru sett þar sams konar og þau, er segir í samningum þeim, er um getur í næstu málsgrein hér á eftir. Nú er skip svo merkt, sem segir í samningi 6. maí 1882 um fiskiveiðar í Englandshafi, eða eins og mælt er í samningi 24. júní 1901 um fiskiveiðagæslu utan landhelgi við Ísland og Færeyjar, og skal þá sú merking talin nægileg. 1)Rg. 493/1986 (um merkingu skipa). 2. gr. Bannað er að afmá einkenni þau, er í 1. gr. segir, eða afbaka þau, gera þau óþekkjanleg, hylja þau eða dylja, meðan skip er í íslenskri landhelgi. 3. gr. Það varðar sektum … 1) ef fiskiskip kemur í íslenska landhelgi, eða hefst þar við, án þess að hafa á sér merki þau, er í 1. gr. segir, eða ef brotið er af ásettu ráði bann það, er í 2. gr. getur. Nú á botnvörpuskip hlut að máli, og skal þá svo með fara, sem slíkt skip hefði verið í landhelgi og hefði komið veiðarfærum sínum ólöglega fyrir. Nú verða fyrirmæli laga þessara um merkingu skipa brotin, án þess að ásetningsbrot verði talið, og liggur þá … 1) sekt við því. Nú veiðir skip heimildarlaust í íslenskri landhelgi með vísvitandi duldum, afmáðum eða afbökuðum merkjum (sbr. 1. gr.), og skal þá ákveða refsingu fyrir brot þessi í einu lagi, en hækka skal sekt fyrir heimildarlausa veiði um allt að helmingi, og ekki má sekt lægri vera en sem svarar hæstu sekt fyrir fiskiveiðabrotið, ef gufuskip á hlut að máli. 1)L. 116/1990, 16. gr. 4. gr. … 1) Sektir samkvæmt lögum þessum renna í landhelgissjóð. Til tryggingar greiðslu sekta og málskostnaðar má kyrrsetja skip og síðan selja, að undangenginni aðför, til lúkningar hvors tveggja. 1)L. 19/1991, 194. gr.

Act No. 31 on the characterisation of fishing vessels · Nelum