跳到主要内容
Nelum
冰岛的法律

Act No. 30 on the Icelandic Food and Veterinary Authority

颁布于 2018-05-07 · 文本截至 2026-10-01

以研究形式发布的公开法律与官方指引,不构成法律、税务或金融建议。

研究内容本身以英文撰写。标题和标签已翻译,调查结果和引文未翻译。

关于这部法律

原标题
Lög um Matvælastofnun.
语言
Icelandic
类型
法令
组织
European Union
国家
冰岛
主题
Agricultural and rural development, Livestock, Food and nutrition, Cultivated plants
关键词
institution, governance, animal health, animal welfare, food safety and quality, enforcement/compliance, inspection, plant protection
类别
agriculture

在哪里阅读

    该法律没有记录来源链接。

文本

所收录的法律原文,按条款排列。每个条款都有自己的链接。

  1. Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2020. Útgáfa 150c. Prenta í tveimur dálkum. Lög um Matvælastofnun 2018 nr. 30 7. maí Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga. Tóku gildi 15. maí 2018. Breytt með: L. 71/2019 (tóku gildi 5. júlí 2019). L. 84/2019 (tóku gildi 1. jan. 2020). Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér. 1. gr. Matvælastofnun. Matvælastofnun er ríkisstofnun undir yfirstjórn ráðherra. Stofnunin fer með stjórnsýslu matvælamála samkvæmt lögum þessum og öðrum lögum sem stofnunin starfar eftir. Matvælastofnun skal með starfsemi sinni stuðla að neytendavernd, heilbrigði og velferð dýra, heilbrigði plantna og öryggi, heilnæmi og gæðum matvæla. 2. gr. Hlutverk. Hlutverk Matvælastofnunar er að: a. fara með stjórnsýslu og eftirlit í samræmi við lög þessi og önnur lög, m.a. varðandi matvæli, dýraheilbrigði, dýravelferð, jarðrækt, fóður, sóttvarnir og viðbragðsáætlanir, fiskeldi, kjötmat, inn- og útflutningseftirlit …, 1) b. veita ráðherra ráðgjöf um þá málaflokka sem falla undir starfssvið stofnunarinnar, þ.m.t. aðstoð við stefnumótun, undirbúning laga og stjórnvaldsfyrirmæla og alþjóðlegt samstarf, c. veita öðrum stjórnvöldum ráðgjöf og umsagnir um mál á starfssviði stofnunarinnar, d. vinna að samræmingu og skilvirkni opinbers eftirlits á starfssviði sínu, e. vinna að aðgengi fyrir íslenskar afurðir að erlendum mörkuðum, f. veita hagsmunaaðilum og almenningi fræðslu um málefni á starfssviði stofnunarinnar. 1)L. 84/2019, 18. gr. 3. gr. Skipulag o.fl. Ráðherra skipar forstjóra Matvælastofnunar til fimm ára í senn. Hann ber ábyrgð á starfsemi og rekstri stofnunarinnar, mótar helstu áherslur, verkefni og starfshætti og annast daglega stjórn hennar. Matvælastofnun skiptist í svið eftir viðfangsefnum. Forstjóri ræður sviðsstjóra yfir hvert svið. Ráðherra skipar þó sviðsstjóra yfir sérstöku sviði sem fer með málefni dýrasjúkdóma og varna gegn þeim og dýravelferðar. Sá sviðsstjóri skal vera dýralæknir að mennt og nefnast yfirdýralæknir. Hann er skipaður til fimm ára. Ráðherra setur honum erindisbréf með hliðsjón af þeim verkefnum sem yfirdýralækni eru sérstaklega falin í lögum. Yfirdýralæknir heyrir undir forstjóra. Forstjóri ræður annað starfsfólk nema annað sé tekið fram í lögum. Matvælastofnun starfrækir umdæmisstofur sem sinna eftirlitsstörfum og ákveður ráðherra fjölda umdæma og mörk milli þeirra. Forstjóri ákveður staðsetningu umdæmisstofa og ræður dýralækni sem veitir hverri stofu forstöðu og fer með þau verkefni sem héraðsdýralækni eru falin með lögum. Matvælastofnun starfrækir landamærastöðvar eftir þörfum til að hafa eftirlit með innflutningi búfjárafurða, sjávarafurða og lifandi ferskvatns- eða sjávardýra frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins. Matvælastofnun skal árlega gera áætlun um störf stofnunarinnar, birta skýrslu um starfsemi sína og setja stefnu um starfsemi sína og meginverkefni í samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál. Ráðherra setur í reglugerð 1) nánari ákvæði um skipulag og starfsemi Matvælastofnunar að fengnum tillögum forstjóra. 1)Rg. 646/2020. 4. gr. Samstarfsráð. Matvælastofnun skal hafa samvinnu og samráð við þá aðila, félög, samtök og stofnanir sem tengjast starfsemi hennar. Við stofnunina skal starfa samstarfsráð þar sem reglubundið samráð og miðlun upplýsinga á sér stað. Meðal annars skal leggja fram til umræðu í ráðinu áætlun skv. 3. gr. og kynna nýjar áherslur og fyrirhugaðar breytingar á starfi stofnunarinnar. Ráðherra skipar samstarfsráðið, ákveður fjölda fulltrúa og hverjir tilnefna þá auk Matvælastofnunar. Ráðið skal koma saman eigi sjaldnar en tvisvar á ári, en ráðherra setur í reglugerð 1) nánari ákvæði um starfsemi þess. 1)Rg. 940/2019. 5. gr. Samningar við aðila um framkvæmd eftirlits. Ráðherra getur ákveðið að Matvælastofnun skuli með samningi fela aðilum að annast afmarkaða hluta af lögbundnu eftirliti fyrir sína hönd. Ákvörðun um framsal eftirlits sem fellur undir gildissvið EES-samningsins skal þó tekin af Matvælastofnun. Aðili skv. 1. mgr. skal eftir atvikum hafa fullnægjandi menntun, starfsréttindi eða viðeigandi faggildingu. Ráðherra skal með reglugerð mæla nánar fyrir um hvaða kröfur skuli gerðar hverju sinni til aðila sem fara með eftirlit. Aðila skv. 1. mgr. verður ekki, nema á grundvelli lagaheimildar, falið að taka ákvörðun um innheimtu gjalda eða beitingu viðurlaga eða aðrar sambærilegar ákvarðanir um rétt eða skyldu þeirra sem eftirlit beinist að. [Aðilar skv. 1. mgr. og starfsmenn þeirra eru bundnir þagnarskyldu skv. X. kafla stjórnsýslulaga.] 1) Um samning skv. 1. mgr. fer eftir 40. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, að því leyti sem strangari eða ítarlegri kröfur koma ekki fram í lögum þessum eða öðrum lögum sem stofnunin starfar eftir og mæla fyrir um eftirlit. 1)L. 71/2019, 5. gr. 6. gr. Gildistaka. Lög þessi öðlast þegar gildi. …

Act No. 30 on the Icelandic Food and Veterinary Authority · Nelum