Act No. 27 on the export of horses
颁布于 2011-04-01 · 文本截至 2026-10-01
以研究形式发布的公开法律与官方指引,不构成法律、税务或金融建议。
研究内容本身以英文撰写。标题和标签已翻译,调查结果和引文未翻译。
关于这部法律
- 原标题
- Lög um útflutning hrossa.
- 语言
- Icelandic
- 类型
- 法令
- 组织
- European Union
- 国家
- 冰岛
- 主题
- Livestock
- 关键词
- animal welfare, equine-animals, transport/storage, inspection, international trade, traceability
- 类别
- *
在哪里阅读
该法律没有记录来源链接。
文本
所收录的法律原文,按条款排列。每个条款都有自己的链接。
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2020. Útgáfa 150c. Prenta í tveimur dálkum. Lög um útflutning hrossa 2011 nr. 27 1. apríl Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga. Tóku gildi 6. apríl 2011. Breytt með: L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 124/2018 (tóku gildi 1. jan. 2019). Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér. 1. gr. [Ráðherra] 1) fer með yfirstjórn mála samkvæmt lögum þessum. Útflutningur á hrossum er heimill án sérstakra leyfa að uppfylltum skilyrðum laga þessara og stjórnvaldsfyrirmæla sem eru sett samkvæmt þeim. Þó má ekki flytja úr landi yngri hross en fjögurra mánaða né fylfullar hryssur sem gengnar eru með sjö mánuði eða lengur. 1)L. 126/2011, 539. gr. 2. gr. Óheimilt er að flytja úr landi hross nema héraðsdýralæknir eða eftirlitsdýralæknir Matvælastofnunar hafi skoðað það í útflutningshöfn, metið það hæft til útflutnings með tilliti til dýraverndar og smitsjúkdóma og staðfest að það sé rétt merkt og uppfylli kröfur sem gerðar eru af hlutaðeigandi yfirvöldum í innflutningslandi. Öll útflutningshross skulu vera örmerkt. Útflytjendur hrossa greiða kostnað við skoðun útflutningshrossa í útflutningshöfn samkvæmt gjaldskrá sem ráðherra setur að fenginni tillögu Matvælastofnunar. 3. gr. Flutningsför fyrir hross við útflutning skulu hafa fullnægjandi rými, loftræstingu og brynningu. Tryggja skal fóður, fóðrun og eftirlit með hrossunum á flutningstímanum. Matvælastofnun hefur eftirlit með að reglum um aðbúnað og umhirðu sé fylgt. Óheimilt er að flytja hross frá Íslandi með flutningsfari sem samtímis flytur dýr frá öðrum löndum. Hafi flutningsfar áður verið notað til flutnings á dýrum erlendis skal það þrifið og sótthreinsað áður en það kemur til landsins. Matvælastofnun hefur eftirlit með að reglum um þrif og sótthreinsun sé fylgt. Á tímabilinu 1. október til 15. maí er einungis heimilt að flytja hross til útlanda með flugvélum. 4. gr. Matvælastofnun getur ákveðið við sérstakar aðstæður að dýralæknir sé um borð í flutningsfari og hafi yfirumsjón með eftirliti hrossa í flutningi. Flutningsaðili greiðir allan kostnað sem fellur til vegna veru dýralæknis í flutningsfari. 5. gr. Hrossum sem eru flutt úr landi skal fylgja hestavegabréf frá Bændasamtökum Íslands er staðfesti uppruna, ætterni, eiganda og aðrar upplýsingar sem nauðsynlegar eru, meðal annars til að uppfylla kröfur þær sem innflutningslönd gera hverju sinni. Útflytjendur hrossa greiða gjald fyrir kostnað við útgáfu hestavegabréfa samkvæmt gjaldskrá sem ráðherra setur að fenginni tillögu Bændasamtaka Íslands. 6. gr. Af hverju útfluttu hrossi skal greiða [3.500 kr.] 1) gjald í stofnverndarsjóð skv. 15. gr. búnaðarlaga, nr. 70/1998. [Innheimtumaður ríkissjóðs] 1) annast innheimtu gjaldsins. 1)L. 124/2018, 1. gr. 7. gr. Ráðherra skipar fimm manna ráðgjafarnefnd um málefni er snerta útflutning hrossa. Nefndin er samráðsvettvangur stjórnvalda og þeirra sem að þeim málefnum vinna. Bændasamtök Íslands, Félag hrossabænda, Matvælastofnun og Félag hrossaútflytjenda tilnefna einn mann í nefndina hver en ráðherra skipar formann án tilnefningar. 8. gr. Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara, þar með talið um skoðun og merkingu útflutningshrossa, aðstöðu í útflutningshöfn og í flutningsfari, sóttvarnir og upplýsingar sem útflytjendum er skylt að leggja fram vegna útgáfu hestavegabréfa. 9. gr. Brot gegn lögum þessum og stjórnvaldsreglum settum samkvæmt þeim varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Mál út af brotum gegn lögum þessum sæta meðferð samkvæmt lögum um meðferð sakamála. 10. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. … Ákvæði til bráðabirgða. Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 2. gr. er heimilt til 1. nóvember 2011 að flytja út hross sem eru ekki örmerkt hafi þau verið frostmerkt.