跳到主要内容
Nelum
冰岛的法律

Act No. 162 on organic agricultural production

颁布于 1994-12-31 · 文本截至 2026-10-01

以研究形式发布的公开法律与官方指引,不构成法律、税务或金融建议。

研究内容本身以英文撰写。标题和标签已翻译,调查结果和引文未翻译。

research.laws.repealedOn

关于这部法律

原标题
Lög um lífræna landbúnaðarframleiðslu.
语言
Icelandic
类型
法令
组织
European Union
国家
冰岛
主题
Agricultural and rural development, Food and nutrition
关键词
ecological production/organic production, ecofriendly products/ecofriendly processes, certification, agricultural commodities, food safety and quality, packaging/labelling

在哪里阅读

    该法律没有记录来源链接。

文本

所收录的法律原文,按条款排列。每个条款都有自己的链接。

  1. Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2020. Útgáfa 150c. Prenta í tveimur dálkum. Lög um lífræna landbúnaðarframleiðslu 1994 nr. 162 31. desember Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga. Tóku gildi 10. janúar 1995. EES-samningurinn: II. viðauki reglugerð 2092/91. Breytt með: L. 150/2001 (tóku gildi 31. des. 2001; EES-samningurinn: I. og II. viðauki reglugerð 2092/91). L. 72/2003 (tóku gildi 10. apríl 2003). L. 62/2005 (tóku gildi 1. júlí 2005). L. 76/2005 (tóku gildi 1. jan. 2006). L. 34/2007 (tóku gildi 30. mars 2007). L. 167/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008). L. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 33/2018 (tóku gildi 1. jan. 2019 nema a-liður 2. gr. sem tekur gildi 1. jan. 2022). L. 32/2019 (tóku gildi 1. júlí 2019). L. 144/2019 (tóku gildi 21. des. 2019, birt í Stjtíð. 27. des. 2019). Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér. 1. gr. Tilgangur laga þessara er að tryggja að framleiðsla, úrvinnsla, flutningur, geymsla og dreifing landbúnaðarafurða sem framleiddar eru með lífrænum aðferðum lúti ákveðnum reglum á lögbýlum og í fyrirtækjum sem hafa fengið vottun til notkunar á vörumerki lífrænnar framleiðslu. 2. gr. Lög þessi taka til framleiðslu, vinnslu, flutnings, geymslu og dreifingar hvers konar lífrænna landbúnaðarafurða. [Ráðherra] 1) hefur á hendi yfirstjórn þeirra mála er lög þessi taka til. 1)L. 126/2011, 204. gr. 3. gr. [Matvælastofnun fer með stjórnsýslu og opinbert eftirlit samkvæmt lögum þessum. [Heilbrigðisnefnd fer með opinbert eftirlit á markaði undir yfirumsjón Matvælastofnunar.] 1) Matvælastofnun er heimilt að fela öðrum stofnunum, sjálfstæðum stofum eða einstaklingum að annast tiltekin verkefni sem eru á verksviði Matvælastofnunar samkvæmt lögum þessum að því tilskildu að þau hafi viðeigandi faggildingu. Ráðherra skal mæla nánar fyrir um skilyrði framsals með reglugerð.] 2) Faggildingu vottunarstofa annast [faggildingarsvið [Hugverkastofunnar] 3)] 4) í samræmi við reglugerð um starfsemi faggiltra vottunarstofa og nánari reglur er [ráðherra] 5) setur. 1)L. 144/2019, 39. gr. 2)L. 33/2018, 6. gr. 3)L. 32/2019, 4. gr. 4)L. 34/2007, 13. gr. 5)L. 126/2011, 204. gr. 4. gr. [Matvælastofnun] 1) veitir framleiðendum starfsleyfi að uppfylltum kröfum skv. 3. gr. og heldur skrá um öll lögbýli og fyrirtæki sem hafa fengið vottun um lífrænar framleiðsluaðferðir. Gerist þessir aðilar brotlegir getur [Matvælastofnun] 1) svipt þá starfsleyfi og heimild til að nota vörumerki um lífræna framleiðslu. 1)L. 167/2007, 68. gr. 5. gr. Forsvarsmönnum lögbýla eða fyrirtækja í lífrænni framleiðslu er skylt að veita [Matvælastofnun] 1) eða samningsbundnum vottunarstofum allar upplýsingar og þá aðstoð sem nauðsynleg er við vottunina, þar með talinn aðgang að hverjum þeim stað þar sem lífrænar landbúnaðafurðir eru unnar eða geymdar. Vottunarstofur skulu fara með upplýsingar sem þær afla sem trúnaðarmál. Skylt er að láta vottunarstofu í té án endurgjalds sýni af lífrænni framleiðslu til rannsókna. 1)L. 167/2007, 68. gr. 6. gr. [[Ráðherra] 1) setur reglugerð 2) þar sem tilgreindar eru lágmarkskröfur sem gerðar eru til vottaðra lífrænna framleiðsluhátta við íslenskar aðstæður í samræmi við grunnreglur Alþjóðasamtaka lífrænna landbúnaðarhreyfinga (IFOAM), skuldbindingar Íslands skv. I. og II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og skuldbindingar Íslands samkvæmt viðauka F við stofnsamning Fríverslunarsamtaka Evrópu.] 3) 1)L. 126/2011, 204. gr. 2)Rg. 219/1995, sbr. 90/1998, 395/1999 og 946/2000, sjá þó ákv. rg. 74/2002. Rg. 477/2017, sbr. 1042/2017, 326/2018, 559/2018, 784/2019 og 878/2020. Rg. 481/2017, sbr. 1048/2017, 506/2018, 1073/2018, 785/2019 og 517/2020. Rg. 285/2020. 3)L. 72/2003, 32. gr. 7. gr. [Hver sá sem brýtur gegn ákvæðum laga þessara eða reglna settra samkvæmt þeim skal sæta sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Sektir renna í ríkissjóð. … 1)] 2) 1)L. 88/2008, 233. gr. 2)L. 150/2001, 2. gr. 8. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.

Act No. 162 on organic agricultural production · Nelum