Skip to content
Nelum
Laws of Iceland

Regulation No. 470/2012 on fishing for halibut

Made 2012-05-30 · Text as of 2026-10-01

Public law and official guidance, published as research. Not legal, tax or financial advice.

About this law

Original title
Reglugerð um veiðar á lúðu.
Language
Icelandic
Kind
Regulation
Organisation
European Union
Country
Iceland
Subjects
Fisheries and aquaculture
Keywords
marine fisheries, fishing authorization, bycatch, protection of species, fishery management and conservation, data collection/reporting, authorization/permit, biodiversity

Where to read it

    No source link is recorded for this law.

Text

The law's own text, section by section, as held. Each section has its own link.

  1. Nr. 470 30. maí 2012 REGLUGERÐ um veiðar á lúðu. 1. gr. Allar beinar veiðar á lúðu (hvítlúðu) í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar, þ.m.t. veiðar með sérútbúnum krókum (haukalóðum). Leyfi til lúðuveiða skulu gefin út, fyrir hvert fiskveiðiár, þegar talið er, samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar, að lúðustofninn þoli veiðar. 2. gr. Komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli skal umsvifalaust sleppa lífvænlegri lúðu. Við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar. Við handfæra- og sjóstangaveiðar skal losa lúðuna varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð. 3. gr. Til að koma í veg fyrir að stórlúða fari í móttöku skips, er skylt við botnvörpuveiðar þar sem móttaka er lægra en aðalþilfar skipsins, að hafa rist þar sem fiski er hleypt í móttöku. Fiskistofu er heimilt að veita undanþágu frá notkun ristar, t.d. vegna smæðar báts. Þá er skipum sem stunda humarveiðar heimil undanþága frá notkun ristar. Rimlabil ristarinnar skal að hámarki vera 40 sm. Gildir þetta á svæði sem afmarkast af línu sem dregin er austur úr Dalatanga, réttsælis og allt að línu sem dregin er réttvísandi norðvestur úr Horni. 4. gr. Lúðuafli skal seldur á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafurðir. Lúðuafli sætir álagn ingu gjalds samkvæmt ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, með síðari breytingum. Það skal nema andvirði gjaldskylds afla. Uppgjör vegna lúðuafla skal skiptast á fjögur þriggja mánaða tímabil á fiskveiðiárinu. 5. gr. Skipstjóra er skylt að halda afladagbók, sbr. reglugerð nr. 557/2007, um afladagbækur, með síðari breytingum. Skrá skal í afladagbók upplýsingar s.s. um veiðarfæri, veiðistað og veiðidag, um þá lúðu sem sleppt er í hverju kasti/lögn/togi. 6. gr. Með mál sem kunna að rísa út af brotum á ákvæðum reglugerðar þessarar skal farið að hætti sakamála. Brot varða viðurlögum samkvæmt 17. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiði landhelgi Íslands, með síðar breytingum. 7. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr., 2. mgr. 7. gr. og 14. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, og 14. gr. laga nr. 37/1992 um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, og öðlast þegar gildi. Reglugerðina skal taka til endurskoðunar þegar skilyrði eru til útgáfu leyfa til lúðuveiða, sbr. 2. mgr. 1. gr. Nr. 470 30. maí 2012 Við gildistöku þessarar reglugerðar falla úr gildi reglugerð nr. 477/2011 um bann við notkun haukalóða við lúðuveiðar og reglugerð nr. 1164/2011 um bann við veiðum á lúðu, með síðari breytingu. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 30. maí 2012. F. h. r. Sigurgeir Þorgeirsson. Arnór Snæbjörnsson. B-deild – Útgáfud.: 1. júní 2012

Regulation No. 470/2012 on fishing for halibut · Nelum