Skip to content
Nelum
Laws of Iceland

Regulation No. 1048 on the monitoring of zoonoses (diseases transmitted between humans and animals) and pathogens

Made 2021-11-14 · Text as of 2026-10-01

Public law and official guidance, published as research. Not legal, tax or financial advice.

About this law

Original title
Reglugerð um vöktun súna (sjúkdóma sem smitast á milli manna og dýra) og súnuvalda.
Language
Icelandic
Kind
Regulation
Country
Iceland
Subjects
Livestock, Food and nutrition, General
Keywords
public health, integrated management, antimicrobial resistance (AMR), biosecurity, data collection/reporting, risk assessment/management, governance, animal health, pests/diseases, drugs, food safety and quality

Where to read it

    No source link is recorded for this law.

Text

The law's own text, section by section, as held. Each section has its own link.

  1. 1. Súnur sem eru af völdum veiru: – bikarveira (calicivirus), – gulusóttarveira (hepatitis A virus), – inflúensuveira (influenza virus), – hundaæði (rabies), – veirur sem berast með liðdýrum (arthropods).

  2. 2. Súnur sem eru af völdum bakteríu: – borrelíusýking og sjúkdómsvaldar hennar (borreliosis), – bótúlismi og sjúkdómsvaldar hans, – mjógyrmasótt og sjúkdómsvaldar hennar (leptospirosis), – páfagaukaveiki og sjúkdómsvaldar hennar (psittacosis), – aðrar tegundir af berklaveiki en tilgreint er í A-lið, – víbríuveiki og sjúkdómsvaldar hennar (vibriosis), – rauðmunnaveiki og sjúkdómsvaldar hennar (yersiniosis).

  3. 3. Súnur sem eru af völdum sníkla: – hringormaveiki og sjúkdómsvaldar hennar (anisakiasis), – launsporasýki og sjúkdómsvaldar hennar (cryptosporidiosis), – vöðvasullur og sjúkdómsvaldar hans (cysticercosis), – bogfrymlasótt og sjúkdómsvaldar hennar (toxoplasmosis).

  4. 4. Aðrar súnur og súnuvaldar. https://files.reglugerd.is/pdf/1048-2011/current Bls. 5 af 9 Nr. 1048/2011 Útgáfa í gildi frá 14. nóv. 2011 (Dags. skjals 26. maí 2022) II. Viðauki Kröfur við vöktun vegna þols gegn sýklalyfjum skv. 8. gr. A. Almennar kröfur. Matvælastofnun skal sjá til þess að vöktunin að því er varðar þol gegn sýklalyfjum, sem kveðið er á um í 8. gr., veiti a.m.k. eftirfarandi upplýsingar: 1. dýrategundir sem vöktunin tekur til, 2. bakteríutegundir og/eða -stofnar sem vöktunin tekur til, 3. sýnatökuaðferð sem er notuð við vöktun, 4. örverueyðandi efni sem vöktunin tekur til, 5. rannsóknaaðferðir sem notaðar eru til greiningar á þoli, 6. rannsóknaaðferðir sem notaðar eru til sanngreiningar á einangrum örvera, 7. aðferðir sem notaðar eru við gagnasöfnun. B. Sérkröfur. Matvælastofnun skal sjá til þess að vöktunarkerfi veiti a.m.k. viðeigandi upplýsingar að því er varðar dæmigerðan fjölda einangra Salmonella spp., Campylobacter jejuni og Campylobacter coli úr nautgripum, svínum og alifuglum og matvælum úr dýraríkinu sem eru unnin úr þessum tegundum. https://files.reglugerd.is/pdf/1048-2011/current Bls. 6 af 9 Nr. 1048/2011 Útgáfa í gildi frá 14. nóv. 2011 (Dags. skjals 26. maí 2022) III. Viðauki Kröfur varðandi skýrslur sem skal leggja fram samkvæmt 1. mgr. 10. gr. Í skýrslunni, sem um getur í 1. mgr. 10. gr., skulu vera a.m.k. eftirfarandi upplýsingar. A- til D-hluti á við um skýrslur um vöktun sem fer fram í samræmi við 6. eða 8. gr. E-hluti á við um skýrslur um vöktun sem fer fram í samræmi við 9. gr. A. Í fyrstu skal veita upplýsingar um eftirfarandi fyrir hverja súnu og súnuvald hennar (síðar skal einungis skýra frá breytingum): a. vöktunarkerfi (sýnatökuaðferðir, tíðni sýnatöku, tegund sýna, einstök tilfelli, greiningar-aðferðir sem notaðar eru), b. áætlanir varðandi bólusetningu og aðrar forvarnaraðgerðir, c. varnaraðgerðir og, ef við á, varnaráætlanir, d. ráðstafanir ef um jákvæðar niðurstöður eða einstök tilfelli er að ræða, e. fyrirliggjandi tilkynningarkerfi, f. þróun sjúkdóms og/eða smits í landinu fram til þessa. B. Á hverju ári skal veita eftirfarandi upplýsingar: a. viðkomandi smitnæmur dýrastofn (ásamt þeirri dagsetningu sem tölurnar eiga við um): – fjöldi hjarða eða hópa, – fjöldi dýra og, – ef við á, framleiðsluaðferðir sem notaðar eru, b. fjöldi og almenn lýsing rannsóknastofa og stofnana sem taka þátt í vöktun. C. Á hverju ári skal tilgreina eftirfarandi upplýsingar um hverjar súnur og hvern flokk gagna ásamt afleiðingum þegar því er að skipta: a. breytingar á kerfum sem þegar hefur verið lýst, b. breytingar á aðferðum sem þegar hefur verið lýst, c. niðurstöður úr rannsóknum og nánari greining eða aðrar aðferðir við lýsingu á eiginleikum á rannsóknastofum (sérstaklega fyrir hvern flokk sem skýrt er frá), d. mat innanlands á núverandi stöðu, leitni og uppruna sýkingar, e. mikilvægi sem súna, f. hvort jákvæðar niðurstöður úr rannsóknum á dýrum og matvælum skipta máli fyrir sjúkdómstilfelli í mönnum, g. viðurkenndar varnaraðgerðir sem væri hægt að nota til að koma í veg fyrir eða minnka hættuna á súnum, h. ef nauðsyn krefur, allar sértækar aðgerðir sem eru ákveðnar eða lagðar til. D. Skýrslugjöf um niðurstöður rannsókna. Í niðurstöðum skal tilgreina fjölda faraldsfræðilegra eininga (hópa, hjarða, sýna, framleiðslulota), sem eru rannsakaðar, og fjölda jákvæðra sýna út frá skilgreiningu tilfellis. Þegar nauðsyn krefur skal setja niðurstöðurnar þannig fram að þær sýni landfræðilega dreifingu súnunnar eða súnuvaldsins. E. Gögn um uppkomu matarborins sjúkdóms: a. heildarfjöldi sjúkdómsuppkoma á ári, https://files.reglugerd.is/pdf/1048-2011/current Bls. 7 af 9 Nr. 1048/2011 Útgáfa í gildi frá 14. nóv. 2011 (Dags. skjals 26. maí 2022) b. fjöldi dauðsfalla og veikinda meðal manna í þessum uppkomum sjúkdóma, c. sjúkdómsvaldar að uppkomu sjúkdóma, þ.m.t. sermigerð eða önnur tæmandi lýsing á sjúkdómsvöldunum ef unnt er. Þegar ekki er unnt að sanngreina sjúkdómsvald skal tilgreina ástæðuna fyrir því, d. matvæli sem tengjast uppkomu sjúkdóms og aðrir mögulegir smitberar, e. tegund staðar þar sem grunsamlegu matvælin voru framleidd eða keypt eða þeirra var aflað eða neytt, f. viðbótarþættir, t.d. skortur á hollustuháttum við vinnslu matvæla. https://files.reglugerd.is/pdf/1048-2011/current Bls. 8 af 9 Nr. 1048/2011 Útgáfa í gildi frá 14. nóv. 2011 (Dags. skjals 26. maí 2022) Fyrirvari Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005. Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða. https://files.reglugerd.is/pdf/1048-2011/current Bls. 9 af 9

Regulation No. 1048 on the monitoring of zoonoses (diseases transmitted between humans and animals) and pathogens · Nelum