Skip to content
Nelum
Laws of Iceland

Information Act (No. 140)

Made 2012-12-21 · Text as of 2026-10-01

Public law and official guidance, published as research. Not legal, tax or financial advice.

About this law

Original title
Upplýsingalög.
Language
Icelandic
Kind
Act
Organisation
European Union
Country
Iceland
Subjects
General
Keywords
access-to-information, public participation, governance, procedural matters, alternative dispute settlement, data collection/reporting, registration

Where to read it

    No source link is recorded for this law.

Text

The law's own text, section by section, as held. Each section has its own link.

  1. 1. Starfsemi hans er að mestu leyti rekin á kostnað ríkis eða sveitarfélaga, stofnana þeirra eða annarra opinberra aðila. Miðað skal við að aðili sé að mestu leyti rekinn á kostnað ríkis eða sveitarfélaga, stofnana þeirra eða annarra opinberra aðila ef opinber fjármögn- un nemur meira en 50% af árlegum rekstrarkostnaði.

  2. 2. Hann lýtur yfirstjórn ríkis eða sveitarfélaga, stofnana þeirra eða annarra opinberra aðila.

  3. 3. Hann lýtur sérstakri stjórn sem ríki eða sveitarfélög, stofnanir þeirra eða aðrir opinberir aðilar skipa að meiri hluta. Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. gilda ákvæði þessa kafla þó ekki um:

  4. 1. Ríkisútvarpið.

  5. 2. Skóla, bóka- og skjalasöfn eða rannsóknastofnanir.

  6. 3. Menningarstofnanir. Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. getur hlutaðeigandi ráðherra mælt svo fyrir í reglugerð að starf- semi stjórnvalds, sem undir hann heyrir og ákvæðið tekur til, falli engu að síður undir ákvæði þessa kafla í heild eða að hluta. 30. gr. Almennir skilmálar fyrir endurnotum opinberra upplýsinga. Heimilt er að endurnota opinberar upplýsingar sem eru almenningi aðgengilegar lögum samkvæmt, enda séu eftirfarandi skilyrði ávallt uppfyllt:

  7. 1. Endurnot upplýsinganna mega ekki brjóta í bága við lög, þ.m.t. ákvæði almennra hegn- ingarlaga, höfundalaga og laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, eða réttindi þriðja manns.

  8. 2. Geta skal uppruna upplýsinganna.

  9. 3. Skýrt skal koma fram hver ber ábyrgð á vinnslu upplýsinganna þegar þær eru gerðar öðrum aðgengilegar. 10 31. gr. Endurnot opinberra upplýsinga úr opinberum skrám. Þegar veittur er aðgangur að upplýsingum úr opinberum skrám skv. 1. mgr. 11. gr. eða ákvæðum sérlaga er stjórnvaldi heimilt að áskilja að endurnot upplýsinganna séu leyfisskyld og uppfylli sérstök skilyrði, svo sem um gæði upplýsinga, uppfærslu þeirra o.fl. Gæta skal samræmis og jafnréttis við útfærslu slíkra skilyrða og mega þau ekki takmarka möguleika á endurnotum upplýsinganna eða samkeppni óhóflega. Stjórnvöld skulu birta á vefjum sínum lista yfir þær skrár sem hafa að geyma upplýsingar í þeirra vörslum sem heimilt er að endurnota, svo og þau skilyrði sem slík endurnot eru bundin. Umsókn um leyfi fyrir endurnotum á upplýsingum úr opinberum skrám skal beint til þess stjórnvalds sem lögum samkvæmt ber ábyrgð á færslu og vinnslu upplýsinganna í hlutaðeig- andi skrá. Stjórnvald skal afgreiða umsókn um leyfi til endurnota á upplýsingum úr opinberum skrám svo fljótt sem verða má. Hafi beiðni ekki verið afgreidd innan 20 daga frá því að um- sókn barst skal skýra frá ástæðum tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta. Synji stjórnvald beiðni um að veita leyfi fyrir endurnotum á upplýsingum á grundvelli 2. tölul. 4. mgr. 28. gr. skal tilgreina nafn rétthafa eða umboðsmanns hans. Heimilt er að taka gjald fyrir að veita aðgang að upplýsingum úr opinberum skrám á grundvelli 2. og 3. mgr. 18. gr. Hlutaðeigandi stjórnvald skal setja sér gjaldskrá sem ráðherra staðfestir. Gjaldskrána skal birta í B-deild Stjórnartíðinda auk þess sem hún skal vera að- gengileg á vef stjórnvaldsins. Ekki þarf að greiða fyrir endurnot á upplýsingum sem falla undir ákvæði þessa kafla og eru háðar höfundarétti ríkis og sveitarfélaga, umfram það sem segir í 6. mgr., nema lög mæli sérstaklega svo fyrir. Tilgreina skal nafn rétthafa þegar stjórnvöld gera upplýsingar aðgengilegar almenningi á netinu á grundvelli samnings við þriðja mann sem á lögvarin réttindi yfir þeim samkvæmt höfundalögum. 32. gr. Bann við samningum um sérleyfi. Stjórnvöld mega ekki gera samninga um sérleyfi um endurnot opinberra upplýsinga sem ákvæði þessa kafla taka til, sbr. þó 2. mgr. Ef ætla má að opinberar upplýsingar verði ekki endurnotaðar í þágu almannahagsmuna nema á grundvelli sérleyfis er heimilt að gera slíkan samning enda komi fram í honum rök- stuðningur fyrir því. Endurmeta ber rök fyrir sérleyfissamningnum reglubundið og eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti. VIII. KAFLI Aðgangur að gögnum í rannsóknarskyni. 33. gr. Aðgangur að gögnum í rannsóknarskyni. Vegna rannsókna eða sambærilegrar starfsemi er stjórnvaldi, sbr. 1. mgr. 2. gr., heimilt að veita aðgang að gögnum sem undanþegin eru upplýsingarétti skv. II. og III. kafla, enda megi ætla að hægt sé að verða við umsókn án þess að skerða þá almanna- og einkahagsmuni sem ákvæðum kaflanna er ætlað að vernda. Í umsókn skal upplýst í hvaða tilgangi er óskað eftir aðgangi. Leyfi samkvæmt þessari málsgrein skal vera skriflegt. 11 Ef gögn stjórnvalds hafa að geyma viðkvæmar persónuupplýsingar, eins og þær eru skil- greindar í lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, eða ef miðlun felur í sér sérstaka hættu á að farið verði í bága við réttindi og frelsi skráðra aðila, skal stjórnvald afla samþykkis Persónuverndar áður en það miðlar upplýsingum. Persónuvernd setur nánari regl- ur um leyfisskylduna og getur ákveðið að skylda til að afla leyfis falli brott þegar settar hafa verið almennar reglur og öryggisstaðlar sem fylgja skuli við slíka miðlun. Stjórnvald getur sett aðgangi skv. 1. mgr. skilyrði. Skilyrðin skulu byggð á sjónarmiðum um eðli þeirra upplýsinga sem veittur er aðgangur að og tilgangi sem umsókn um aðgang byggist á. Stjórnvald getur sett sem skilyrði að: 1. upplýsingum um einkamálefni, þ.m.t. fjárhagsmálefni, sé ekki miðlað áfram, 2. ekki sé haft samband við einstaklinga sem nefndir eru í gagni eða skyld- og venslamenn þeirra, 3. gagn verði ekki birt í heild, 4. ekki verði tekið afrit af gagni, 5. upplýsingar sem veittur er aðgangur að verði ekki birtar í rannsóknarniðurstöðum á persónugreinanlegan hátt. Þegar sérstaklega stendur á er hægt að setja önnur skilyrði en fram koma í 3. mgr. 34. gr. Refsingar og skaðabætur. Sá sem fær aðgang að gögnum skv. 33. gr. má ekki birta, afhenda eða nota upplýsingar sem hann hefur þannig fengið aðgang að á annan hátt en mælt er fyrir um í leyfi stjórnvalds. Ef aðili, sem fengið hefur aðgang að gögnum skv. 33. gr., brýtur í bága við ákvæði 1. mgr. af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi varðar það sektum eða fangelsi allt að þremur árum. Nú brýtur aðili af sér skv. 1. mgr. af ásetningi eða gáleysi og má þá dæma hann til að greiða þeim sem upplýsingarnar varða bætur fyrir fjártjón og miska. IX. KAFLI Gildistaka o.fl. 35. gr. Gildistaka. Lög þessi öðlast þegar gildi. Þó skulu ákvæði 2. og 3. mgr. 2. gr. ekki koma til fram- kvæmda fyrr en sex mánuðum eftir gildistöku laganna. Við gildistöku laganna falla úr gildi upplýsingalög, nr. 50/1996, með síðari breytingum. Ákvæði laga þessara gilda um öll gögn og upplýsingar sem undir þau falla, án tillits til þess hvenær gögnin og upplýsingarnar urðu til eða hvenær þau hafa borist þeim sem skylt er að veita upplýsingar samkvæmt lögum þessum. Þrátt fyrir 2. mgr. gilda ákvæði laga þessara aðeins um þau gögn og upplýsingar í vörslu lögaðila skv. 2. mgr. 2. gr. og 3. gr. sem urðu til eftir gildistöku laga þessara. Á það þó ekki við þegar viðkomandi hefur verið falið að taka stjórnvaldsákvörðun. Ákvæði 1. tölul. 1. mgr. 12. gr. á aðeins við um þau gögn sem til verða eftir gildistöku laga þessara. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skulu ákvæði upplýsingalaga, nr. 50/1996, halda gildi sínu til 1. janúar 2016 gagnvart sveitarfélögum með íbúa undir 1.000 manns við gildistöku þessara laga. 12 36. gr. Breytingar á öðrum lögum. Við gildistöku laga þessara breytast eftirfarandi ákvæði laga sem hér segir:

  10. 1. Stjórnsýslulög, nr. 37/1993, með síðari breytingum: Í stað 1. mgr. 15. gr. laganna koma fjórar nýjar málsgreinar, svohljóðandi: Aðili máls á rétt á aðgangi að skjölum og öðrum gögnum er mál varða. Ef við verður komið skal veita aðgang að gögnum á því formi eða sniði og á þeim tungumálum sem þau eru varðveitt á, nema þau séu þegar aðgengileg almenningi með rafrænum hætti. Þegar skjöl eru eingöngu varðveitt á rafrænu formi getur aðili valið á milli þess að fá þau afhent á því formi eða útprentuð á pappír. Þegar skjöl eru mörg er heimilt að fela öðrum að sjá um ljósritun þeirra. Hið sama á við hafi sá sem afhendir gögn ekki aðstöðu til að ljósrita skjöl. Aðili skal þá greiða þann kostnað sem hlýst af ljósritun skjalanna. Hið sama gildir um afritun annarra gagna en skjala eftir því sem við á. Ráðherra ákveður með gjaldskrá hvað greiða skuli fyrir ljósrit og afrit gagna sem veitt eru samkvæmt lögum þessum þannig að mætt sé þeim kostnaði sem af því hlýst, þ.m.t. efniskostnaði, og kostnaði vegna vinnu starfsmanna og búnaðar. Ef fyrirsjáanlegt er að kostnaður við afritun eða ljósritun verði hærri en 10.000 kr. er heimilt að krefjast fyrirframgreiðslu.

  11. 2. Lög um Þjóðskjalasafn Íslands, nr. 66/1985, með síðari breytingum: a. Á eftir 2. mgr. 5. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Skilaskylda tekur einnig til lögaðila sem eru að 51% hluta eða meira í eigu hins opinbera. Þá tekur skilaskylda einnig til einkaréttarlegra lögaðila að því er varðar gögn sem til hafa orðið í starfsemi sem hann hefur tekið að sér að sinna á grundvelli 30. gr. laga um fjárreiður ríkisins, eða annarrar sambærilegrar lagaheimildar. Skila- skyldan á við gagnvart héraðsskjalasafni þegar viðkomandi aðilar eru í eigu sveitar- félaga. Skilaskyldan nær ekki til þeirra lögaðila sem undanþegnir eru gildissviði upp- lýsingalaga, sbr. 3. mgr. 2. gr. þeirra laga. b. Við lögin bætist ný grein sem verður 5. gr. a, svohljóðandi: Þjóðskjalasafn Íslands skal setja reglur um það hvernig skjalavörslu og skjala- stjórn í stjórnsýslu skilaskyldra aðila skuli hagað, svo og skráningu, flokkun og frá- gangi skjala til afhendingar til safnsins, þ.m.t. samþykkt skjalavistunarkerfa. Skilaskyldum aðilum skv. 1. mgr., sbr. 2. mgr. 5. gr. og 14. gr., er skylt að skrá mál sem koma til meðferðar hjá þeim á kerfisbundinn hátt og varðveita málsgögn þannig að þau séu aðgengileg í samræmi við reglur skv. 1. mgr. c. 9. gr. laganna orðast svo: Þjóðskjalasafni Íslands, eða eftir atvikum héraðsskjalasöfnum, er skylt, sé þess óskað, að veita almenningi aðgang að skjölum þegar liðin eru 30 ár frá því að þau urðu til enda gildi ekki þær takmarkanir sem fram koma í lögum þessum. Er þá mið- að við síðustu innfærslu eða síðasta bréf afgreidds máls. Heimilt er að miða við tilurð skjals ef meðferð máls hefur dregist á langinn hjá stjórnvaldi og ríkar ástæður mæla með því. Ef takmarkanir samkvæmt lögum þessum eiga aðeins við um hluta skjals skal veita aðgang að öðru efni skjalsins ef unnt er að skilja upplýsingar sem falla undir undantekningar frá þeim upplýsingum sem veita má aðgang að. d. Við lögin bætist ný grein, sem verður 9. gr. a, svohljóðandi: Þjóðskjalasafni Íslands er skylt, sé þess óskað, að veita almenningi aðgang að skjölum þegar liðin eru 80 ár frá því að þau urðu til þótt þar komi fram upplýsingar 13 er varða fjárhags- og einkamálefni einstaklinga, þar á meðal persónuupplýsingar sem teljast viðkvæmar í skilningi 8. tölul. 2. gr. laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, svo og upplýsingar um vernd vitna, brotaþola og annarra sem fjallað er um í skjölum hjá lögreglu, ákæruvaldi, dómstólum og stjórnvöldum sem hafa vald til að beita stjórnsýsluviðurlögum. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er óheimilt að veita aðgang að sjúkraskrám og öðrum skrám um heilsufarsupplýsingar nafngreindra manna fyrr en liðin eru 100 ár frá síð- ustu færslu í skrárnar. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er aðgangur að aðalmanntölum, prestsþjónustubókum og sóknarmanntölum heimill þegar liðin eru 50 ár frá því að upplýsingar voru færðar inn. e. Við lögin bætist ný grein, sem verður 9. gr. b, svohljóðandi: Óheimilt er að veita aðgang að skjölum sem hafa að geyma upplýsingar sem snerta virka og mikilvæga hagsmuni einstaklings eða fyrirtækis um atvinnu-, fram- leiðslu- eða viðskiptaleyndarmál. f. Við lögin bætist ný grein, sem verður 9. gr. c, svohljóðandi: Þegar sérstaklega stendur á getur þjóðskjalavörður ákveðið að synja um aðgang að skjali sem er yngra en 110 ára, svo sem þegar það hefur að geyma upplýsingar um einkamálefni einstaklings sem enn er á lífi. g. Við lögin bætist ný grein, sem verður 9. gr. d, svohljóðandi: Þjóðskjalasafni Íslands er skylt, sé þess óskað, að veita aðila sjálfum aðgang að skjölum um hann þegar liðin eru 30 ár frá því að þau urðu til enda gildi ekki þær tak- markanir sem fram koma í 9. gr. b. Heimilt er að takmarka aðgang aðila að gögnum skv. 1. mgr. ef þau hafa jafnframt að geyma upplýsingar um einkamálefni annarra, enda vegi þeir hagsmunir þyngra sem mæla með því að upplýsingunum sé haldið leyndum en hagsmunir þess sem fer fram á aðgang að gögnum. Ef ákvæði 9. gr. b. og 2. mgr. þessa ákvæðis eiga aðeins við um hluta skjals skal veita aðgang að öðru efni skjalsins ef unnt er að skilja upplýsingar sem falla undir undantekningar frá þeim upplýsingum sem veita má aðgang að. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. fer um rétt sjúklings til aðgangs að sjúkraskrá sinni ein- göngu samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár. h. Við lögin bætist ný grein, sem verður 9. gr. e, svohljóðandi: Um meðferð Þjóðskjalasafns, eða annarra aðila, á beiðnum skv. 9. gr. og 9. gr. a – 9. gr. d fer eftir ákvæðum IV. kafla upplýsingalaga, eftir því sem við getur átt. Frestur til afgreiðslu beiðna samkvæmt nefndum ákvæðum skal þó að jafnaði vera 20 dagar, sé ekki unnt að afgreiða beiðni fyrr. Um kæru vegna ákvarðana sem teknar eru á grundvelli þessara ákvæða fer eftir ákvæðum V. kafla upplýsingalaga. _____________ Samþykkt á Alþingi 21. desember 2012.

Information Act (No. 140) · Nelum