Skip to content
Nelum
Laws of Iceland

Act no. 99 on the production, pricing and sale of agricultural products

Made 1993-09-08 · Text as of 2026-10-01

Public law and official guidance, published as research. Not legal, tax or financial advice.

About this law

Original title
Lög um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum.
Language
Icelandic
Kind
Act
Organisation
European Union
Country
Iceland
Subjects
Agricultural and rural development, Livestock, Food and nutrition, Cultivated plants
Keywords
agricultural commodities, fiscal and market measures, animal production, food safety and quality, hygiene/sanitary procedures, institution, internal trade, international trade, milk/dairy products, meat, poultry products, governance, plant production, seeds/planting material, fertilizers/nutrients
Categories
*, agriculture

Where to read it

    No source link is recorded for this law.

Text

The law's own text, section by section, as held. Each section has its own link.

  1. 1.1. Umsamið innlent viðmiðunarverð í fríverslunar- og milliríkjasamningum sem Ísland er aðili að og bókunum við þá og tekur til hlutaðeigandi innflutnings.

  2. 1.2. Samkvæmt IV. kafla laga þessara ef verð er ákveðið og birt í samræmi við þær reglur.

  3. 1.3. Í samræmi við reglur 6. gr. laga nr. 97/1987, um vörugjald. 2. Erlent viðmiðunarverð skal ákveðið þannig eftir því sem við á um hlutaðeigandi innflutning:

  4. 2.1. Viðmiðunarverð sem lagt er til grundvallar samkvæmt verðjöfnunarákvæðum í bókun 3 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.

  5. 2.2. Viðmiðunarverð sem lagt er til grundvallar samkvæmt bókun 2 við samning milli Íslands og Efnahagsbandalags Evrópu.

  6. 2.3. Viðmiðunarverð sem lagt er til grundvallar í verðjöfnunarákvæðum í öðrum fríverslunarsamningum en skv. 2.1 og 2.2 sem Ísland er aðili að á hverjum tíma.

  7. 2.4. Viðmiðunarverð sem birt er sem heimsmarkaðsverð einstakra landbúnaðarhráefna af hálfu Evrópusambandsins eða fríverslunarsamtaka, og skal ráðherra ákveða nánar í reglugerð við hvaða verð miðað er á hverri hráefnistegund. Komi í ljós að framleiðendur vöru eigi kost á að kaupa hráefni á lægra verði en birtu viðmiðunarverði samkvæmt framangreindu í að minnsta kosti þrjá mánuði er ráðherra heimilt að ákveða tímabundið að miða við það verð sem sérstaklega ákvarðað viðmiðunarverð. Sé viðmiðunarverð ekki birt með framangreindum hætti skal viðmiðunarverð ákvarðað í samræmi við það verð sem framleiðendur eiga kost á að kaupa hráefni á. Landbúnaðarráðherra skal jafnan við ákvörðun verðjöfnunargjalds birta í reglugerð það innlenda og erlenda viðmiðunarverð sem notað er við ákvörðun gjaldsins. Jafnan skal miða við verð á sama sölustigi nema annað leiði af ákvæðum fríverslunar- og milliríkjasamninga. Verðjöfnunargjöld má leggja á sem krónutölu á magneiningu eða sem hlutfallslegt gjald. Ráðherra ákveður álagningu gjalda samkvæmt þessari grein í reglugerð. Álagning verðjöfnunargjalds skal vera í samræmi við þá skilmála sem kveðið er á um í fríverslunar- og milliríkjasamningum og takmarkast hverju sinni af því að verðjöfunargjald að viðbættum innflutningsgjöldum sé innan þeirra marka sem skilgreind eru í fríverslunar- og milliríkjasamningum sem Ísland er aðili að. … 4) Að því leyti sem eigi er ákveðið í lögum þessum eða reglugerð eða öðrum fyrirmælum settum samkvæmt lögum þessum um vöruflokkun, gjalddaga, innheimtu, lögvernd verðjöfnunargjalda, refsingar og aðra framkvæmd varðandi verðjöfnunargjöld skulu gilda eftir því sem við geta átt ákvæði tollalaga, nr. 55/1987, með síðari breytingum. Heimild landbúnaðarráðherra samkvæmt þessari grein skal koma í stað heimildar fjármálaráðherra skv. 120. gr. A í tollalögum, nr. 55/1987, með síðari breytingum, að því er varðar þær vörur sem grein þessi tekur til.] 5) 1) L. 101/2002, 4. gr. 2)Rg. 259/1996, sbr. 104/1999. 3)Um viðauka þessa vísast til Stjtíð. A 1994, bls. 74–83. 4)L. 87/1995, 21. gr. 5)L. 34/1994, 3. gr. [[85. gr.] Heimilt er að endurgreiða verðjöfnunargjöld við útflutning á vörum sem innihalda 1) landbúnaðarhráefni. Ráðherra ákveður með reglugerð þær vörur sem verðjöfnun tekur til og hver endurgreiðslan skuli vera. … ] 2) 3) 1) L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 87/1995, 22. gr. 3)L. 126/1993, 2. gr. [85. gr. A. Til þess að jafna samkeppnisstöðu innlendra vara við útflutning er landbúnaðarráðherra heimilt að greiða verðjöfnun við útflutning fullunninna vara sem innihalda innlend landbúnaðarhráefni. Verðjöfnun skal vera jöfn mismun á innlendu viðmiðunarverði og erlendu viðmiðunarverði hverrar tegundar hráefnis sem notað er við framleiðslu vörunnar. Greiðslur miðast við heimildir fjárlaga hverju sinni. Landbúnaðarráðherra gefur út reglugerð þar sem tilgreind skulu þau tollskrárnúmer sem heimilt er að greiða verðjöfnun fyrir, þær hráefnistegundir sem heimilt er að verðjafna, viðmiðunarverð innlendra landbúnaðarhráefna, erlend viðmiðunarverð sömu hráefna og nánari skilyrði verðjöfnunar. Í henni skal jafnframt kveðið á um tilhögun greiðslu og heimild ráðherra til að fresta greiðslum sem kunna að vera umfram fjárveitingar Alþingis hverju sinni. Sækja skal um verðjöfnun til landbúnaðarráðuneytis. Tollstjórinn í Reykjavík annast greiðslu verðjöfnunar að uppfylltum skilyrðum reglugerðar skv. 2. mgr.] 1) 1) L. 82/2003, 1. gr. [[86. gr.] Landbúnaðarráðherra getur ákveðið að lagður verði á tollur samkvæmt ákvæðum 1) 120. gr. tollalaga við innflutning á þeim vörum sem vísað er til í 1. mgr. 5. gr. samningsins um landbúnað í 1. viðauka A við samninginn um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar og merktar eru SSG í viðauka IIA í tollalögum. Ráðherra setur reglugerð þar sem m.a. skal kveðið á um þær vörur sem álagningin tekur til, viðmiðanir um verð og magn skv. a- og b-liðum 1. mgr. 5. gr. samningsins um landbúnað.] 2) 1) L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 87/1995, 23. gr. [[87. gr.] Landbúnaðarráðherra skipar þriggja manna nefnd sem skal vera til ráðuneytis um 1) ákvæði laga þessara um inn- og útflutning landbúnaðarvara. Einn skal skipaður án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar, annar skal tilnefndur af fjármálaráðherra og sá þriðji skal tilnefndur af viðskiptaráðherra. Varamenn skal skipa með sama hætti. Nefndin skal vera landbúnaðarráðherra til ráðuneytis um neðangreind atriði: a. Úthlutun tollkvóta skv. [65. gr. og 65. gr. A.] 1) b. Ákvörðun verðjöfnunargjalda við inn- og útflutning skv. [84. og 85. gr.] 1) c. Beitingu viðbótartolla skv. [86. gr.] 1) Nefndin skal afla allra upplýsinga um verð á viðkomandi landbúnaðarvörum innan lands og utan, framleiðslumagn, innflutning og útflutning og annað sem nauðsynlegt er vegna starfa hennar og gera tillögur til landbúnaðarráðherra um þau verkefni sem henni eru falin með lögum þessum.] 2) 1) L. 101/2002, 4. gr. 2)L. 87/1995, 24. gr. Ákvæði til bráðabirgða. A. […] 1) 2) B. … C. … 3) D. –F. … [G. …] 4) [H. …] 5) [I. …] 6) [J. …] 7) [K. [Heimilt er landbúnaðarráðherra, að fengnum tillögum verðlagsnefndar búvara, að verja til eftirfarandi verkefna eftirstöðvum af verðmiðlunargjöldum sem ekki hefur verið ráðstafað: 1. Rannsóknar- og þróunarverkefna í framleiðslu og vinnslu mjólkur. 2. Endurmenntunar er leiði til meiri gæða og hagræðingar í framleiðslu mjólkur. 3. Hagrannsókna vegna verðlagningar og úttekta á stöðu framleiðslu og/eða vinnslu mjólkur. 4. Lækkunar á tilteknum mjólkurafurðum.] ] 8) 9) [L. …] 10) [M. …] 11) [N. … ] 12) 13) [O. Verðmiðlunargjöld og verðskerðingargjöld, sem innheimt verða af verði til framleiðenda og af slátur- og heildsölukostnaði eftir 1. september 1998, skulu endurgreidd framleiðendum og sláturleyfishöfum í samræmi við ákvæði laga þessara.] 14) [P. Landbúnaðarráðherra skal leggja fyrir Alþingi eigi síðar en 1. febrúar 2002 frumvarp til laga um breytingu á IX. kafla laganna með nánari ákvæðum um álagsgreiðslur vegna gæðastýringar.] 15) [Q. Réttur til beingreiðslna skv. XI. kafla árin 2002 og 2003 skal takmarkaður við að hafin sé framleiðsla á viðkomandi vörutegund 1. mars 2002 í þeirri garðyrkjustöð sem sótt er um beingreiðslur vegna, eða vörutegundin hafi verið framleidd þar á árinu 2001. Þessi réttur er bundinn framleiðslustað en ekki framleiðanda.] 16) [R. Samningur milli ríkisstjórnar Íslands og Bændasamtaka Íslands um framleiðslu sauðfjárafurða frá 11. mars 2000 skal tekinn til endurskoðunar á árinu 2002.] 17) [S. Vegna frestunar á gildistökuákvæði um gæðastýrðan framleiðsluferil til 1. janúar 2004 skal sú fjárhæð sem beingreiðslur lækka um á árinu 2003, sbr. 39. gr., renna til greiðslu sérstaks álags á framleitt dilkakjöt á sama hátt og uppkaupaálag, sbr. 4. mgr. 38. gr.] 17) 1) L. 121/1995, 1. gr. 2)L. 99/1995, 2. gr. 3)Ákvæðinu var breytt með l. 147/1995, 3. gr. 4)L. 85/1994, 3. gr. 5)L. 141/1994, 2. gr. 6)L. 87/1995, brbákv. I. 7)L. 87/1995, brbákv. II. 8)L. 69/1998, 17. gr. 9)L. 99/1995, brbákv., sbr. l. 124/1995, 21. gr. 10)L. 124/1995, brbákv. I. 11)L. 124/1995, brbákv. II. 12)L. 77/1997, 3. gr. 13)L. 124/1995, brbákv. III. 14)L. 130/1998, brbákv. 15)L. 88/2000, brbákv. 16)L. 84/2002, brbákv. 17)L. 101/2002, 5. gr.

Act no. 99 on the production, pricing and sale of agricultural products · Nelum