Act No. 7 on hygiene and pollution prevention
Made 1998-03-12 · Text as of 2026-10-01
Public law and official guidance, published as research. Not legal, tax or financial advice.
About this law
- Original title
- Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir.
- Language
- Icelandic
- Kind
- Act
- Organisation
- European Union
- Country
- Iceland
- Subjects
- Livestock, Air and atmosphere, Environment, Food and nutrition, Waste and hazardous substances, General
- Keywords
- public health, pests/diseases, authorization/permit, hygiene/sanitary procedures, framework law, protection of environment, right to clean/healthy environment, pollution control, ecofriendly products/ecofriendly processes, soil pollution/quality, noise pollution, human rights, food safety and quality, emissions, air quality/air pollution, hazardous substances, effluent waste water/discharge, oil pollution, plastic
- Categories
- energy
Where to read it
No source link is recorded for this law.
Text
The law's own text, section by section, as held. Each section has its own link.
2. Eftirlit með [geymslugeymi] 2) og rekstri [geymslusvæðis]. 3)
3. Endurskoðun, uppfærslu og niðurfellingu starfsleyfa til [geymslu]. 4) https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 15/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi
4. Form og efni vöktunarskýrslna, umfang vöktunar og búnað til vöktunar og [geymslu]. 4)
5. Aðgang þriðja aðila að flutningskerfi koldíoxíðs og [geymslusvæði]. 3)
6. Lokun [geymslusvæða], 3) afturköllun starfsleyfis og flutning ábyrgðar.] 5) 1) L. 78/2024, 2. gr. 2)L. 67/2022, 5. gr. 3)L. 67/2022, 2. gr. 4)L. 67/2022, 4. gr. 5)L. 12/2021, 3. gr. [33. gr. c. [Könnun og starfsleyfi til geymslu.]1) [Geymslusvæði] 2) skal ekki starfrækt án starfsleyfis til [geymslu] 3) og aðeins einn rekstraraðili skal starfa á hverju [geymslusvæði]. 2) Rekstraraðili skal sækja um starfsleyfi til [geymslu] 3) hjá [Umhverfis- og orkustofnun]. 4) Umsókninni skulu m.a. fylgja [heildarmagn koldíoxíðs sem verður dælt niður og geymt], 1) könnun eða mat á hugsanlegum [geymslugeymi] 5) til [geymslu] 3) koldíoxíðs, fyrirhuguð vöktunaráætlun, fyrirhuguð áætlun um úrbætur, upplýsingar vegna mats á umhverfisáhrifum og fjárhagsleg trygging. [Í þeim tilvikum þegar könnun þarf að fara fram hefur handhafi könnunarleyfis einkarétt til könnunar á hugsanlegum geymslugeymi, auk forgangsréttar til starfsleyfis til geymslu á sama svæði að því tilskildu að könnun á svæðinu sé lokið, að öll skilyrði könnunarleyfis séu uppfyllt og að sótt sé um starfsleyfi til geymslu á gildistíma könnunarleyfis. Sækja skal um könnunarleyfi hjá [Umhverfis- og orkustofnun] 4).] 6) Ósamrýmanleg not [geymslugeymis] 5) eru óheimil [á gildistíma könnunarleyfis] 6) og á gildistíma starfsleyfis til [geymslu]. 3) … 6) [Umhverfis- og orkustofnun] 4) ber að senda Eftirlitsstofnun EFTA drög að starfsleyfi til [geymslu] 3) áður en leyfi er veitt.] 7) 1) L. 67/2022, 6. gr. 2)L. 67/2022, 2. gr. 3)L. 67/2022, 4. gr. 4)L. 110/2024, 8. gr. 5)L. 67/2022, 5. gr. 6)L. 78/2024, 3. gr. 7)L. 12/2021, 3. gr. [33. gr. d. [Samsetning koldíoxíðsstraums til geymslu.]1) [Koldíoxíðsstraumur skal vera að langmestu leyti úr koldíoxíði. Af þeim sökum má ekki bæta í hann úrgangi eða öðru efni í því skyni að farga úrganginum eða öðru efni. Koldíoxíðsstraumur getur þó innihaldið tilfallandi tengd efni úr uppsprettunni, fönguninni eða niðurdælingarferlinu og snefilefni sem bætt er í hann til að auðvelda vöktun og sannprófun á flæði koldíoxíðs. Styrkur allra tilfallandi og viðbættra efna skal ekki vera svo hár að hann: a. hafi skaðleg áhrif á áreiðanleika geymslusvæðis eða tengdra innviða, b. stofni umhverfinu eða heilbrigði fólks í hættu, c. brjóti í bága við kröfur annarrar viðeigandi löggjafar. Rekstraraðili skal sjá til þess að innihald koldíoxíðsstraums sé efnagreint og að fram fari áhættumat sem staðfesti að mengunarstig koldíoxíðsstraums sé í samræmi við kröfur 1. mgr.] 2)] 3) 1) L. 67/2022, 7. gr. 2)L. 78/2024, 4. gr. 3)L. 12/2021, 3. gr. [33. gr. e. Vöktun og skýrslugjöf. Vöktun rekstraraðila skal byggjast á vöktunaráætlun sem samþykkt hefur verið af [Umhverfis- og orkustofnun]. 1) Rekstraraðili skal vakta [geymslugeymi], 2) [geymslusvæði] 3) og niðurdælingarbúnað, auk nærliggjandi svæðis ef við á, á rekstrartímabili. Rekstraraðili skal skila vöktunarskýrslu til [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) einu sinni á ári.] 4) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 67/2022, 5. gr. 3)L. 67/2022, 2. gr. 4)L. 12/2021, 3. gr. [33. gr. f. Ábyrgð vegna leka eða umtalsverðrar hættu á leka og afturköllun starfsleyfis. Komi fram leki eða umtalsverð hætta á leka á [geymslusvæði] 1) er [Umhverfis- og orkustofnun] 2) heimilt að nýta fjárhagslega tryggingu, sem lögð hefur verið fram af rekstraraðila, til að bæta úr því https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 16/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi 3) ástandi, sbr. 1. mgr. [33. gr. k]. Ef [Umhverfis- og orkustofnun] 2) er tilkynnt um leka eða umtalsverða hættu á leka getur stofnunin, ef nauðsyn krefur, afturkallað starfsleyfi til [geymslu]. 4) Um ábyrgð á tjóni á umhverfi og loftslagi af völdum föngunar, flutnings og [geymslu koldíoxíðs] 5) fer samkvæmt lögum um umhverfisábyrgð og lögum um [viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir]. 6) 7) ] 1) L. 67/2022, 2. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 78/2024, 5. gr. 4)L. 67/2022, 4. gr. 5)L. 67/2022, 8. gr. 6)L. 106/2025, 11. gr. 7)L. 12/2021, 3. gr. [33. gr. g. Flutningur ábyrgðar. Ábyrgð á [geymslusvæði] 1) færist yfir til [Umhverfis- og orkustofnunar] 2) þegar [geymslusvæði] 1) hefur verið lokað, sbr. 16. gr., að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum: 1. [Öll tiltæk gögn benda til þess að koldíoxíð sé fullkomlega og varanlega aflokað.] 3) [2. Lágmarkstími sem [Umhverfis- og orkustofnun] 2) ákvarðar er liðinn. Sá lágmarkstími skal ekki vera styttri en 20 ár nema unnt sé að sýna fram á að koldíoxíð sé fullkomlega og varanlega aflokað áður en því tímabili lýkur.] 3) [3.] 3) Fjárhagslegar skyldur skv. [2. mgr. 33. gr. k] 3) eru uppfylltar. [4.] 3) [Geymslusvæði] 1) hefur verið lokað og öll mannvirki tengd niðurdælingu … 3) fjarlægð eða frá þeim gengið. Rekstraraðili ber ábyrgð á viðhaldi, vöktun, skýrslugjöf og ráðstöfunum til úrbóta á grundvelli áætlunar þar að lútandi sem [Umhverfis- og orkustofnun] 2) hefur samþykkt þar til ábyrgð flyst til [Umhverfis- og orkustofnunar] 2).] 4) 1) L. 67/2022, 2. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 78/2024, 6. gr. 4)L. 12/2021, 3. gr. [33. gr. h. [Aðgangur þriðja aðila að flutningskerfi og geymslusvæði. Mögulegir notendur skulu hafa aðgang að flutningskerfi koldíoxíðs og/eða geymslusvæði rekstraraðila, í þeim tilgangi að flytja þangað og dæla þar niður koldíoxíði til geymslu. Rekstraraðila er heimilt að innheimta fyrir það gjald. [Aðgangur sem um getur í 1. mgr. skal veittur á gagnsæjan hátt og án mismununar. Aðgangur skal veittur með sanngjörnum hætti án hindrana og hliðsjón skal höfð af: a. geymslugetu sem eðlilegt er að sé tiltæk á geymslusvæði, b. markmiði íslenskra stjórnvalda samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum um samdrátt í losun koldíoxíðs og reglum um föngun og geymslu koldíoxíðs í jörðu, c. nauðsyn þess að synja um aðgang í tilvikum þegar tækniforskriftir eru ósamrýmanlegar og erfitt er að bæta úr, d. nauðsyn þess að virða tilhlýðilega rökstuddar og eðlilegar þarfir eiganda eða rekstraraðila geymslusvæðis eða flutningskerfis og hagsmuni allra annarra sem nota geymsluna eða netið eða viðkomandi vinnslu- eða meðhöndlunarbúnað og kunna að verða fyrir áhrifum.] 1) … 1)] 2)] 3) 1) L. 78/2024, 7. gr. 2)L. 67/2022, 10. gr. 3)L. 12/2021, 3. gr. [33. gr. i. [Lausn deilumála vegna aðgangs að flutningskerfi og geymslusvæði.]1) Komi upp ágreiningur um aðgang að flutningskerfi og [geymslusvæði] 1) milli rekstraraðila og mögulegra notenda sker [Umhverfis- og orkustofnun] 2) úr. … 1) Rekstraraðila ber að veita allar viðeigandi upplýsingar sem geta stuðlað að lausn ágreinings. [Umhverfis- og orkustofnun] 2) skal taka ákvörðun svo fljótt sem auðið er. Ef ágreiningur nær yfir landamæri ber að vinna að úrlausn hans eftir þeim reglum er gilda í því landi sem hefur lögsögu yfir flutningskerfi koldíoxíðs og [geymslusvæði] 1) sem synjað hefur verið um aðgang að. [Falli viðkomandi flutningskerfi eða geymslusvæði undir fleiri en eitt ríki í deilumáli https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 17/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi sem nær yfir landamæri skulu hlutaðeigandi ríki hafa samráð sín á milli til þess að ákvæðum þessa kafla sé beitt á samræmdan hátt.] 3)] 4) 1) L. 67/2022, 11. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 78/2024, 8. gr. 4)L. 12/2021, 3. gr. [33. gr. j. Samstarf yfir landamæri. Ef koldíoxíð er flutt yfir landamæri eða ef geymslusvæðin eða geymslusamstæðurnar liggja yfir landamæri skulu lögbær yfirvöld hlutaðeigandi ríkja í sameiningu uppfylla kröfur laga þessara og annarrar viðeigandi löggjafar þeirra ríkja sem í hlut eiga.] 1) 1) L. 78/2024, 9. gr. [[33. gr. k.]1) Fjárhagslegar skyldur. Rekstraraðili skal, þegar hann sækir um starfsleyfi til [geymslu], 2) sýna fram á að hann sé með [fjárhagslega tryggingu fyrir allri starfsemi á geymslusvæði eða jafngildi tryggingar]. 3) [Rekstraraðili skal, áður en ábyrgð á geymslusvæði flyst til [Umhverfis- og orkustofnunar], 4) greiða fyrirsjáanlegan kostnað við vöktun þar til koldíoxíð er fullkomlega og varanlega aflokað. Miða skal við áætlaðan kostnað af vöktun í a.m.k. 30 ár.] 3)] 5) 1) L. 78/2024, 9. gr. 2)L. 67/2022, 4. gr. 3)L. 78/2024, 10. gr. 4)L. 110/2024, 8. gr. 5)L. 12/2021, 3. gr. [VII. kafli. [Umhverfisupplýsingar.]1)]2) 1) L. 58/2019, 7. gr. 2)L. 66/2017, 9. gr. [34. gr. [Umhverfisupplýsingar. [Rekstraraðili atvinnurekstrar, sbr. viðauka I–IV, sem hefur í för með sér losun mengandi efna skal eftir því sem við á árlega skila rafrænt til [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) upplýsingum um losun mengandi efna frá hverri starfsstöð og öðrum upplýsingum sem stofnunin telur þörf á til að sinna lögbundnu hlutverki sínu eftir því sem nánar er kveðið á um í reglugerð sem ráðherra setur, sbr. 5. gr.] 2) Rekstraraðili ber ábyrgð á þeim upplýsingum sem hann skilar til [Umhverfis- og orkustofnunar]. 1) [Umhverfis- og orkustofnun] 1) skal hafa á vefsvæði sínu upplýsingar um Evrópuskrá yfir losun og flutning mengunarefna, sbr. reglugerð um útstreymisbókhald.] 3)] 4) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 46/2022, 6. gr. 3)L. 58/2019, 6. gr. 4)L. 66/2017, 9. gr. [VIII. kafli. Umhverfismerki.]1) 1) L. 66/2017, 10. gr. [[35. gr.]1) [Umhverfismerki.]1) Umhverfismerki má veita vörutegund eða þjónustu sem uppfyllir viðmiðunarreglur fyrir viðkomandi vöruflokka eða þjónustu eins og nánar er mælt fyrir um í reglugerð sem ráðherra setur. Viðmiðunarreglur um veitingu umhverfismerkja byggjast á því að viðkomandi vara eða þjónusta valdi almennt minna umhverfisálagi en önnur sambærileg vara eða þjónusta á markaði. Þeim sem veitt hefur verið leyfi til að auðkenna vörur með umhverfismerki er heimilt að nota það í auglýsingar- og kynningarskyni. Öll notkun umhverfismerkja eða auglýsing vöru eða þjónustu sem gefur til kynna að umhverfismerki hafi verið veitt án þess að formleg viðurkenning þess efnis liggi fyrir er óheimil. [Umhverfis- og orkustofnun] 2) hefur yfirumsjón með framkvæmd löggjafar um umhverfismerki. Stofnunin sér um daglegan rekstur og alla umsýslu vegna norræna umhverfismerkisins Svansins og evrópska umhverfismerkisins Blómsins, svo sem meðferð umsókna og veitingu leyfa, og hefur jafnframt eftirlit með því að notkun umhverfismerkja sé í samræmi við lög og reglugerðir og samningsskilmála hverju sinni. [Umhverfis- og orkustofnun] 2) birtir viðmiðunarreglur umhverfismerkja á heimasíðu sinni. Viðmiðunarreglur Svansins er heimilt að birta á ensku eða norrænu máli öðru en finnsku. [Umhverfis- og orkustofnun] 2) veitir leiðbeiningar og beitir sér fyrir https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 18/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi kynningu á umhverfismerkjum sem og vörum og þjónustu sem veitt hefur verið umhverfismerki. Þá getur [Umhverfis- og orkustofnun], 2) gegn sérstöku gjaldi, veitt þeim fyrirtækjum ráðgjöf sem hyggjast auka innkaup á umhverfismerktum vörum. Ráðherra setur í reglugerð nánari fyrirmæli um umhverfismerki á vörur og þjónustu, m.a. um umsóknir, mat á umsóknum, veitingu merkjanna og eftirlit með þeim, svo og gjaldtöku, sbr. 4. og 5. mgr. [Umhverfis- og orkustofnun] 2) er heimilt að innheimta þjónustugjald fyrir meðferð umsókna um umhverfismerki, mat á umsóknum og eftirlit, sem og sérstakar leiðbeiningar til fyrirtækja um innkaup á umhverfisvottuðum vörum eða þjónustu, í samræmi við gjaldskrá sem ráðherra setur. Gjaldtakan skal taka mið af raunkostnaði við umsýslu umsóknar, eftirlit og leiðbeiningar til fyrirtækja. Í gjaldskrá skv. 4. mgr. er heimilt að kveða á um innheimtu árgjalds sem tengist veltu vöru- eða þjónustutegundar sem fengið hefur leyfi til að nota umhverfismerkið Svaninn. Við ákvörðun slíks gjalds skal tekið mið af gjaldskrá umhverfismerkisins Svansins annars staðar á Norðurlöndum. Við ákvörðun gjalds skal tilgreina hámarks- og lágmarksgjald samkvæmt reglum um evrópska umhverfismerkið Blómið sem teknar hafa verið upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sem sé þó aldrei hærra en sá meðalkostnaður sem [Umhverfis- og orkustofnun] 2) ber af vörum og þjónustu sem hlotið hafa umhverfismerki.] 3) 1) L. 66/2017, 10. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 144/2013, 3. gr. [IX. kafli. Loftgæði.]1) 1) L. 66/2017, 11. gr. [[36. gr.]1) [Loftgæði.]1) Ábyrgðaraðilar starfsleyfisskylds atvinnurekstrar, [sbr. viðauka I–IV, sem] 1) hefur í för með sér losun mengandi efna í andrúmsloft skulu gera viðeigandi ráðstafanir, þ.m.t. með umhverfisstjórnun og hreinsibúnaði, til að draga úr slíkri losun eftir því sem nánar er mælt fyrir um í reglugerð. Ráðherra skal í reglugerð 2) skilgreina og setja markmið um loftgæði, uppsetningu, staðsetningu og rekstur mælistöðva, og um skyldu atvinnurekstrar, [sbr. viðauka I–IV], 1) og annarra skv. 4. mgr. til að veita upplýsingar um loftgæði og losun mengandi efna út í andrúmsloftið. Í því skyni að vinna gegn loftmengun og skaða af hennar völdum og til að hafa eftirlit með framvindu og bættum loftgæðum skulu [Umhverfis- og orkustofnun], 3) sbr. [51. gr.], 1) og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga, sbr. [47. gr.], 1) afla upplýsinga, meta loftgæði, setja upp og reka mælistöðvar eftir því sem þörf er á, og tryggja að upplýsingar um loftgæði séu aðgengilegar almenningi, samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð. Heilbrigðisnefndum ber þó einungis að setja upp og reka mælistöðvar vegna hugsanlegs álags vegna umferðar eða starfsemi telji heilbrigðisnefnd eða sveitarfélag það nauðsynlegt. [Umhverfis- og orkustofnun] 3) heldur bókhald yfir losun tiltekinna efna sem menga andrúmsloftið, setur fram losunarspá og rekur loftgæðastjórnunarkerfi samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð. Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga skulu hafa aðgang að loftgæðastjórnunarkerfinu. [Umhverfis- og orkustofnun] 3) er heimilt að krefja stjórnvöld, stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga í atvinnurekstri um þau gögn og þær upplýsingar sem þau búa yfir varðandi starfsemi sína, rekstur og innflutning á vörum og stofnunin þarfnast vegna losunarbókhalds samkvæmt þessari grein. [Umhverfis- og orkustofnun] 3) skal haga gagnasöfnun sinni á þann hátt að fyrirhöfn upplýsingagjafa við að láta í té gögn sé hófleg. Hún skal leitast við að afla gagna úr stjórnsýsluskrám og öðrum opinberum skrám og gagnasöfnum þegar því verður við komið. Skylt er að veita [Umhverfis- og orkustofnun] 3) upplýsingarnar sem stofnunin þarfnast vegna losunarbókhalds á því formi sem hún óskar eftir eða um semst og innan þeirra tímamarka sem reglugerð sett skv. 13. tölul. 5. gr. kveður á um án þess að gjald komi fyrir. [Umhverfis- og orkustofnun] 3) skal upplýsa í hvaða tilgangi gagna er aflað. [Umhverfis- og orkustofnun] 3) flokkar og metur svæði og þéttbýlisstaði með tilliti til loftgæða https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 19/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð. Ráðherra gefur út til tólf ára í senn almenna áætlun um loftgæði sem gildir fyrir landið allt. [Umhverfis- og orkustofnun] 3) vinnur tillögu að áætluninni í samvinnu við heilbrigðisnefndir sveitarfélaga og leggur fyrir ráðherra, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök atvinnulífsins og fleiri aðila eftir því sem við á. Áætlunin skal taka mið af lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim og hafa það að markmiði að tryggja loftgæði. Í áætluninni skulu m.a. koma fram mælanleg markmið, upplýsingar um loftgæði í landinu og tímaáætlun, aðgerðir og stefnumörkun til að bæta loftgæði. [Umhverfis- og orkustofnun] 3) skal auglýsa drög að aðgerðaáætluninni í sex vikur þannig að hagsmunaaðilar, almenningur og stjórnvöld hafi tækifæri til að gera athugasemdir við hana. Almenningi skal tryggður aðgangur að áætluninni, m.a. á vefsetri [Umhverfis- og orkustofnunar]. 3) Áætlunina skal endurskoða á fjögurra ára fresti. Heilbrigðisnefndir sveitarfélaga skulu einar sér eða með samvinnu sín á milli gefa út áætlun um loftgæði á sínu svæði þar sem m.a. koma fram tímaáætlun, aðgerðir og stefnumörkun til að bæta loftgæði. Þá skulu heilbrigðisnefndir vinna viðbragðsáætlanir sem taka til skammtímaaðgerða varðandi loftgæði á þeirra svæði. Heilbrigðisnefndir skulu gefa út tilkynningar til almennings um loftgæði á þeirra svæði eftir því sem við á. Ef hætta er á að styrkur mengunarefna í andrúmslofti á tilteknu svæði eða tilteknum þéttbýlisstað fari yfir umhverfismörk samkvæmt ákvæðum í reglugerð skal hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd gera aðgerðaáætlun með það að markmiði að draga úr hættu sem af því ástandi stafar eða stytta tímabilið sem ástandið varir. Í aðgerðaáætluninni skal koma fram til hvaða skammtímaráðstafana verði gripið til að draga úr þeirri áhættu eða stytta þann tíma sem farið er yfir umhverfismörk. Heimilt er að gera slíka aðgerðaáætlun til skamms tíma ef áhættan á við um ein eða fleiri umhverfismörk eða markgildi sem tiltekin eru nánar í reglugerð 2) sem ráðherra setur skv. 5. gr. Heilbrigðisnefnd skal eftir því sem tök eru á hafa samráð við [Umhverfis- og orkustofnun], 3) aðrar heilbrigðisnefndir, viðkomandi sveitarfélag og forsvarsmenn hlutaðeigandi atvinnustarfsemi. [Umhverfis- og orkustofnun] 3) skal tryggja að almenningur og hlutaðeigandi hagsmunasamtök fái upplýsingar um gæði andrúmslofts, ákvarðanir um frestun og undanþágur og áætlanir um loftgæði, sbr. nánari ákvæði í reglugerð 2) sem ráðherra setur. Upplýsingarnar skulu vera aðgengilegar á vefsetri [Umhverfis- og orkustofnunar] 3) og vera í samræmi við lög nr. 44/2011, um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar. Ráðherra setur í reglugerð 2) nánari ákvæði um hvaða upplýsingar beri að veita og framsetningu þeirra.] 4) 1) L. 66/2017, 11. gr. 2)Rg. 920/2016. 3)L. 110/2024, 8. gr. 4)L. 144/2013, 3. gr. [X. kafli. Losun gróðurhúsalofttegunda.]1) 1) L. 66/2017, 12. gr. [37. gr. Losun gróðurhúsalofttegunda. Þegar um er að ræða losun gróðurhúsalofttegundar frá starfsemi sem tilgreind er í lögum um [viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir] 1) skal starfsleyfi fyrir viðkomandi starfsemi ekki fela í sér viðmiðunarmörk fyrir losun að því er varðar beina losun á þeirri lofttegund, nema það sé nauðsynlegt til að tryggja að engin veruleg staðbundin mengun eigi sér stað. Við starfsemi sem tilgreind er í lögum um [viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir] 1) er það undir [Umhverfis- og orkustofnun] 2) komið hvort hún gerir kröfur um orkunýtni brennslueininga eða annarra eininga sem losa koldíoxíð á staðnum. Ef nauðsyn krefur skal [Umhverfis- og orkustofnun] 2) gera breytingar á starfsleyfi eftir því sem við á, sbr. 1. og 2. mgr. sem og 14. gr. Framangreindar málsgreinar eiga ekki við um starfsemi sem tímabundið fellur ekki undir kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda, sbr. lög um [viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir]. 1)] 3) 1) L. 106/2025, 12. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 66/2017, 12. gr. https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 20/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi [X. kafli A. [Burðarpokar og plastvörur.]1)]2) 1) L. 90/2020, 6. gr. 2)L. 34/2019, 4. gr. [37. gr. a. Markmið um notkun burðarpoka úr plasti. Stefnt skal að því að ná tilteknum tölulegum markmiðum um notkun burðarpoka úr plasti. Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um töluleg markmið varðandi notkun burðarpoka úr plasti, sbr. 5. gr. Við setningu tölulegra markmiða skal m.a. höfð hliðsjón af kröfum í löggjöf Evrópusambandsins, stefnu um meðhöndlun úrgangs og svæðisáætlunum sveitarfélaga.] 1) 1) L. 34/2019, 4. gr. [37. gr. b. Afhending burðarpoka. Óheimilt er að afhenda burðarpoka án endurgjalds á sölustöðum vara og skal gjaldið vera sýnilegt á kassakvittun.] 1) 1) L. 34/2019, 4. gr. [37. gr. c. Bann við afhendingu burðarpoka úr plasti. Óheimilt er að afhenda burðarpoka úr plasti, hvort sem er gegn endurgjaldi eða ekki, á sölustöðum vara.] 1) 1) L. 34/2019, 4. gr. [37. gr. d. Merkingar. Aðilar sem afhenda burðarpoka við sölu á vöru skulu tryggja að burðarpokar séu merktir í samræmi við reglugerð sem ráðherra setur, sbr. 5. gr. [Einnota plastvörur sem settar eru á markað og nánar er kveðið á um í reglugerð, 1) sbr. 5. gr., skulu vera áberandi, auðlæsilega og óafmáanlega merktar til upplýsingar fyrir neytendur. Á tóbaksvörum skal merking koma til viðbótar áskilinni merkingu samkvæmt lögum um tóbaksvarnir.] 2)] 3) 1) Rg. 1144/2025. 2)L. 90/2020, 4. gr. 3)L. 34/2019, 4. gr. [37. gr. e. Bann við að setja tilteknar plastvörur á markað. Óheimilt er að setja á markað hverja þá vöru úr plasti sem er niðurbrjótanlegt með oxun. Þá er óheimilt að setja á markað eftirfarandi einnota plastvörur: a. baðmullarpinna, nema þeir falli undir lög um lækningatæki, b. hnífapör (gaffla, hnífa, skeiðar og matprjóna), c. diska, d. sogrör, nema þau falli undir lög um lækningatæki, e. hræripinna fyrir drykkjarvörur, f. stangir sem ætlaðar eru til að festa við blöðrur og sem halda þeim uppi, nema blöðrur séu til notkunar í iðnaði eða annarri atvinnustarfsemi og ekki ætlaðar til dreifingar til neytenda, þ.m.t. búnað á slíkar stangir, g. matarílát úr frauðplasti, með eða án loks, sem ætluð eru undir matvæli til neyslu á staðnum, annaðhvort á sölustað eða annars staðar, sem er alla jafna neytt beint úr ílátinu og eru tilbúin til neyslu án frekari tilreiðslu, svo sem eldunar, suðu eða hitunar, þ.m.t. matarílát sem eru notuð undir skyndibita eða aðra máltíð sem er tilbúin til neyslu á staðnum, h. drykkjarílát úr frauðplasti, þ.m.t. tappa þeirra og lok, og i. bolla og glös fyrir drykkjarvörur úr frauðplasti, þ.m.t. lok þeirra.] 1) 1) L. 90/2020, 5. gr. [37. gr. f. Afhending tiltekinna einnota plastvara. Óheimilt er að afhenda eftirfarandi einnota plastvörur án endurgjalds á sölustöðum: a. bolla og glös fyrir drykkjarvörur, þ.m.t. lok þeirra, og b. matarílát, með eða án loks, sem ætluð eru undir matvæli til neyslu, annaðhvort á sölustað eða https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 21/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi annars staðar, sem er alla jafna neytt beint úr ílátinu og eru tilbúin til neyslu án frekari tilreiðslu, svo sem eldunar, suðu eða hitunar, en að undanskildum umbúðum sem ætlaðar eru til að vefja utan um matvæli. Gjald skal vera sýnilegt á kassakvittun. Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð ákvæði um frekari ráðstafanir til að draga úr notkun einnota plastvara, sbr. 1. mgr., svo sem um töluleg markmið til að draga úr notkun þeirra og frekari skyldur í tengslum við sölu eða afhendingu einnota plastvara, t.d. ráðstafanir til að styðja við notkun fjölnota valkosta í stað einnota plastvara.] 1) 1) L. 90/2020, 5. gr. [37. gr. g. [Gerð og samsetning einnota plastvara.]1) [Eftirfarandi einnota plastvörur sem eru með tappa eða lok úr plasti er einungis heimilt að setja á markað ef tapparnir og lokin eru áfram föst við vörurnar meðan á tilætlaðri notkun þeirra stendur: drykkjarílát að rúmmáli allt að þremur lítrum sem eru notuð undir vökva, þ.m.t. tappar þeirra og lok, svo sem flöskur fyrir drykkjarvörur og samsettar umbúðir fyrir drykkjarvörur. Ákvæði þetta tekur ekki til bolla og glasa fyrir drykkjarvörur, drykkjaríláta úr gleri eða málmi sem eru með tappa eða lok úr plasti, drykkjaríláta sem eru ætluð fyrir og notuð undir matvæli sem eru í vökvaformi og notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi eða til tappa eða loka úr málmi sem eru með innsigli úr plasti.] 1) Einnota plastflöskur fyrir drykkjarvörur sem settar eru á markað skulu að lágmarkshluta gerðar úr endurunnu plasti eftir því sem nánar er kveðið á um í reglugerð, sbr. 5. gr.] 2) 1) L. 14/2025, 1. gr. 2)L. 90/2020, 5. gr. [37. gr. h. Ábyrgð framleiðenda og innflytjenda á plastvörum. Framleiðendur og innflytjendur eftirfarandi einnota plastvara bera ábyrgð á þeim: a. ílátum, með eða án loks, sem ætluð eru undir matvæli til neyslu á sölustað eða annars staðar sem er jafnan neytt beint úr viðkomandi íláti og eru tilbúin til neyslu án frekari tilreiðslu, svo sem eldunar, suðu eða hitunar, b. umbúðum úr sveigjanlegu efni, sem ætlaðar eru til að vefja utan um matvæli sem neytt er beint úr viðkomandi umbúðum án frekari tilreiðslu, c. drykkjarílátum að rúmmáli allt að þremur lítrum, þ.m.t. lok, en undanskilin eru drykkjarílát úr gleri eða málmi sem hafa lok úr plasti, d. drykkjarmálum, þ.m.t. lok, e. burðarpokum úr plasti sem eru þynnri en 50 μm, f. blautþurrkum til heimilis- og einkanota, g. loftbelgjum og blöðrum, að undanskildum loftbelgjum til nota í iðnaði eða annarri atvinnustarfsemi og ekki eru ætlaðir til dreifingar til neytenda, h. tóbaksvörum með síu og stökum síum fyrir tóbaksvörur. Í ábyrgð framleiðenda og innflytjenda, sbr. 1. mgr., felst að þeir skulu fjármagna eftirfarandi fræðslu og upplýsingagjöf til notenda viðkomandi vara um: a. úrgangsforvarnir, þ.m.t. um möguleika neytenda til að nota fjölnota vörur í stað einnota vara, b. rétta meðhöndlun varanna þegar þær eru orðnar að úrgangi, þ.m.t. um söfnunarkerfi sem til staðar er, c. áhrif þess að fleygja rusli á víðavangi og áhrif annarrar ófullnægjandi meðhöndlunar varanna þegar þær eru orðnar að úrgangi, einkum áhrif þeirra á sjávarumhverfi, og d. áhrif þess að losa vörurnar í fráveitu. Framleiðendum og innflytjendum skv. 1. mgr. ber jafnframt að fjármagna hreinsun á rusli á víðavangi sem er til komið vegna þessara vara, ásamt flutningi þess og annarri meðhöndlun. Framangreind hreinsun skal vera á hendi opinberra yfirvalda eða í þeirra umboði. Í ábyrgð framleiðenda og innflytjenda vara skv. a–e-lið og h-lið 1. mgr. felst að þeir skulu fjármagna https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 22/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi söfnun þessara vara, þegar þær eru orðnar að úrgangi, í söfnunarkerfum sveitarfélaga eða annarra opinberra aðila, þ.m.t. er kostnaður við nauðsynlega innviði, rekstur þeirra og sérstaka söfnun þegar við á samkvæmt lögum um meðhöndlun úrgangs. Í ábyrgðinni felst jafnframt að fjármagna meðhöndlun úrgangsins eftir söfnun, í samræmi við lög um meðhöndlun úrgangs. Í tilfelli vara skv. h-lið 1. mgr. skal fjármögnun ná til uppbyggingar sérstakra innviða sem nauðsynlegir eru til fullnægjandi söfnunar varanna, svo sem söfnunaríláta sem komið er fyrir á almannafæri. Í ábyrgð framleiðenda og innflytjenda vara skv. f–h-lið 1. mgr. felst að þeir skulu fjármagna öflun nauðsynlegra upplýsinga um þær vörur sem þeir setja á markað hér á landi og nauðsynlegra gagna um söfnun og aðra meðhöndlun þeirra þegar þær eru orðnar að úrgangi, ásamt öðrum upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að uppfylla markmið laga þessara varðandi þessar vörur. Framleiðendur og innflytjendur veiðarfæra sem innihalda plast bera ábyrgð á þeim veiðarfærum sem innihalda plast sem framleidd eru hér á landi eða flutt eru inn. Í ábyrgðinni felst að þeir skulu fjármagna sérstaka söfnun veiðarfæra sem innihalda plast sem handhafar þeirra losa sig við í móttökuaðstöðu hafna fyrir úrgang og farmleifar frá skipum, sbr. lög um varnir gegn mengun hafs og stranda, eða í önnur sambærileg söfnunarkerfi. Í ábyrgðinni felst jafnframt að fjármagna meðhöndlun úrgangs sem er safnað í samræmi við lög um meðhöndlun úrgangs. Framleiðendur og innflytjendur veiðarfæra sem innihalda plast skulu jafnframt fjármagna eftirfarandi fræðslu og upplýsingagjöf til notenda veiðarfæra sem innihalda plast um: a. úrgangsforvarnir, þ.m.t. um möguleika til endurnotkunar veiðarfæra, b. rétta meðhöndlun veiðarfæra þegar þau eru orðin að úrgangi, þ.m.t. um söfnunarkerfi sem til staðar er, og c. áhrif þess að losa veiðarfæri annars staðar en í viðunandi söfnunarkerfi og áhrif annarrar ófullnægjandi meðhöndlunar þeirra þegar þau eru orðin að úrgangi, einkum áhrif þeirra á sjávarumhverfi. Erlendum framleiðanda og innflytjanda einnota plastvara skv. 1. mgr. og veiðarfæra sem innihalda plast er heimilt að tilnefna viðurkenndan fulltrúa sinn hér á landi með skriflegu umboði sem skal vera ábyrgur fyrir því að uppfylla skyldur framleiðandans samkvæmt lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Framleiðandi og innflytjandi einnota plastvara skv. 1. mgr. og veiðarfæra sem innihalda plast sem selur einnota plastvörur eða veiðarfæri til notenda í öðru EES-ríki skal tilnefna viðurkenndan fulltrúa í því ríki með skriflegu umboði sem skal vera ábyrgur fyrir því að uppfylla skyldur framleiðandans og innflytjandans samkvæmt lögum þessum. Óheimilt er að setja á markað, selja hér á landi eða taka til eigin nota í atvinnuskyni einnota plastvörur sem taldar eru upp í 1. mgr. eða veiðarfæri sem innihalda plast nema framleiðandi og innflytjandi þeirra greiði úrvinnslugjald, sbr. lög um úrvinnslugjald. Undanskilin eru drykkjarílát skv. c-lið 1. mgr. sem falla undir ákvæði laga um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur en framleiðandi og innflytjandi þeirra skal greiða skilagjald og umsýsluþóknun samkvæmt þeim lögum. Úrvinnslusjóður skal: a. safna upplýsingum um magn einnota plastvara skv. 1. mgr. og veiðarfæra sem innihalda plast sem framleidd eru eða flutt inn, um magn einnota plastvara skv. 1. mgr. og veiðarfæra sem innihalda plast sem safnað er og ráðstöfun þeirra og skila upplýsingunum til [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) fyrir 1. apríl ár hvert fyrir undangengið ár, að undanskildum drykkjarílátum skv. c-lið 1. mgr. sem falla undir ákvæði laga um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, b. stuðla að fullnægjandi fræðslu og upplýsingagjöf skv. 2. og 5. mgr. í samvinnu við [Umhverfis- og orkustofnun], 1) fullnægjandi hreinsun á rusli á víðavangi skv. 2. mgr. og fullnægjandi söfnun og meðhöndlun úrgangs skv. 3. og 4. mgr., að undanskildum ákvæðum er varða drykkjarílát skv. c-lið 1. mgr. sem falla undir ákvæði laga um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 23/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi fyrir drykkjarvörur, og c. ná tölulegum markmiðum um söfnun, undirbúning fyrir endurnotkun, endurvinnslu, endurnýtingu og förgun einnota plastvara skv. 1. mgr. og veiðarfæra sem innihalda plast, að undanskildum drykkjarílátum skv. c-lið 1. mgr. sem falla undir ákvæði laga um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur. Hlutafélagið sem tekur að sér umsýslu skilagjalds svo og söfnun og endurvinnslu einnota umbúða er falla undir lög um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur skal: a. safna upplýsingum um magn einnota plastvara skv. c-lið 1. mgr. sem framleiddar eru eða fluttar eru inn, um magn einnota plastvara skv. c-lið 1. mgr. sem safnað er og ráðstöfun þeirra og skila þeim til [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) fyrir 1. apríl ár hvert fyrir undangengið ár, að því er varðar drykkjarílát sem falla undir ákvæði laga um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, b. stuðla að fullnægjandi fræðslu og upplýsingagjöf skv. 2. mgr. í samvinnu við [Umhverfis- og orkustofnun], 1) fullnægjandi hreinsun á rusli á víðavangi skv. 3. mgr. og fullnægjandi söfnun og meðhöndlun úrgangs skv. 4. mgr., að því er varðar drykkjarílát skv. c-lið 1. mgr. sem falla undir ákvæði laga um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, og c. ná tölulegum markmiðum um söfnun, undirbúning fyrir endurnotkun, endurvinnslu, endurnýtingu og förgun einnota plastvara skv. c-lið 1. mgr., að því er varðar drykkjarílát sem falla undir ákvæði laga um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur.] 2) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 103/2021, 2. gr. [XI. kafli. Skyldur rekstraraðila.]1) 1) L. 66/2017, 13. gr. [38. gr. Meginreglur um grundvallarskyldur rekstraraðila. Rekstraraðilar atvinnurekstrar, sbr. viðauka I–II, skulu tryggja að starfsemi þeirra sé rekin í samræmi við eftirfarandi meginreglur: a. að gerðar séu allar viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir mengun, b. að notuð sé besta aðgengilega tækni, c. að starfsemin leiði ekki til umtalsverðrar mengunar, d. að komið sé í veg fyrir myndun úrgangs í samræmi við lög um meðhöndlun úrgangs, e. að úrgangur sem verður til sé útbúinn fyrir endurnotkun, endurunninn, endurheimtur eða, þar sem það er tæknilega eða fjárhagslega ómögulegt, honum fargað um leið og forðast er eða dregið úr öllum áhrifum á umhverfið, f. að orka sé vel nýtt, g. að nauðsynlegar ráðstafanir séu gerðar til að koma í veg fyrir slys eða takmarka afleiðingar þeirra slysa sem geta orðið, h. að nauðsynlegar ráðstafanir séu gerðar þegar starfsemi er stöðvuð endanlega til að komast hjá allri hættu á mengun og koma staðnum, þar sem starfsemin fer fram, aftur í viðunandi horf eins og skilgreint er í 16. gr.] 1) 1) L. 66/2017, 13. gr. [39. gr. Óhöpp og slys. Við óhöpp eða slys sem hafa umtalsverð áhrif á umhverfið skal hlutaðeigandi rekstraraðili, sbr. viðauka I–IV, í samræmi við ákvæði laga um umhverfisábyrgð: a. upplýsa [Umhverfis- og orkustofnun] 1) tafarlaust um óhappið eða slysið, og b. grípa tafarlaust til ráðstafana til að takmarka afleiðingarnar fyrir umhverfið og til að fyrirbyggja frekari möguleg óhöpp eða slys. https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 24/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi [Umhverfis- og orkustofnun] 1) skal krefjast þess að rekstraraðilinn grípi til viðeigandi viðbótarráðstafana sem stofnunin telur nauðsynlegar til að takmarka afleiðingar fyrir umhverfið og til að fyrirbyggja frekari möguleg óhöpp eða slys.] 2) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 66/2017, 13. gr. [40. gr. Skyldur rekstraraðila. Rekstraraðilar, sbr. viðauka [I–IV], 1) skulu tryggja að starfsemi þeirra sé í samræmi við ákvæði laga þessara, reglugerða settra samkvæmt þeim, starfsleyfisskilyrði og almennar kröfur, sbr. 8. gr. Ef frávik verða skal rekstraraðili upplýsa eftirlitsaðila tafarlaust um það og grípa tafarlaust til nauðsynlegra ráðstafana til að tryggja að öllum kröfum vegna starfseminnar sé framfylgt eins fljótt og auðið er.] 2) 1) L. 66/2020, 7. gr. 2)L. 66/2017, 13. gr. [41. gr.]1) [Undanþága ráðherra.]1) Þegar sérstaklega stendur á getur ráðherra, að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar eða [Umhverfis- og orkustofnunar], 2) veitt undanþágu frá einstökum greinum reglugerða sem settar eru skv. 4. og 5. gr. Ráðherra setur almenn ákvæði í reglugerð um valdsvið, skyldur og starfstilhögun heilbrigðisnefnda og heilbrigðisfulltrúa, þar með talið um þátttöku í eftirlits-, rannsóknar- og vöktunarverkefnum. 1) L. 66/2017, 14. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. [[41. gr. a.]1) … 2)] 3) 1) L. 66/2017, 15. gr. 2)L. 58/2019, 8. gr. 3)L. 87/2001, 4. gr. [42. gr.]1) [Álit heilbrigðisnefnda.]1) Sveitarstjórnir, byggingarnefndir og önnur yfirvöld sveitarfélaganna, sem og ríkisstofnanir, skulu leita álits heilbrigðisnefndar um hvers konar ráðstafanir vegna framkvæmda sem lög þessi taka til. 1) L. 66/2017, 16. gr. [XII. kafli.]1) Stjórn, skipan og starfsmenn. 1) L. 66/2017, 25. gr. [43. gr.]1) [Stjórn mála.]1) [Ráðherra] 2) fer með yfirstjórn mála samkvæmt lögum þessum. Á varnarsvæðum fer [hlutaðeigandi ráðherra] 2) með lögsögu samkvæmt lögum nr. 106/1954 og skal hann semja við þar til bæra aðila samkvæmt mati [Umhverfis- og orkustofnunar] 3) um framkvæmd eftirlits á varnarsvæðum. [Hlutaðeigandi ráðherra] 2) skal hafa samráð við [ráðherra] 2) um alla framkvæmd eftirlits á varnarsvæðum og gilda lög þessi eftir því sem við á. Landlæknir er ráðgjafi ráðherra um það er að lögum þessum lýtur og undir embætti hans fellur. Við setningu reglugerða samkvæmt lögum þessum skal haft samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga um atriði er varða skyldur sveitarfélaga. 1) L. 66/2017, 17. gr. 2)L. 126/2011, 258. gr. 3)L. 110/2024, 8. gr. [44. gr.]1) [Heilbrigðiseftirlit.]1) Ekkert sveitarfélag skal vera án heilbrigðiseftirlits og greiða sveitarfélögin kostnað við eftirlitið að svo miklu leyti sem lög mæla ekki fyrir á annan veg. 1) L. 66/2017, 18. gr. [45. gr.]1) [Eftirlitssvæði.]1) [Landið skiptist í eftirlitssvæði og skal heilbrigðisnefnd, kosin eftir hverjar https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 25/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi sveitarstjórnarkosningar, starfa á hverju svæði. Í hverri nefnd skulu eiga sæti sex menn, fimm kosnir af hlutaðeigandi sveitarstjórnum, þar af skal einn vera formaður, og einn tilnefndur af samtökum atvinnurekenda á eftirlitssvæðinu. Atkvæði formanns ræður úrslitum ef atkvæði falla jafnt í nefndinni. Náttúruverndarnefndir sveitarfélaga á eftirlitssvæðinu eiga rétt á að tilnefna einn fulltrúa í nefndina til viðbótar en hann hefur ekki atkvæðisrétt við afgreiðslu mála í nefndinni. Sömu reglur gilda um varamenn.] 2) Eftirlitssvæði skv. 1. mgr. eru:
1. Reykjavíkursvæði. Starfssvæði: Reykjavíkurborg.
2. Vesturlandssvæði. Starfssvæði: Vesturlandskjördæmi.
3. Vestfjarðasvæði. Starfssvæði: Vestfjarðakjördæmi.
4. Norðurlandssvæði vestra. Starfssvæði: Norðurlandskjördæmi vestra.
5. Norðurlandssvæði eystra. Starfssvæði: Norðurlandskjördæmi eystra.
6. Austurlandssvæði. Starfssvæði: Austurlandskjördæmi.
7. Suðurlandssvæði. Starfssvæði: Suðurlandskjördæmi.
8. Suðurnesjasvæði. Starfssvæði: Reykjanesbær, Grindavíkurkaupstaður, Sandgerðisbær, Gerðahreppur og Vatnsleysustrandarhreppur.
9. Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæði. Starfssvæði: Hafnarfjarðarkaupstaður, Bessastaðahreppur, Garðabær og Kópavogsbær.
10. Kjósarsvæði. Starfssvæði: Seltjarnarneskaupstaður, Mosfellsbær og Kjósarhreppur. [Ráðherra] 3) getur í reglugerð, 4) að höfðu samráði við hlutaðeigandi sveitarfélög og að fenginni umsögn [Umhverfis- og orkustofnunar], 5) kveðið á um sameiningu eftirlitssvæða. Heimilt er heilbrigðisnefndum að gera samkomulag um annað fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits á milli eftirlitssvæða. Í slíkum tilvikum hafa heilbrigðisfulltrúar sama rétt til afskipta þar og á eigin svæði. 1) L. 66/2017, 19. gr. 2)L. 59/1999, 1. gr. 3)L. 126/2011, 258. gr. 4)Rg. 1110/2021. 5)L. 110/2024, 8. gr. [46. gr.]1) [Fjárhagsáætlanir og gjaldskrár.]1) Heilbrigðisnefndir skulu fyrir 1. nóvember ár hvert gera fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár þar á eftir, innan fjárhagsramma sem sveitarfélög setja, og senda hana til viðkomandi sveitarfélaga til umfjöllunar og afgreiðslu. Sveitarfélög bera ábyrgð á fjármálum og rekstri heilbrigðiseftirlits á viðkomandi svæði. Þau hafa umsjón með fjármálum þess, skiptingu kostnaðar milli sveitarfélaga og álagningu eftirlitsgjalda. Við kostnaðarskiptingu skal miða við að allar tekjur af eftirlitsskyldri starfsemi á svæðinu renni í sameiginlegan sjóð til greiðslu rekstrarkostnaðar heilbrigðiseftirlits á svæðinu. Sá kostnaður sem eftirlitsgjöld standa ekki undir greiðist af sveitarfélögunum í samræmi við íbúafjölda næstliðins árs. Náist ekki samkomulag milli sveitarfélaga innan eftirlitssvæðis um hvaða sveitarfélag annist fjárreiður fyrir heilbrigðiseftirlitið skal [ráðherra] 2) úrskurða hvert þeirra skuli annast fjárreiðurnar að fenginni umsögn hlutaðeigandi sveitarfélaga. [Heilbrigðisnefndir skulu fyrir 1. ágúst ár hvert birta á vefsvæði sínu skýrslu um starfsemi sína, þar sem fram komi yfirlit um helstu verkefni og áherslur undangengins árs, ásamt ársreikningi. Heilbrigðisnefndum er heimilt að setja gjaldskrá og innheimta gjald fyrir: https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 26/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi
1. Útgáfu starfsleyfa og vottorða, sem og endurskoðun eða breytingar á starfsleyfum, sbr. 6. gr.
2. Skráningu rekstraraðila, sbr. 8. gr.
3. Eftirlit, þ.m.t. sýnatöku, sbr. 47. gr.
4. Eftirfylgni eftirlits og beitingu þvingunarúrræða, sbr. XVII. kafla.] 3) [… 3) Upphæð [gjalds skv. 4. mgr.] 3) skal byggð á rekstraráætlun þar sem þau atriði eru rökstudd sem ákvörðun gjalds við viðkomandi eftirlit byggist á og má gjaldið ekki vera hærra en sá kostnaður. Hvert eftirlitssvæði skal hafa sameiginlega gjaldskrá og skal hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd láta birta hana í B-deild Stjórnartíðinda. Gjöld má innheimta með fjárnámi. Gjöld skulu tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign tvö ár eftir gjalddaga þegar leyfi eða þjónusta er tengd notkun fasteignar. Heimilt er [hlutaðeigandi ráðherra] 2) að setja gjaldskrá og innheimta gjald á varnarsvæðum. [Ráðherra] 2) skal gefa út leiðbeinandi reglur 4) um uppbyggingu gjaldskráa … 3)] 5) 1) L. 66/2017, 20. gr. 2)L. 126/2011, 258. gr. 3)L. 58/2019, 9. gr. 4) Augl. 254/1999. 5)L. 59/1999, 2. gr. [47. gr.]1) [Hlutverk heilbrigðisnefnda.]1) Heilbrigðisnefnd ber að sjá um að framfylgt sé ákvæðum laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim, samþykktum sveitarfélaga og ákvæðum í sérstökum lögum eða reglum sem nefndinni er eða kann að vera falið að annast um framkvæmd á. Nefndin skal vinna að bættu heilbrigðiseftirliti á svæði sínu, annast fræðslu fyrir almenning og efla samvinnu við önnur yfirvöld og aðila sem vinna að þessum málum. 1) L. 66/2017, 21. gr. [48. gr.]1) [Verkaskipting.]1) Heilbrigðisnefnd skiptir með sér verkum og ræður meiri hluti atkvæða afgreiðslu máls. Telst afgreiðsla fullnægjandi séu þrír atkvæðisbærra nefndarmanna viðstaddir. Um vanhæfi nefndarmanna til afgreiðslu mála gilda ákvæði sveitarstjórnarlaga. [Heilbrigðisnefnd getur falið framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits eða tilteknum heilbrigðisfulltrúum afgreiðslu einstakra mála í tilteknum málaflokkum sem undir heilbrigðisnefnd heyra og henni er ætlað að sinna samkvæmt lögum og reglugerðum. Heimilt er að kveða á um slíkt framsal heilbrigðisnefndar eftir atvikum í samstarfssamningi, í samþykktum um heilbrigðiseftirlit á hverju eftirlitssvæði eða í sérstakri samþykkt sem heilbrigðisnefnd samþykkir og birt er í B-deild Stjórnartíðinda.] 2) Framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits eða heilbrigðisfulltrúi í umboði hans skal sitja fundi nefndarinnar með málfrelsi og tillögurétti. Hann getur krafist þess að fundir verði haldnir og að tekin verði þar fyrir tiltekin mál. Fulltrúar [Umhverfis- og orkustofnunar] 3) eiga rétt til setu á fundum heilbrigðisnefnda með tillögurétti og málfrelsi. [Yfirlæknir heilsugæslu á viðkomandi eftirlitssvæði, tilnefndur af landlækni], 4) skal vera ráðgjafi og heilbrigðisnefndum til aðstoðar um heilbrigðisþjónustu. [Yfirlæknir heilsugæslu] 4) á seturétt á fundum heilbrigðisnefndar með málfrelsi og tillögurétti. [Yfirlæknir heilsugæslu] 4) getur krafist þess að haldinn verði fundur í heilbrigðisnefnd. 1) L. 66/2017, 22. gr. 2)L. 58/2019, 10. gr. 3)L. 110/2024, 8. gr. 4)L. 98/2002, 5. gr. [49. gr.]1) [Heilbrigðisfulltrúar.]1) Heilbrigðisnefndir á hverju eftirlitssvæði ráða heilbrigðisfulltrúa til að annast eftirlit sveitarfélaganna með þeim viðfangsefnum sem undir lögin falla. Starfi einungis einn heilbrigðisfulltrúi á eftirlitssvæði skal hann jafnframt vera framkvæmdastjóri eftirlitsins. Ef heilbrigðisfulltrúarnir eru tveir eða fleiri skal einn úr hópi þeirra jafnframt ráðinn framkvæmdastjóri eftirlitsins. [Starfi að minnsta kosti fimm heilbrigðisfulltrúar á viðkomandi eftirlitssvæði í fullu starfi er heimilt að víkja frá því skilyrði að framkvæmdastjóri hafi réttindi sem heilbrigðisfulltrúi, enda sé hann í fullu starfi sem framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits og hafi, auk háskólaprófs, staðgóða https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 27/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi 2) þekkingu á heilbrigðiseftirliti.] Sveitarstjórnir setja þeim starfslýsingar að fengnum tillögum heilbrigðisnefndar og ákveða í samráði við heilbrigðisnefnd aðsetur þeirra. Eingöngu má ráða í starf heilbrigðisfulltrúa þá sem fengið hafa leyfi [ráðherra] 3) til starfans. Heilbrigðisfulltrúar starfa í umboði heilbrigðisnefndar. [Ráðherra] 3) setur reglugerð 4) um menntun, réttindi og skyldur heilbrigðisfulltrúa. 1) L. 66/2017, 23. gr. 2)L. 87/2001, 5. gr. 3)L. 126/2011, 258. gr. 4)Rg. 571/2002. [50. gr.]1) [Þagnarskylda og upplýsingar.]1) [Þeir sem starfa samkvæmt lögum þessum af hálfu stjórnvalda eru bundnir þagnarskyldu skv. X. kafla stjórnsýslulaga.] 2) Upplýsingar og tilkynningar heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga til fjölmiðla skulu vera efnislega rökstuddar og þess gætt að einstakar atvinnugreinar, stofnanir eða fyrirtæki bíði ekki tjón og álitshnekki að óþörfu. Sama gildir um aðra sem starfa samkvæmt lögum þessum. 1) L. 66/2017, 24. gr. 2)L. 71/2019, 5. gr. [XIII. kafli.]1) [Umhverfis- og orkustofnun.]2) 1) L. 66/2017, 29. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. [51. gr.]1) [Eftirlit.]1) [[Umhverfis- og orkustofnun] 2) annast eftirlit með framkvæmd laga þessara og er stjórnvöldum til ráðuneytis um málefni er undir lögin falla.] 3) Stofnunin hefur yfirumsjón með heilbrigðiseftirliti og skal sjá um vöktun og að rannsóknir þessu tengdar séu framkvæmdar. Í yfirumsjón felst samræming heilbrigðiseftirlits þannig að framkvæmdin sé með sama hætti á landinu öllu. [Til framfylgdar ákvæðum laga þessara um plastvörur skal [Umhverfis- og orkustofnun] 2) m.a.: 1. hafa samræmt eftirlit með markaðssetningu, afhendingu, merkingum og gerð og samsetningu plastvara, sbr. 37. gr. d – 37. gr. g, á landinu öllu, og 2. útbúa ár hvert áætlun um eftirlit með plastvörum, sbr. 1. tölul., sem gildir fyrir landið allt þar sem gætt er sérstaklega að hagkvæmni í eftirliti og komið í veg fyrir tvíverknað og skörun eftir því sem frekast er unnt, [3. hafa samstarf við Úrvinnslusjóð og Skattinn um framkvæmd eftirlits við innflutning og markaðssetningu plastvara samkvæmt lögum þessum]. 4)] 5) Stofnunin fer því aðeins með beint eftirlit að lög mæli svo fyrir eða ráðherra ákveði það með reglugerð að höfðu samráði við stofnunina þegar um landið allt er að ræða og við heilbrigðisnefndir þegar um einstök svæði er að ræða. Öll starfsemi stofnunarinnar, sem er í samkeppnisrekstri, skal vera fjárhagslega aðgreind frá annarri starfsemi hennar. Undir þetta fellur m.a. sala á þjónustu, ráðgjöf, rannsóknum og prófunum og hvers konar eftirlitsstarfsemi sem þar kann að vera stunduð. Stofnunin skal sjá um gerð fræðsluefnis og upplýsa og fræða þá er starfa að heilbrigðiseftirliti. 1) L. 66/2017, 26. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 164/2002, 15. gr. 4)L. 103/2021, 3. gr. 5)L. 90/2020, 7. gr. [52. gr.]1) [Samræming heilbrigðiseftirlits.]1) [Umhverfis- og orkustofnun] 2) skal vinna að samræmingu heilbrigðiseftirlits í landinu og koma á samvinnu þeirra er að málum þessum starfa og skal í slíkum tilvikum sérstaklega gæta að hagkvæmni í eftirliti og fyrirbyggja tvíverknað og skörun eftir því sem frekast er unnt. Stofnunin skal hafa nána samvinnu við heilbrigðisnefndir og heilbrigðisfulltrúa og veita þá ráðgjöf og þjónustu varðandi heilbrigðiseftirlit sem hún getur og aðstæður krefjast. Þá skal stofnunin vinna að samræmingu krafna sem gerðar eru til starfsemi á sviði heilbrigðiseftirlits og að því að slíkum kröfum sé framfylgt. Til þess að stuðla sem best að þessu markmiði gefur stofnunin út leiðbeiningar og viðmiðunarreglur um framkvæmdina [sem heilbrigðisnefndum ber að fylgja]. 3) 1) L. 66/2017, 27. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 98/2002, 6. gr. https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 28/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi [53. gr.]1) [Gjaldskrá [Umhverfis- og orkustofnunar]2).]1) [[Umhverfis- og orkustofnun] 2) er heimilt að taka gjald fyrir: 1. [Námskeið, útgáfu] 3) starfsleyfa og vottorða, sem og endurskoðun eða breytingar á starfsleyfum, sbr. 6. gr., [og bráðabirgðaheimild fyrir starfsemi, sbr. 7. gr. a]. 4) [2. Skráningu rekstraraðila, sbr. 8. gr.] 3) [3. Könnunarleyfi, sbr. VI. kafla A.] 5) [4.] 5) Eftirlit, þ.m.t. sýnatöku, sbr. 51. gr. [5.] 5) Eftirfylgni eftirlits og beitingu þvingunarúrræða, sbr. XVII. kafla. [6.] 5) Álagningu stjórnvaldssekta, sbr. 67. gr.] 6) Ráðherra setur, að fengnum tillögum [Umhverfis- og orkustofnunar], 2) gjaldskrá fyrir veitta þjónustu og verkefni sem stofnuninni er falið að annast eða stofnunin tekur að sér … 6). Upphæð gjalds skal taka mið af kostnaði við þjónustu og framkvæmd einstakra verkefna og skal byggð á rekstraráætlun þar sem þau atriði eru rökstudd sem ákvörðun gjalds byggist á. Gjaldið má ekki vera hærra en sá kostnaður. Gjaldskrá skal birt í B-deild Stjórnartíðinda. Gjöld má innheimta með fjárnámi. 1) L. 66/2017, 28. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 46/2022, 7. gr. 4)L. 28/2023, 4. gr. 5)L. 78/2024, 11. gr. 6)L. 58/2019, 11. gr. [XIV. kafli. [Eftirlit með atvinnurekstri og athöfnum.]1)]2) 1) L. 46/2022, 10. gr. 2)L. 66/2017, 30. gr. [54. gr. [Eftirlit með starfsleyfis- og skráningarskyldum atvinnurekstri.]1) Eftirlit skal vera með atvinnurekstri, sbr. viðauka [I–IV], 2) sem tekur til athugunar á öllum þáttum umhverfisáhrifa viðkomandi starfsemi sem máli skipta sem og hollustuhátta. Rekstraraðili skal aðstoða eftirlitsaðila eins og nauðsyn krefur til að gera eftirlitsaðilanum kleift að framkvæma hvers kyns eftirlit með starfseminni, taka sýni og afla allra upplýsinga sem eru þeim nauðsynlegar við framkvæmd eftirlitsins. [Umhverfis- og orkustofnun] 3) skal gera eftirlitsáætlun sem taki til atvinnurekstrar, sbr. viðauka [I– IV], 2) og skal áætlunin endurskoðuð reglulega og uppfærð eftir því sem við á. Á grundvelli eftirlitsáætlana gerir eftirlitsaðili reglulega áætlanir um reglubundið eftirlit með atvinnurekstri samkvæmt viðaukum [I–IV], 2) þ.m.t. um tíðni vettvangsheimsókna fyrir mismunandi starfsemi. Tímabilið milli tveggja vettvangsheimsókna skal byggjast á kerfisbundnu mati á umhverfisáhættu viðkomandi starfsemi og skal, fyrir starfsemi samkvæmt viðaukum I og II, ekki vera lengra en eitt ár fyrir starfsemi sem veldur mestri áhættu en þrjú ár fyrir starfsemi sem veldur minnstri áhættu. Eftir hverja vettvangsheimsókn skal eftirlitsaðili taka saman skýrslu með lýsingu á því sem fram kom og skiptir máli varðandi það hvort starfsemin sé í samræmi við starfsleyfisskilyrðin og niðurstöðum um hvort frekari aðgerðir eru nauðsynlegar. Skýrslan skal gerð aðgengileg á vefsvæði eftirlitsaðila eftir að rekstraraðili hefur fengið tækifæri til að koma að athugasemdum og brugðist hefur verið við þeim. Athugasemdirnar skulu eftir atvikum birtar með skýrslunni.] 4) 1) L. 46/2022, 8. gr. 2)L. 66/2020, 7. gr. 3)L. 110/2024, 8. gr. 4)L. 66/2017, 30. gr. [54. gr. a. Eftirlit með annarri starfsemi og athöfnum. Eftirlitsaðili getur haft eftirlit með starfsemi og athöfnum sem eru hvorki starfsleyfis- né skráningarskyldar í því skyni að kanna hvort starfsemin eða athafnirnar séu í samræmi við ákvæði laga þessara og reglugerða sem settar eru á grundvelli 4. og 5. gr., sbr. hlutverk eftirlitsaðila skv. 47. og 51. gr. Ákvæði 2.–5. mgr. 54. gr. gilda um eftirlit með slíkri starfsemi og athöfnum eftir því sem við á og um frávik fer samkvæmt ákvæðum 55. gr. og um þvingunarúrræði skv. XVII. kafla.] 1) 1) L. 46/2022, 9. gr. [55. gr. Frávik. https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 29/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi Eftirlitsaðili skal hafa eftirlit með atvinnurekstri, sbr. viðauka [I–IV], 1) til að tryggja að farið sé að skilyrðum fyrir viðkomandi starfsemi. Ef frávik verða skal eftirlitsaðili krefja rekstraraðila um að gera hverjar þær viðeigandi viðbótarráðstafanir sem eftirlitsaðilinn telur nauðsynlegar til að koma reglufylgni á aftur. [Heilbrigðisnefnd skal upplýsa [Umhverfis- og orkustofnun] 2) um frávik þar sem til álita kemur að beita stjórnvaldssektum, sbr. 67. gr.] 3)] 4) 1) L. 66/2020, 7. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 58/2019, 12. gr. 4)L. 66/2017, 30. gr. [XV. kafli.]1) Faggilding og innra eftirlit. 1) L. 66/2017, 34. gr. [56. gr.]1) [Faggilding.]1) Ráðherra getur, að höfðu samráði við [Umhverfis- og orkustofnun], 2) ákveðið með reglugerð að stofnunin skuli hljóta faggildingu vegna rannsóknar á vegum stofnunarinnar. Ráðherra er jafnframt heimilt að ákveða með reglugerð, að höfðu samráði við [Umhverfis- og orkustofnun], 2) að starfsemi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga skuli hljóta faggildingu vegna rannsóknar og eftirlits og þá hvernig að henni skuli staðið. Um faggildingu fer samkvæmt [ lögum nr. 24/2006, um faggildingu o.fl.] 3) 1) L. 66/2017, 31. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 58/2019, 13. gr. [57. gr.]1) [Innra eftirlit.]1) [Ráðherra ákveður í reglugerð kröfur um gæðastjórnun og innra eftirlit í fyrirtækjum sem eru eftirlitsskyld samkvæmt lögum þessum. Heimilt er ráðherra að kveða þar á um að innra eftirlit skuli að hluta eða í heild sæta úttekt faggilts aðila. Þar skal einnig m.a. kveðið á um umfang opinbers eftirlits og ákvörðun eftirlitsgjalda sem taka mið af innra eftirliti þeirra fyrirtækja sem eftirlitið beinist að.] 2) 1) L. 66/2017, 32. gr. 2)L. 125/2005, 1. gr. [58. gr.]1) [Framsal eftirlits.]1) Heilbrigðisnefndum og [Umhverfis- og orkustofnun] 2) er heimilt að fela tiltekna þætti heilbrigðiseftirlitsins faggiltum skoðunaraðilum. Skal í slíkum tilvikum gerður sérstakur samningur við hinn faggilta skoðunaraðila, sbr. 30. gr. laga um fjárreiður ríkisins, nr. 88/1997. Heimild til að knýja á um framkvæmd ráðstöfunar og annað sem greint er frá í [XVII. kafla] 1) er þó eingöngu í höndum heilbrigðisnefndar eða [Umhverfis- og orkustofnunar] 2) eftir því sem við á. … 3) 1) L. 66/2017, 33. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 101/2019, 28. gr. [XVI. kafli.]1) Samþykktir sveitarfélaganna. 1) L. 66/2017, 34. gr. [59. gr.]1) [Samþykktir.]1) [Sveitarfélög geta sett sér eigin samþykktir um atriði sem ekki er fjallað um í reglugerðum eða gert um einstök atriði ítarlegri kröfur en fram koma í þeim, enda falli þau undir lögin. Heimilt er auk annars að setja í slíkar samþykktir ákvæði um: 1. bann eða takmörkun gæludýrahalds og húsdýrahalds, 2. meðferð úrgangs og skolps, 3. gjaldtöku fyrir leyfi, leigu eða veitta þjónustu, 4. ábyrgðartryggingar. Heilbrigðisnefnd semur drög að samþykktum og breytingum á þeim og leggur fyrir viðkomandi sveitarstjórn sem afgreiðir þau í formi samþykktar til ráðherra. Sé um að ræða nýmæli í samþykktum sveitarfélaga skal ráðherra leita umsagnar [Umhverfis- og orkustofnunar] 2) áður en hann staðfestir samþykktina. https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 30/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi Synji ráðherra staðfestingar endursendir hann samþykktina til sveitarstjórnar með leiðbeiningum um hvað þurfi til að til staðfestingar komi. Samþykktir samkvæmt þessari grein skulu birtar í B-deild Stjórnartíðinda á kostnað hlutaðeigandi sveitarfélaga. Heimilt er sveitarfélögum að setja gjaldskrá um innheimtu gjalda skv. 1. mgr. … 3). Gjöld mega aldrei vera hærri en sem nemur rökstuddum kostnaði við veitta þjónustu eða framkvæmd eftirlits með einstökum þáttum. Gjöld skulu tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign tvö ár eftir gjalddaga þegar leyfi, leiga eða þjónusta er tengd notkun fasteignar. Sveitarfélag skal láta birta gjaldskrá í B-deild Stjórnartíðinda. Gjöld má innheimta með fjárnámi.] 4) 1) L. 66/2017, 35. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 58/2019, 14. gr. 4)L. 59/1999, 3. gr. [XVII. kafli.]1) Valdsvið og þvingunarúrræði. 1) L. 66/2017, 34. gr. [60. gr.]1) [Áminning. Til að knýja á um framkvæmd ráðstöfunar samkvæmt lögum þessum, reglugerðum, [starfsleyfum] 2) eða samþykktum sveitarfélaga er [Umhverfis- og orkustofnun] 3) eða heilbrigðisnefnd heimilt að veita viðkomandi aðila áminningu. Jafnframt skal veita hæfilegan frest til úrbóta ef þeirra er þörf.] 4) 1) L. 66/2017, 36. gr. 2)L. 46/2022, 11. gr. 3)L. 110/2024, 8. gr. 4)L. 58/2019, 15. gr. [61. gr.]1) [Dagsektir og verk á kostnað aðila.]1) Þegar aðili sinnir ekki fyrirmælum innan tiltekins frests getur heilbrigðisnefnd [eða [Umhverfis- og orkustofnun] 2)] 3) ákveðið honum dagsektir þar til úr er bætt. [Dagsektir geta numið allt að 500.000 kr. á dag. Við ákvörðun fjárhæðar dagsekta skal m.a. höfð hliðsjón af alvarleika brotsins, hvað það hefur staðið lengi og hvort um ítrekað brot er að ræða.] 3) Jafnframt er heilbrigðisnefnd [eða [Umhverfis- og orkustofnun] 2)] 3) heimilt að láta vinna verk á kostnað hins vinnuskylda ef fyrirmæli um framkvæmd eru vanrækt og skal kostnaður þá greiddur til bráðabirgða af viðkomandi heilbrigðiseftirliti en innheimtast síðar hjá hlutaðeigandi. … 3) Þegar verk það sem heilbrigðisnefnd [eða [Umhverfis- og orkustofnun] 2)] 3) lætur vinna er komið til vegna vanhirðu og óþrifa eða heilsuspillandi aðstæðna í húsi, á lóð eða í farartæki er kostnaður tryggður með lögveðsrétti í viðkomandi húsi, lóð eða farartæki tvö ár eftir að greiðslu er krafist. [Ákvarðanir [Umhverfis- og orkustofnunar] 2) og heilbrigðisnefnda um dagsektir og kostnað eru aðfararhæfar. Gjalddagi sektar samkvæmt þessari grein er fyrsti dagur annars mánaðar eftir dagsetningu ákvörðunar [Umhverfis- og orkustofnunar] 2) eða heilbrigðisnefndar. Greiða skal dráttarvexti af fjárhæð sektarinnar sé hún ógreidd fimmtán dögum eftir gjalddaga. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir lögum um vexti og verðtryggingu. Óinnheimtar dagsektir, sem lagðar eru á fram að efndadegi, falla ekki niður eftir gjalddaga þótt aðili efni viðkomandi kröfu nema [Umhverfis- og orkustofnun] 2) eða heilbrigðisnefnd ákveði það sérstaklega. Sektir sem [Umhverfis- og orkustofnun] 2) leggur á samkvæmt þessari grein að frádregnum kostnaði við innheimtu renna í ríkissjóð og sektir sem heilbrigðisnefndir leggja á að frádregnum kostnaði við innheimtu renna til rekstraraðila heilbrigðiseftirlits.] 3) 1) L. 66/2017, 37. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 58/2019, 16. gr. [62. gr.]1) [Heimildir eftirlitsaðila.]1) Heilbrigðisnefndum og heilbrigðisfulltrúum skal heimill aðgangur til skoðunar og eftirlits, þar á meðal töku sýna og myndatöku, að öllum þeim stöðum sem lög þessi, reglugerðir og samþykktir ná yfir og er heimilt að leita aðstoðar lögreglu ef með þarf. Sama gildir um starfsmenn [Umhverfis- og orkustofnunar] 2) þegar um er að ræða starfsemi sem stofnunin hefur eftirlit með. Fulltrúum [Umhverfis- og orkustofnunar] 2) er heimilt í samráði við heilbrigðisnefndir að taka sýni þar sem starfsemi fer fram og lög þessi, reglugerðir settar samkvæmt þeim og samþykktir https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 31/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi 3) sveitarfélaga ná til. … Eftirlitsskyldum aðilum er skylt að veita allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna eftirlits með framkvæmd laganna og ber þeim endurgjaldslaust að afhenda sýni sem talin eru nauðsynleg vegna eftirlits. [Heilbrigðisnefnd sveitarfélaga er heimilt að beita úrræðum þessa kafla þegar um er að ræða færanlega starfsemi sem er stunduð á svæði nefndarinnar og er með starfsleyfi gefið út á öðru heilbrigðiseftirlitssvæði [eða starfsemin er skráð hjá [Umhverfis- og orkustofnun], 2) sbr. 8. gr.] 3)] 1) 1) L. 66/2017, 38. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 58/2019, 17. gr. [63. gr.]1) [Stöðvun til bráðabirgða.]1) [Telji [Umhverfis- og orkustofnun] 2) eða heilbrigðisnefnd svo alvarlega hættu stafa af tiltekinni starfrækslu eða notkun að aðgerð þoli enga bið er þeim heimilt til bráðabirgða að stöðva starfsemi eða notkun þegar í stað, með aðstoð lögreglu ef þurfa þykir. Einnig er [Umhverfis- og orkustofnun] 2) eða heilbrigðisnefnd heimilt að stöðva starfsemi eða takmarka hana til bráðabirgða sé um alvarlegt tilvik eða ítrekað brot að ræða eða ef aðilar sinna ekki úrbótum innan tiltekins frests.] 3) [Umhverfis- og orkustofnun] 2) skal sjá um samhæfingu aðgerða þegar upp koma bráð eða alvarleg mengunarslys … 4) eða önnur vá svipaðs eðlis. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga skal þegar í stað tilkynna [Umhverfis- og orkustofnun] 2) um slík mál og skal stofnunin að höfðu samráði við viðkomandi heilbrigðisnefnd taka ákvörðun um nauðsynlegar ráðstafanir. 1) L. 66/2017, 39. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 58/2019, 18. gr. 4)L. 167/2007, 55. gr. [63. gr. a. Stöðvun markaðssetningar vöru. [Umhverfis- og orkustofnun] 1) er heimilt að stöðva markaðssetningu plastvöru sem uppfyllir ekki skilyrði laga þessara eða reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim. Í þessu felst m.a. að [Umhverfis- og orkustofnun] 1) getur tekið úr sölu eða dreifingu eða innkallað tilteknar plastvörur varanlega og lagt hald á slíkar vörur. Enn fremur er stofnuninni heimilt að krefjast þess að birgir fargi viðkomandi plastvöru með öruggum hætti, afturkalli vöruna eða geymi þar til bætt hefur verið úr ágöllum.] 2) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 90/2020, 8. gr. [63. gr. b. Afturköllun. Útgefandi starfsleyfis getur afturkallað starfsleyfi samkvæmt lögum þessum ef rekstraraðili brýtur gegn ákvæðum laganna eða reglugerða settra samkvæmt þeim eða starfsleyfisskilyrðum. Útgefanda starfsleyfis er jafnframt heimilt að afturkalla starfsleyfi ef bú leyfishafa hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta eða hann hefur leitað nauðasamnings. Áður en gripið er til afturköllunar starfsleyfis skal veita rekstraraðila skriflega aðvörun og hæfilegan frest til úrbóta. Sinni leyfishafi ekki slíkri aðvörun er heimilt að afturkalla leyfið.] 1) 1) L. 30/2026, 9. gr. [64. gr.]1) [Málsmeðferð.]1) Við meðferð mála samkvæmt þessum kafla skal fylgja ákvæðum stjórnsýslulaga. 1) L. 66/2017, 40. gr. [XVIII. kafli.]1) Málsmeðferð og úrskurðir. 1) L. 66/2017, 34. gr. [65. gr.]1) [Kærur.]1) [Stjórnvaldsákvarðanir sem teknar eru á grundvelli laga þessara, reglugerða settra samkvæmt þeim eða heilbrigðissamþykkta sveitarfélaga sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.] 2) Þetta gildir þó ekki í þeim tilvikum þegar [ráðherra] 3) fer með úrskurðarvald samkvæmt lögunum, sbr. ákvæði [66. gr.] 1) … 4) [Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 32/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi auðlindamála fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.] 4) 1) L. 66/2017, 41. gr. 2)L. 89/2018, 1. gr. 3)L. 126/2011, 258. gr. 4)L. 131/2011, 17. gr. [66. gr.]1) [Kæruheimild til ráðherra.]1) Rísi ágreiningur milli heilbrigðisnefndar og sveitarstjórna um framkvæmd laga þessara skal vísa málinu til fullnaðarúrskurðar ráðherra. Sama gildir um ágreining milli [Umhverfis- og orkustofnunar] 2) og heilbrigðisnefnda um framkvæmd laganna. … 3) Ráðherra skal kveða upp úrskurð svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en fjórum vikum eftir að honum berst mál í hendur. Sé mál viðamikið og fyrirsjáanlegt að afgreiðsla taki lengri tíma skal tilkynna hlutaðeigandi það og tiltaka afgreiðslufrest sem aldrei skal þó vera lengri en átta vikur. 1) L. 66/2017, 42. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 131/2011, 18. gr. [XIX. kafli.]1) Viðurlög. 1) L. 66/2017, 34. gr. [67. gr. Stjórnvaldssektir. [Umhverfis- og orkustofnun] 1) getur lagt stjórnvaldssektir á einstakling eða lögaðila sem brýtur gegn ákvæðum um: 1. að óheimilt sé að hefja atvinnurekstur hafi starfsleyfi ekki verið gefið út eða hann ekki verið skráður hjá [Umhverfis- og orkustofnun], 1) sbr. 1. mgr. 6. gr., 2. viðmiðunarmörk fyrir losun mengandi efna, sbr. 1. mgr. 10. gr., 3. upplýsingaskyldu rekstraraðila varðandi breytingar á rekstri, sbr. 1. mgr. 14. gr., 4. losun rokgjarnra, lífrænna efnasambanda, sbr. 1. mgr. 28. gr., 5. upplýsingaskyldu rekstraraðila varðandi frávik, sbr. 2. mgr. 40. gr., [6. könnun og starfsleyfi til [geymslu], 2) sbr. 33. gr. c], 3) [7. plastvörur, sbr. 2. mgr. 37. gr. d, 37. gr. e, 1. og 2. mgr. 37. gr. f og 37. gr. g], 4) [8. mengunarvarnir, hvíld svæðis, skýrsluskil eða mælingar sem og ef starfað er umfram leyfileg mörk útgefins starfsleyfis rekstraraðila], 5) [9. tilkynningarskyldu vegna færanlegrar starfsemi, sbr. 1. mgr. 14. gr. a]. 6) Ráðherra er heimilt í reglugerð að ákveða fjárhæð stjórnvaldssekta fyrir brot á einstökum ákvæðum laga þessara og reglugerðum settum samkvæmt þeim innan þess ramma sem ákveðinn er í 4. mgr. Hafi fjárhæð sekta ekki verið ákveðin í reglugerð skal við ákvörðun sekta m.a. taka tillit til alvarleika brots, hvað það hefur staðið lengi, samstarfsvilja hins brotlega aðila og hvort um ítrekað brot er að ræða. Jafnframt skal líta til þess hvort ætla megi að brotið hafi verið framið í þágu hagsmuna fyrirtækisins. [Umhverfis- og orkustofnun] 1) er heimilt að ákveða hærri sektir hafi aðili hagnast á broti. Skal upphæð stjórnvaldssektar þá ákveðin sem allt að tvöfalt margfeldi af hagnaði aðila innan þess ramma sem er ákveðinn í 4. mgr. Sektir sem eru lagðar á einstaklinga geta numið frá 10.000 kr. til 10.000.000 kr. Sektir sem eru lagðar á lögaðila geta numið frá 25.000 kr. til 25.000.000 kr. Gjalddagi stjórnvaldssektar er 30 dögum eftir að ákvörðun um sektina var tekin. Hafi stjórnvaldssekt ekki verið greidd innan 15 daga frá gjalddaga skal greiða dráttarvexti af fjárhæð sektarinnar frá gjalddaga. Ákvörðun [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) um stjórnvaldssekt er aðfararhæf og renna sektir í ríkissjóð að frádregnum kostnaði við álagningu og innheimtu. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir lögum um vexti og verðtryggingu. Stjórnvaldssektum skal beitt óháð því hvort lögbrot eru framin af ásetningi eða gáleysi. [[Umhverfis- og orkustofnun] 1) er heimilt að leggja stjórnvaldssekt á lögaðila sem veitir rangar eða villandi upplýsingar eða leynir upplýsingum sem máli skipta í tengslum við [geymslusvæði], 7) leyfisveitingar og tilkynningarskyldu um leka eða umtalsverða hættu á leka, sbr. VI. kafla A.] 3) https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 33/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi Ákvörðun [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) er endanleg á stjórnsýslustigi. Aðili máls getur skotið ákvörðun um stjórnvaldssekt til dómstóla og er málshöfðunarfrestur þrír mánuðir frá því að ákvörðun var tekin. Málskot frestar aðför.] 8) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 67/2022, 4. gr. 3)L. 12/2021, 4. gr. 4)L. 90/2020, 9. gr. 5)L. 46/2022, 12. gr. 6)L. 30/2026, 10. gr. 7)L. 67/2022, 2. gr. 8)L. 58/2019, 19. gr. [68. gr. Réttur manna til að fella ekki á sig sök. Í máli sem beinist að einstaklingi og lokið getur með álagningu stjórnvaldssekta eða kæru til lögreglu hefur sá sem rökstuddur grunur leikur á að hafi gerst sekur um lögbrot rétt til að neita að svara spurningum eða afhenda gögn eða muni nema hægt sé að útiloka að það geti haft þýðingu fyrir ákvörðun um brot hans. [Umhverfis- og orkustofnun] 1) skal leiðbeina hinum grunaða um þennan rétt.] 2) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 58/2019, 19. gr. [69. gr. Fyrning. Heimild [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) til að leggja á stjórnvaldssektir samkvæmt lögum þessum fellur niður þegar fimm ár eru liðin frá því að háttsemi lauk. Frestur skv. 1. mgr. rofnar þegar [Umhverfis- og orkustofnun] 1) tilkynnir aðila um upphaf rannsóknar á meintu broti. Rof frests hefur réttaráhrif gagnvart öllum sem staðið hafa að broti.] 2) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 58/2019, 19. gr. [70. gr. Kæra til lögreglu. [Umhverfis- og orkustofnun] 1) er heimilt að kæra brot á lögum þessum og reglugerðum sem settar eru á grundvelli þeirra til lögreglu. Varði meint brot á lögum þessum og reglugerðum sem settar eru á grundvelli þeirra bæði stjórnvaldssektum og refsingu metur [Umhverfis- og orkustofnun] 1) hvort mál skuli kært til lögreglu eða því lokið með stjórnvaldsákvörðun hjá stofnuninni. Ef brot eru meiri háttar ber [Umhverfis- og orkustofnun] 1) að vísa þeim til lögreglu. Brot telst meiri háttar ef verknaður er framinn með sérstaklega vítaverðum hætti eða við aðstæður sem auka mjög á saknæmi brotsins. Jafnframt getur [Umhverfis- og orkustofnun] 1) á hvaða stigi málsins sem er vísað máli vegna brota á lögum þessum eða reglugerðum sem settar eru á grundvelli þeirra til opinberrar rannsóknar. Gæta skal samræmis við úrlausn sambærilegra mála. Með kæru [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) skulu fylgja afrit þeirra gagna sem grunur um brot er studdur við. Ákvæði IV.–VII. kafla stjórnsýslulaga gilda ekki um ákvörðun [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) um að kæra mál til lögreglu. [Umhverfis- og orkustofnun] 1) er heimilt að láta lögreglu og ákæruvaldi í té upplýsingar og gögn sem stofnunin hefur aflað og tengjast brotum sem til rannsóknar eru hjá lögreglu og ákæruvaldi og taka þátt í aðgerðum lögreglu að öðru leyti. Lögreglu og ákæruvaldi er heimilt að láta [Umhverfis- og orkustofnun] 1) í té upplýsingar og gögn sem þau hafa aflað og tengjast brotum sem til meðferðar eru hjá stofnuninni og taka þátt í aðgerðum hennar að öðru leyti. Telji ákærandi að ekki séu efni til málshöfðunar vegna ætlaðrar refsiverðrar háttsemi sem jafnframt varðar stjórnsýsluviðurlögum getur hann sent eða endursent málið til [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) til meðferðar og ákvörðunar.] 2) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 58/2019, 19. gr. [71. gr.]1) [Sektir eða fangelsi.]2) Brot gegn ákvæðum laga þessara, reglum settum samkvæmt þeim og samþykktum sveitarfélaga varða sektum hvort sem þau eru framin af ásetningi eða stórfelldu gáleysi. Sé um stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot að ræða skulu þau að auki varða fangelsi allt að fjórum árum. https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 34/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi [Tilraun til brota og hlutdeild í brotum samkvæmt lögum þessum, reglugerðum settum samkvæmt þeim og samþykktum sveitarfélaga eru refsiverð eftir því sem segir í almennum hegningarlögum.] 3) 1) L. 58/2019, 19. gr. 2)L. 66/2017, 43. gr. 3)L. 44/2017, 5. gr. [72. gr.]1) [Sektir lögaðila.]2) Sektir má ákvarða lögaðila þó að sök verði ekki sönnuð á fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðra þá einstaklinga sem í þágu hans starfa, enda hafi brotið orðið eða getað orðið til hagsbóta fyrir lögaðilann. Þó skal lögaðili ekki sæta refsingu ef um óhapp er að ræða. Einnig má, með sama skilorði, gera lögaðila sekt ef fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðrir einstaklingar sem í þágu hans starfa gerast sekir um brot. … 3) 1) L. 58/2019, 19. gr. 2)L. 66/2017, 44. gr. 3)L. 88/2008, 233. gr. [XX. kafli.]1) [Innleiðing og gildistaka.]2) 1) L. 66/2017, 34. gr. 2)L. 14/2025, 2. gr. [72. gr. a Innleiðing. Lög þessi fela í sér innleiðingu á 1. mgr. 6. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/904 frá 5. júní 2019 um að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið eins og hún var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 240/2021 frá 24. september 2021.] 1) 1) L. 14/2025, 2. gr. [73. gr.]1) Lögin öðlast þegar gildi. … 1) L. 58/2019, 19. gr. Ákvæði til bráðabirgða. I. … II.–V. … 1) 1) L. 58/2019, 20. gr. [Viðauki I. [Starfsemi sem [Umhverfis- og orkustofnun]1) gefur út starfsleyfi fyrir (I).]2) Viðmiðunargildin, sem eru tilgreind hér á eftir, vísa almennt til framleiðslugetu eða afkasta. Ef margar tegundir starfsemi, sem fellur undir sömu starfsemislýsingu sem inniheldur viðmiðunargildi, eru reknar í sömu stöðinni er afkastageta þessara tegunda starfsemi lögð saman. Fyrir starfsemi við meðhöndlun úrgangs skal þessi útreikningur gilda fyrir starfsemi í lið 5.1 og a- og b-lið liðar 5.3.
1. Orkuiðnaður. 1.1 Brennsla eldsneytis í stöðvum með heildarnafnvarmaafl 50 MW eða meira. 1.2 Hreinsun á jarðolíu og gasi. 1.3 Koksframleiðsla. 1.4 Gösun eða þétting á: a) kolum, b) öðru eldsneyti í stöðvum með heildarnafnvarmaafl 20 MW eða meira.
2. Framleiðsla og vinnsla málma. 2.1 Brennsla eða glæðing málmgrýtis (þ.m.t. brennisteinsgrýtis). 2.2 Framleiðsla á hrájárni eða stáli (fyrsta eða önnur bræðsla), þ.m.t. samfelld málmsteypa, þar sem afkastagetan er meiri en 2,5 tonn á klukkustund. 2.3 Vinnsla járnríkra málma: a) starfræksla heitvölsunarvéla með vinnslugetu yfir 20 tonnum af hrástáli á klukkustund, b) starfræksla smiðja með hamra þar sem slagkraftur hvers hamars er meiri en 50 kílójúl og þar https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 35/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi sem notuð varmaorka er yfir 20 MW, c) með því að nota hlífðarlag úr bræddum málmi þar sem ílagið er meira en 2 tonn af hrástáli á klukkustund. 2.4 Starfræksla málmsteypa fyrir járnríka málma með framleiðslugetu yfir 20 tonnum á dag. 2.5 Vinnsla járnlausra málma: a) framleiðsla járnlausra hrámálma úr málmgrýti, hreinsuðu málmgrýti eða afleiddu hráefni með málmvinnsluaðferðum, efnafræðilegum aðferðum eða rafgreiningaraðferðum, b) bræðsla, þ.m.t. sambræðsla járnlausra málma, þ.m.t. endurnýttra vara, og starfræksla málmsteypa fyrir járnlausa málma með bræðslugetu yfir 4 tonnum af blýi og kadmíumi á dag eða 20 tonnum af öllum öðrum tegundum málma á dag. 2.6 Yfirborðsmeðferð málma eða plastefna með rafgreiningaraðferðum eða efnafræðilegum aðferðum þar sem rúmmál meðhöndlunartanka er meira en 30 m 3.
3. Jarðefnaiðnaður. 3.1 Framleiðsla á sementi, kalki og magnesíumoxíði: a) framleiðsla á sementsgjalli í hverfiofnum með afkastagetu sem er yfir 500 tonnum á dag eða í annars konar ofnum þar sem framleiðsluafköstin eru yfir 50 tonnum á dag, b) framleiðsla á kalki í ofnum með framleiðslugetu yfir 50 tonnum á dag, c) framleiðsla á magnesíumoxíði í ofnum með framleiðslugetu yfir 50 tonnum á dag. 3.2 Framleiðsla á asbesti eða framleiðsla vara sem eru að stofni til úr asbesti. 3.3 Framleiðsla glers, einnig glertrefja, þar sem bræðsluafköstin eru meiri en 20 tonn á dag. 3.4 Bræðsla jarðefna, þ.m.t. framleiðsla steinefnatrefja með bræðslugetu yfir 20 tonnum á dag. 3.5 Framleiðsla leirvara með brennslu, einkum þakflísa, múrsteina, eldfastra múrsteina, flísa, leirmuna eða postulíns með framleiðslugetu yfir 75 tonnum á dag og/eða rúmtak ofns yfir 4 m 3 og setþéttleika hvers ofns yfir 300 kg/m 3.
4. Efnaiðnaður. Að því er varðar þennan þátt merkir framleiðsla, í skilningi starfsemisflokkanna í þessum þætti, framleiðslu á iðnaðarmælikvarða með efnafræðilegri eða líffræðilegri vinnslu efna eða efnahópa sem eru taldir upp í þessum þætti. 4.1 Framleiðsla lífrænna efna, svo sem: a) einföld vetniskolefni (línuleg eða hringlaga, mettuð eða ómettuð, alifatísk eða arómatísk), b) vetniskolefni sem innihalda súrefni, svo sem alkóhól, aldehýð, ketón, karboxýlsýrur, estrar og blöndur af estrum, asetötum, eterum, peroxíðum og epoxýresínum, c) vetniskolefni sem innihalda brennistein, d) vetniskolefni sem innihalda köfnunarefni, svo sem amín, amíð, nitursambönd, nítrósambönd eða nítratsambönd, nítríl, sýanöt og ísósýanöt, e) vetniskolefni sem innihalda fosfór, f) vetniskolefni sem innihalda halógen, g) lífræn málmsambönd, h) plastefni (fjölliður, gervitrefjar og trefjar að stofni úr beðmi), i) gervigúmmí, j) leysilitir og fastlitarefni, k) yfirborðsvirk efni. 4.2 Framleiðsla ólífrænna efna, svo sem: a) lofttegundir, svo sem ammoníak, klór eða vetnisklóríð, flúor eða vetnisflúoríð, koloxíð, brennisteinssambönd, köfnunarefnisoxíð, vetni, brennisteinsdíoxíð, karbónýlklóríð, b) sýrur, svo sem krómsýra, flússýra, fosfórsýra, saltpéturssýra, saltsýra, brennisteinssýra, rjúkandi brennisteinssýra, brennisteinssýrlingur, c) basi, svo sem ammóníumhýdroxíð, kalíumhýdroxíð, natríumhýdroxíð, d) sölt, svo sem ammóníumklóríð, kalíumklórat, kalíumkarbónat, natríumkarbónat, perbórat, silfurnítrat, e) málmleysingjar, málmoxíð eða önnur ólífræn efnasambönd, svo sem kalsíumkarbíð, kísill, kísilkarbíð. https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 36/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi 4.3 Framleiðsla á áburði sem inniheldur fosfór, köfnunarefni eða kalíum (eingildum eða fjölgildum áburði). 4.4 Framleiðsla á plöntuvarnarvörum eða sæfivörum. 4.5 Framleiðsla á lyfjum, þ.m.t. milliefnum. 4.6 Framleiðsla á sprengiefnum.
5. Meðhöndlun úrgangs. 5.1 Förgun eða endurnýting á hættulegum úrgangi með afköstum yfir 10 tonnum á dag sem felur í sér eina eða fleiri eftirfarandi starfsemi: a) líffræðilega meðhöndlun, b) eðlis- og efnafræðilega meðhöndlun, c) blöndun áður en einhver tegund starfsemi, sem tilgreind er í liðum 5.1 og 5.2, tekur við, d) endurpökkun áður en einhver af þeim tegundum af starfsemi, sem taldar eru upp í liðum 5.1 og 5.2, fer fram, e) endurheimt eða endurmyndun leysa, f) endurvinnsla/endurheimt ólífrænna efna annarra en málma eða málmsambanda, g) endurmyndun sýru eða basa, h) endurnýting efnisþátta sem eru notaðir til að draga úr mengun, i) endurnýting efnisþátta úr hvötum, j) endurhreinsun olíu eða önnur endurnotkun olíu, k) losun í yfirborðsvatn. 5.2 Förgun eða endurnýting á úrgangi í sorpbrennslustöðvum eða í sorpsambrennslustöðvum: a) fyrir hættulausan úrgang í stöðvum með afkastagetu yfir 3 tonnum á klukkustund, b) fyrir hættulegan úrgang í stöðvum með afkastagetu yfir 10 tonnum á dag. 5.3 a) Förgun á hættulausum úrgangi í stöðvum með afkastagetu yfir 50 tonnum á dag sem felur í sér eina eða fleiri eftirfarandi starfsemi og að undanskilinni starfsemi sem fellur undir reglugerð um fráveitur og skólp: i. líffræðilega meðhöndlun, ii. eðlis- og efnafræðilega meðhöndlun, iii. formeðhöndlun úrgangs fyrir brennslu eða sambrennslu, iv. meðferð á gjalli og ösku, v. meðferð málmúrgangs í tæturum, þ.m.t. á raf- og rafeindatækjaúrgangi og úr sér gengnum ökutækjum og íhlutum þeirra. b) Endurheimt eða blanda af endurheimt og förgun á hættulausum úrgangi í stöðvum með afkastagetu yfir 75 tonnum á dag sem felur í sér eina eða fleiri eftirfarandi starfsemi og að undanskilinni starfsemi sem fellur undir reglugerð um fráveitur og skólp: i. líffræðilega meðhöndlun, ii. formeðhöndlun úrgangs fyrir brennslu eða sambrennslu, iii. meðferð á gjalli og ösku, iv. meðferð málmúrgangs í tæturum, þ.m.t. á raf- og rafeindatækjaúrgangi og úr sér gengnum ökutækjum og íhlutum þeirra. Ef starfsemi skv. 1. mgr. felur einungis í sér meðhöndlun úrgangs þar sem fram fer loftfirrð rotnun skulu viðmiðunargildin fyrir starfsemina vera 100 tonn á dag. 5.4 Urðun, eins og hún er skilgreind í lögum um meðhöndlun úrgangs, sem tekur á móti meira en 10 tonnum af úrgangi á dag eða með heildarafkastagetu yfir 25.000 tonnum, að undanskilinni urðun á óvirkum úrgangi. 5.5 Bráðabirgðageymsla hættulegs úrgangs, sem ekki fellur undir lið 5.4, sem bíður einhverra þeirra tegunda af starfsemi sem taldar eru upp í liðum 5.1, 5.2, 5.4 og 5.6, þar sem heildarrúmtak er yfir 50 tonnum, að undanskilinni tímabundinni geymslu meðan söfnunar er beðið á þeim stað þar sem úrgangurinn verður til. 5.6 Neðanjarðargeymsla á hættulegum úrgangi með heildarrúmtak yfir 50 tonnum.
6. Önnur starfsemi. 6.1 Framleiðsla í iðjuverum á: https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 37/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi a) deigi úr viði eða öðrum trefjaefnum, b) pappír eða pappa í verum með framleiðslugetu yfir 20 tonnum á dag, c) einni eða fleiri gerðum platna sem eru að stofni til úr viði: aspenítplötum, spónaplötum eða trefjaplötum í verum með framleiðslugetu yfir 600 m 3 á dag. 6.2 Formeðferð (aðgerðir eins og þvottur, bleiking, mersivinnsla) eða litun textíltrefja eða textílefna þar sem vinnslugetan er yfir 10 tonnum á dag. 6.3 Sútun á húðum og skinnum þar sem vinnslugetan er yfir 12 tonnum af fullunninni vöru á dag. 6.4 a) Sláturhús í rekstri með framleiðslugetu yfir 50 tonnum af skrokkum á dag. b) Meðferð og vinnsla, önnur en eingöngu pökkun, á eftirfarandi hráefnum, hvort sem er áður unnum eða óunnum, sem ætluð eru fyrir matvæla- eða fóðurframleiðslu úr: i. hráefnum af dýrum eingöngu (öðrum en eingöngu mjólk) þar sem framleiðslugeta er yfir 75 tonnum af fullunninni vöru á dag, ii. jurtahráefni eingöngu þar sem framleiðslugeta er yfir 300 tonnum á dag eða 600 tonnum á dag þar sem stöðin er ekki starfrækt lengur en í 90 daga í röð á neinu ári, iii. hráefnum úr dýrum og jurtum, bæði í samsettum og aðskildum afurðum, þar sem framleiðslugeta á fullunninni vöru í tonnum er meiri á dag en: – 75 ef A er jafnt og 10 eða meira eða, – [300 – (22,5 × A)] í öllum öðrum tilvikum, þar sem „A“ er hluti efnis úr dýrum (sem hundraðshluti af þyngd) af framleiðslugetu á fullunninni vöru. Umbúðir skulu ekki taldar með í endanlegri þyngd vörunnar. Þessi stafliður skal ekki gilda þar sem hráefnið er eingöngu mjólk. c) Meðferð og vinnsla mjólkur eingöngu, þar sem tekið er á móti meira en 200 tonnum af mjólk á dag (meðaltal á ársgrundvelli). 6.5 Förgun eða endurvinnsla dýraskrokka eða dýraúrgangs þar sem afkastageta er yfir 10 tonnum á dag. 6.6 Eldi alifugla eða svína: a) með fleiri en 40.000 stæði fyrir alifugla, b) með fleiri en 2.000 stæði fyrir alisvín (yfir 30 kg), eða c) með fleiri en 750 stæði fyrir gyltur. 6.7 Yfirborðsmeðferð efna, hluta eða afurða með lífrænum leysum, einkum fyrir pressun, prentun, húðun, fituhreinsun, vatnsþéttingu, þyngingu, málun, hreinsun eða gegndreypingu, þar sem notuð eru meira en 150 kg af lífrænum leysum á klukkustund eða meira en 200 tonn á ári. 6.8 Framleiðsla kolefnis (fullbrenndra kola) eða skautgrafíts (e. electrographite) með brennslu eða umbreytingu í grafít. 6.9 [Föngun koldíoxíðsstrauma frá atvinnurekstri sem fellur undir lög þessi til geymslu í jörðu.] 3) 6.10 Timbur og timburafurðir eru varin með efnum, þar sem framleiðslugeta er yfir 75 m 3 á dag, að undanskilinni meðhöndlun eingöngu gegn grágeit (e. sapstain). 6.11 Einkarekin meðhöndlun á skólpi sem er losað af stöð sem fellur undir þennan viðauka.] 4) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 66/2020, 8. gr. 3)L. 67/2022, 14. gr. 4)L. 66/2017, 45. gr. [Viðauki II. [Starfsemi sem [Umhverfis- og orkustofnun]1) gefur út starfsleyfi fyrir (II).]2)
1. Fiskimjölsverksmiðjur.
2. Eldi sjávar- og ferskvatnslífvera.
3. Olíumalar- og malbikunarstöðvar.
4. Olíubirgðastöðvar.
5. Framleiðsla títandíoxíðs.
6. Glerullar- og steinullarframleiðsla, önnur en í viðauka I.
7. Sútunarverksmiðjur, aðrar en í viðauka I.
8. Meðferð úrgangs – förgunarstaðir úrgangs: a) urðunarstaðir, sorpbrennslustöðvar og söfnunar- og móttökustöðvar ef þær eru reknar í nánum landfræðilegum tengslum við förgunarstaði þar sem tekið er á móti meira en 5.000 tonnum af https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 38/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi úrgangi á ári, b) urðunarstaðir, sorpbrennslustöðvar og söfnunar- og móttökustöðvar ef þær eru reknar í nánum landfræðilegum tengslum við förgunarstaði þar sem tekið er á móti 500–5.000 tonnum af úrgangi á ári, c) urðunarstaðir, sorpbrennslustöðvar og söfnunar- og móttökustöðvar ef þær eru reknar í nánum landfræðilegum tengslum við förgunarstaði þar sem tekið er á móti 50–499 tonnum af úrgangi á ári eða urðunarstaðir þar sem eingöngu er tekið á móti 20.000 tonnum af óvirkum úrgangi á ári eða meira, d) urðunarstaðir þar sem eingöngu er tekið á móti minna en 20.000 tonnum af óvirkum úrgangi á ári.
9. Meðhöndlun og förgun spilliefna, [þ.m.t. námuúrgangsstaðir, sbr. 14. gr. laga um meðhöndlun úrgangs]: 3) a) … 3) þar sem heimild er til meðhöndlunar á meira en 2.500 tonnum af spilliefnum á ári, b) … 3) þar sem heimild er til meðhöndlunar á 500–2.500 tonnum af spilliefnum á ári eða til að endurmynda og nýta á staðnum 10.000 tonn af úrgangsolíu á ári eða meira, c) … 3) þar sem heimild er til meðhöndlunar á 50–499 tonnum af spilliefnum á ári eða til að endurmynda og nýta á staðnum minna en 10.000 tonn af úrgangsolíu á ári, d) … 3) þar sem heimild er til meðhöndlunar á minna en 50 tonnum af spilliefnum á ári eða þar sem einvörðungu eru meðhöndlaðir rafgeymar. … 4) [10.] 4) Rannsóknir og vinnsla kolvetnis. [[11.] 4) Endurvinnsla skipa yfir 500 brúttótonnum, sbr. 64. gr. a laga um meðhöndlun úrgangs. [12.] 4) Málningarvöruframleiðsla. [13.] 4) Kítín- og kítosanframleiðsla.] 3) [14. Geymsla koldíoxíðs í jörðu.] 5)] 6) [15. Virkjun og orkuveita frá 1 MW.
16. Jarðbor.] 7) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 66/2020, 10. gr. 3)L. 58/2019, 21. gr. 4)L. 66/2020, 9. gr. 5)L. 67/2022, 15. gr. 6)L. 66/2017, 45. gr. 7)L. 30/2026, 11. gr. [Viðauki III. [Starfsemi sem fellur undir IV. kafla.]1)
1. Í hverjum eftirfarandi liða er innifalin í starfseminni hreinsun á búnaði en ekki hreinsun á vörum nema það sé sérstaklega tekið fram.
2. Límburður. Öll starfsemi þar sem lím er borið á yfirborð, að undanskildum límburði og plasthúðun í tengslum við prentstarfsemi.
3. Húðunarstarfsemi. Öll starfsemi þar sem sett er eitt eða fleiri samfelld lög af yfirborðsmeðferðarefni á: a) eitthvert eftirfarandi farartækja: i. nýjar bifreiðar skilgreindar sem ökutæki í flokki M1 í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/46/EB frá 5. september 2007 um ramma um viðurkenningu á vélknúnum ökutækjum og eftirvögnum þeirra og á kerfum, íhlutum og aðskildum tæknieiningum sem ætlaðar eru í slík ökutæki og í flokki N1 þegar þær eru húðaðar í sömu stöð og M1 ökutæki, ii. hús á vörubifreiðum, skilgreind sem rými ökumanns, og öll sambyggð rými fyrir tæknibúnað á ökutækjum í flokkum N2 og N3 í tilskipun 2007/46/EB, iii. sendibifreiðar og vörubifreiðar, skilgreindar sem ökutæki í flokkum N1, N2 og N3 í tilskipun 2007/46/EB, en hús á vörubifreiðum eru þar ekki meðtalin, iv. almenningsvagna sem eru skilgreindir sem ökutæki í flokkum M2 og M3 í tilskipun 2007/46/EB, v. eftirvagna sem eru skilgreindir í flokka O1, O2, O3 og O4 í tilskipun 2007/46/EB, b) málm- og plastyfirborð, þ.m.t. yfirborð á flugvélum, skipum, lestum o.s.frv., c) viðaryfirborð, https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 39/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi d) textíl-, vefnaðar-, filmu- og pappírsyfirborð, e) leður. Húðunarstarfsemi nær ekki yfir yfirborðsmeðferð þar sem flötur er málmhúðaður með rafdrætti eða hann er húðaður með efnasprautun. Ef húðunarstarfsemin felur í sér þrep þar sem prentað er á sama hlutinn, sama hvaða tækni er notuð, telst prentunarþrepið hluti af húðunarstarfseminni. Hins vegar er prentstarfsemi sem er rekin sem aðskilin starfsemi ekki meðtalin en getur fallið undir lög þessi ef prentstarfsemin fellur undir gildissvið þeirra.
4. Rúlluhúðun. Hvers kyns starfsemi þar sem stálþynnur, ryðfrítt stál, húðað stál, koparblendi eða álræmur eru húðaðar með himnumyndandi efni eða plasthúðaðar í samfelldu vinnsluferli.
5. Þurrhreinsun. Hvers kyns iðnaðar- eða viðskiptastarfsemi þar sem rokgjörn, lífræn efnasambönd eru notuð í stöð til að hreinsa fatnað, áklæði og álíka neytendavörur, að undanskilinni handhreinsun bletta í textíl- og fataiðnaði.
6. Framleiðsla á skófatnaði. Hvers kyns starfsemi sem felst í framleiðslu á fullgerðum skófatnaði eða hlutum hans.
7. Framleiðsla á yfirborðsefnablöndum, lökkum, farva og lími. Framleiðsla á ofangreindum fullgerðum vörum og millistigsvörum þegar hún fer fram á sama stað, með blöndun á fastlitarefnum, resíni og límefnum við lífræna leysa eða önnur burðarefni, þ.m.t. framleiðsla á þeytum og forþeyttum blöndum, stillingu á seigju og litblæ og áfyllingu fullgerðrar vöru í ílát.
8. Framleiðsla á lyfjum. Efnasmíði, gerjun, útdráttur, lögun og yfirborðsmeðhöndlun lyfja og, þegar hún fer fram á sama stað, framleiðsla millistigsvara.
9. Prentun. Hvers kyns eftirtaka texta og/eða mynda þar sem farvi er yfirfærður á hvers kyns yfirborðsgerðir með notkun myndbera. Meðtalin er tengd tækni við lökkun, húðun og plasthúðun. Hins vegar falla einungis eftirfarandi undirferlar undir lög þessi: a) flexóprentun – prentun þar sem myndberinn er úr gúmmíi eða fjaðrandi ljósfjölliðum og þar sem prentflöturinn er upphækkaður og notaðir eru fljótandi prentlitir sem þorna við uppgufun, b) heitþornandi offsetprentun af streng – prentun af streng þar sem notaður er myndberi þar sem bæði prentflötur og óprentaðir fletir eru í sömu hæð, þar sem prentun af streng merkir að efnið, sem prentað er á, er matað í vélina af kefli en ekki sem stakar arkir. Óprentaða svæðið er meðhöndlað til að draga að vatn og hrindir því farva frá sér. Prentflöturinn er meðhöndlaður til að taka við og flytja farva til yfirborðsins sem prenta skal. Uppgufun á sér stað í ofni þar sem heitt loft er notað til að hita prentverkið, c) plasthúðun sem tengist prentun – samlíming tveggja eða fleiri sveigjanlegra efna til að gera lagskipta afurð, d) djúpprentun á gæðapappír – djúpprentun á pappír fyrir tímarit, bæklinga, verðlista eða annað áþekkt, þar sem notaður er farvi sem inniheldur tólúen, e) djúpprentun – prentun þar sem myndberinn er sívalur, prentflöturinn er neðar en óprentaðir fletir og notaður er fljótandi farvi sem þornar við uppgufun. Hólfin eru fyllt með farva og umframfarvi er þurrkaður af óprentuðu flötunum áður en sá flötur, sem prenta skal á, snertir valsann og lyftir farvanum upp úr hólfunum, f) valsasáldprentun – prentun af streng þar sem farvinn er færður á þann flöt sem prenta skal á með því að þrýsta honum í gegnum gropinn myndbera, þar sem prentflöturinn er opinn og aðrir fletir eru lokaðir, og notaður er fljótandi farvi sem þornar eingöngu við uppgufun. Prentun af streng merkir að efnið sem prenta skal á er matað í vélina af kefli en ekki sem stakar arkir, g) lökkun – starfsemi þar sem lakk eða límlag er borið á þjált efni, ætlað í umbúðir, í því skyni að loka síðar umbúðunum.
10. Vinnsla gúmmís. Hvers kyns starfsemi sem felst í blöndun, mölun, pressun í sléttipressu, útpressun og súlfun á https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 40/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi náttúru- eða gervigúmmíi og hvers kyns aðrar aðgerðir sem eru notaðar til að breyta náttúru- eða gervigúmmíi í fullunna vöru.
11. Hreinsun yfirborðs. Hvers kyns starfsemi, nema þurrhreinsun, þar sem lífrænir leysar eru notaðir til þess að fjarlægja óhreinindi af yfirborði efna, þar á meðal fituhreinsun. Starfsemi við hreinsun sem samanstendur af fleiri en einu þrepi fyrir eða eftir einhverja aðra starfsemi skal líta á sem eina starfsemi við yfirborðshreinsun. Þessi starfsemi vísar ekki til hreinsunar á búnaði heldur til hreinsunar á yfirborði vara.
12. Starfsemi við útdrátt jurtaolíu og dýrafitu og hreinsun jurtaolíu. Hvers kyns starfsemi sem felst í útdrætti jurtaolíu úr fræjum og öðru plöntuefni, vinnsla þurra leifa til framleiðslu á fóðri, hreinsun á fitu og jurtaolíum úr fræjum, plöntuefni og/eða dýraefni.
13. Lakkviðgerðir ökutækja. Hvers kyns iðnaðar- eða viðskiptastarfsemi sem felst í húðunarstarfsemi og tilheyrandi fituhreinsun þar sem framkvæmd er annaðhvort: a) upphafleg yfirborðsmeðferð ökutækja, eins og skilgreint er í tilskipun 2007/46/EB, eða hluta þeirra með efnum til lakkviðgerða, að því tilskildu að starfsemin fari fram utan upphaflegu framleiðslulínunnar, eða b) yfirborðsmeðferð eftirvagna (þ.m.t. festivagna) (O-flokkur í tilskipun 2007/46/EB).
14. Húðun vafvíra. Hvers kyns yfirborðsmeðferð málmleiðara sem notaðir eru til að vefja rafspólur í spennubreytum, vélum o.s.frv.
15. Viðarfúavörn. Hvers kyns starfsemi sem felst í meðhöndlun viðar með fúavarnarefni.
16. Viðar- og plastsamlíming. Hvers kyns starfsemi sem felst í að líma saman við og/eða plast til framleiðslu á samlímdum vörum.] 2) 1) L. 66/2020, 11. gr. 2)L. 66/2017, 45. gr. [Viðauki IV. [Starfsemi sem heilbrigðisnefnd gefur út starfsleyfi fyrir.
1. Aksturs- og/eða kennslubraut.
2. Almenningssalerni.
3. Baðstaður í náttúrunni, flokkur 1 og 2.
4. Bensínstöð.
5. Bifreiða- og vélaverkstæði.
6. Bifreiðasprautun.
7. Bón- og bílaþvottastöð.
8. Brenna, stærri en 100 m 3.
9. Daggæsla hjá dagforeldrum með sex börn eða fleiri.
10. Dvalarheimili.
11. Dýragarður.
12. Dýragæsla.
13. Dýralæknastofa.
14. Dýrasnyrtistofa.
15. Dýraspítali.
16. Efnalaug.
17. Eldi alifugla, annað en í viðauka I.
18. Eldi svína, annað en í viðauka I.
19. Endurnýting úrgangs, [önnur en í viðauka I]. 1)
20. Endurvinnsla skipa undir 500 brúttótonnum, sbr. 64. gr. a laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.
21. Fangelsi og fangagæsla.
22. Fjallaskáli, nema sæluhús. https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 41/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi
23. Flugeldasýning.
24. Flugvöllur, þ.m.t. flugstöð, sem áætlunarflug er til.
25. Flutningur úrgangs.
26. Framköllun, t.d. á ljós-, röntgen- og kvikmyndum.
27. Framleiðsla á aukefnum og hjálparefnum fyrir matvælaiðnað.
28. Framleiðsla á áfengi, gosdrykkjum og vatni.
29. Framleiðsla á hreinsi- og þvottaefnum.
30. Framleiðsla á ilmvatni og snyrtivörum.
31. Framleiðsla á olíu og feiti.
32. Framleiðsla á spónaplötum, límtré og þess háttar, önnur en í viðauka I.
33. Framleiðsla fóðurs.
34. Framleiðsla glers, önnur en í viðauka I.
35. Framleiðsla leirvara með brennslu, önnur en í viðauka I.
36. Framleiðsla plasts, önnur en í viðauka I.
37. Garðaúðun.
38. Geymsla gass og annarra hættulegra efna.
39. Geymsla olíumalarefna og lagning utan fastra starfsstöðva, önnur en í viðauka II.
40. Gististaður, að undanskilinni heimagistingu.
41. Gæludýraverslun.
42. Hársnyrtistofa.
43. Heilsugæslustöð.
44. Heilsuræktarstöð.
45. Heimili og stofnanir fyrir börn og unglinga með sex börn eða fleiri.
46. Heitloftsþurrkun fiskafurða, önnur en í viðauka I.
47. Hestahald.
48. Hestaleiga og/eða reiðskóli.
49. Hreinsivirki fráveitu sem meðhöndlar meira en 50 pe.
50. Hundahótel.
51. Húðflúrsstofa og stofa þar sem fram fer húðgötun, húðrof og fegrunarflúr.
52. Íþróttahús.
53. Íþróttamiðstöð.
54. Íþróttavöllur. 55. … 2)
56. Kaffivinnsla.
57. Kanínurækt.
58. Kartöfluvinnsla, önnur en í viðauka I.
59. Kírópraktor.
60. Kjötvinnsla, önnur en í viðauka I.
61. Lauksteikingarverksmiðja.
62. Leðurvinnsla, önnur en í viðauka I og II.
63. Leiksvæði.
64. Líkbrennsla.
65. Loðdýrarækt.
66. Meðhöndlun asbests.
67. Meðhöndlun seyru, þ.m.t. flutningur, notkun og hreinsun.
68. Meðhöndlun, blöndun og mölun á korni, önnur en í viðauka I.
69. Meindýravarnir.
70. Mjólkurbú og ostagerð, önnur en í viðauka I.
71. Mjöl- og lýsisvinnsla, önnur en í viðauka I.
72. Móttökustöð fyrir úrgang, aðrar en í viðauka I og II.
73. Nálastungustofa.
74. Niðurrif bifreiða og bílapartasala. https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 42/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi
75. Niðurrif mannvirkja.
76. Nuddstofa. [77. Osteópati.] 2) [78.] 2) Pappírsvöru- og pappakassaframleiðsla, önnur en í viðauka I. [79.] 2) Prentun þar sem er notkun á mengandi efnum. [80.] 2) Ryðvarnarverkstæði. [81.] 2) Saltvinnsla. [82.] 2) Sambýli þar sem veitt er þjónusta allan sólarhringinn. [83.] 2) Samgöngumiðstöð. [84.] 2) Samkomuhús. [85.] 2) Sjúkrahús. [86.] 2) Sjúkrastofnun. [87.] 2) Sjúkraþjálfun. [88.] 2) Skemmti- og þemagarður, þ.m.t. tívolí. [89.] 2) Skotvöllur. [90.] 2) Skólahúsnæði. [91.] 2) Sláturhús, önnur en í viðauka I. [92.] 2) Smurstöð. [93.] 2) Snyrtistofa. [94.] 2) Sólbaðsstofa. [95.] 2) Spennistöð þar sem spennar innihalda yfir 2.000 lítra af olíu. [96.] 2) Starfsemi þar sem notað er kælikerfi sem inniheldur flúoraðar gróðurhúsalofttegundir eða ósoneyðandi efni sem og þjónusta við þau kerfi. [97.] 2) Starfsmannabúðir. [98.] 2) Starfsmannabústaðir. [99.] 2) Steypueiningaverksmiðja. [100.] 2) Steypustöð. [101.] 2) Stofa þar sem gerðar eru aðgerðir, svo sem læknastofa og fótaaðgerðastofa. [102.] 2) Sund- og baðstaður. [103.] 2) Tannlæknastofa. [104.] 2) Tjald- og hjólhýsasvæði. [105.] 2) Trésmíðaverkstæði, önnur en í viðauka I. [106.] 2) Útihátíð. [107.] 2) Vefnaðar- og spunaverksmiðja. [108.] 2) Veitingastaður. [109.] 2) Verslunarmiðstöð. [110.] 2) Vinnsla á hrájárni eða stáli, önnur en í viðauka I. [111.] 2) Vinnsla fisks og annarra sjávarafurða, önnur en í viðauka I. [112.] 2) Vinnsla gúmmís. [113.] 2) Vinnsla jarðefna, þ.m.t. legsteinagerð, önnur en í viðauka I. [114.] 2) Vinnsla járnlausra málma, önnur en í viðauka I. [115.] 2) Vinnsla málma, önnur en í viðauka I. [116.] 2) [Brennsluver þar sem nafnvarmaafl er jafnt og eða meira en 1 MW og minna en 50 MW.] 2) [117.] 2) Yfirborðsmeðferð efna, hluta eða afurða með lífrænum leysum, önnur en í viðauka I. [118.] 2) Yfirborðsmeðferð málma eða plastefna, önnur en í viðauka I. [119.] 2) Þvottahús, þ.m.t. ullarþvottastöð. [120.] 2) Æfingasvæði slökkviliðs. [121.] 2) Önnur sambærileg starfsemi.] 3)] 4) 1) L. 46/2022, 13. gr. 2)L. 30/2026, 12. gr. 3)L. 66/2020, 12. gr. 4)L. 66/2017, 45. gr. https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 43/44 27/08/2026, 15:34 7/1998: Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir | Lög | Alþingi 1) 2) [Viðauki V. … ] 1) L. 66/2020, 13. gr. 2)L. 66/2017, 45. gr. https://www.althingi.is/lagas/157b/1998007.html 44/44