Act No. 48 on the implementation of the implementation of the Agreement on Future Co-operation Between States Regarding Fishing in the North-West Atlantic
Made 1979-05-30 · Text as of 2026-10-01
Public law and official guidance, published as research. Not legal, tax or financial advice.
About this law
- Original title
- Lög um framkvæmd samnings um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar á Norðvestur-Atlantshafi.
- Language
- Icelandic
- Kind
- Act
- Organisation
- European Union
- Country
- Iceland
- Subjects
- Fisheries and aquaculture, Sea
- Keywords
- marine fisheries, international agreement-implementation, international cooperation, sustainable use, enforcement/compliance
Where to read it
No source link is recorded for this law.
Text
The law's own text, section by section, as held. Each section has its own link.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2020. Útgáfa 150c. Prenta í tveimur dálkum. Lög um framkvæmd samnings um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar á Norðvestur-Atlantshafi 1979 nr. 48 30. maí Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga. Tóku gildi 1. janúar 1980. Breytt með: L. 19/1991 (tóku gildi 1. júlí 1992 nema 1. og 3. mgr. 29. gr. sem tóku gildi 17. apríl 1991). L. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér. 1. gr. [Ráðherra] 1) er heimilt að setja reglur 2) um framkvæmd samnings frá 24. október 1978 um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar á Norðvestur-Atlantshafi. Samningurinn er prentaður sem fylgiskjal með lögum þessum. 1)L. 126/2011, 82. gr. 2)Rg. 161/1975 (um takmörkun á loðnuveiðum íslenskra skipa í Norðvestur-Atlantshafi). 2. gr. Brot á reglum sem settar verða samkvæmt 1. gr. laga þessara skulu varða sektum 2000–40.000 gullkrónum, sbr. lög nr. 4 11. apríl 1924. Enn fremur er heimilt að gera afla og veiðarfæri upptæk. Auk þess má láta brot varða skipstjóra fangelsi allt að 6 mánuðum þegar sakir eru miklar eða þegar um ítrekað brot er að ræða. [Kyrrsetja skal] 1) skip, sem staðið er að meintum ólöglegum veiðum, þegar er það kemur til hafnar, og er eigi heimilt að láta það laust fyrr en dómur hefur verið kveðinn upp í máli ákæruvaldsins gegn skipstjóra skipsins eða máli hans lokið á annan hátt og sekt og kostnaður greiddur að fullu. Þó er heimilt að láta skip laust fyrr ef sett er bankatrygging, eða önnur trygging jafngild að mati dómara, fyrir greiðslu sektarinnar og málskostnaðar. Til tryggingar greiðslu sektar samkvæmt þessari grein og kostnaðar skal vera lögveð í skipinu. … 2) 1)L. 19/1991, 195. gr. 2)L. 88/2008, 233. gr. 3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. … Fylgiskjal. Samningur um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar á Norðvestur Atlantshafi.1) 1)Sjá Stjtíð. A 1979, bls. 161–188.