تخطَّ إلى المحتوى
Nelum
قوانين آيسلندا

Waste Management Act (No. 55 of 2003)

صدر في 2003-03-20 · النص بتاريخ 2026-10-01

القانون العام والإرشادات الرسمية منشورة بوصفها أبحاثاً. ليست مشورة قانونية أو ضريبية أو مالية.

البحث نفسه مكتوب بالإنجليزية. العناوين والوسوم مترجمة؛ أما النتائج والاقتباسات فغير مترجمة.

عن هذا القانون

العنوان الأصلي
Lög um uppbyggingu og rekstur fráveitna.
اللغة
Icelandic
النوع
قانون
المنظمة
European Union
الدولة
آيسلندا
الموضوعات
Air and atmosphere, Energy, Environment, Food and nutrition, Mineral resources, Waste and hazardous substances
الكلمات المفتاحية
pollution control, organic waste, air quality/air pollution, emissions, biofuel, mining, basic legislation, waste management, circular economy, waste prevention, waste disposal, recycling/reuse, transport/storage, hazardous waste, policy/planning, plastic, public health, authorization/permit, data collection/reporting, classification/declassification, fees/royalties, education, liability/compensation, packaging/labelling, registration, enforcement/compliance
الفئات
metals-base, metals-precious, minerals-critical

أين تقرؤه

    لا يوجد رابط مصدر مسجل لهذا القانون.

النص

نص القانون نفسه، مادةً مادة، كما هو محفوظ. لكل مادة رابطها.

  1. 1. Banni við losun úrgangs annars staðar en á móttökustöð eða í sorpílát og opinni brennslu hans, sbr. 4. mgr. 9. gr.

  2. 2. Ákvæðum um að starfsemi hafi gilt starfsleyfi, sbr. 14., 38., 58., 62. og 64. gr. a.

  3. 3. Ákvæðum um skil á skýrslu, sbr. 19. gr.

  4. 4. Skráningar- eða tilkynningarskyldu, sbr. 25. gr.

  5. 5. Ákvæðum um takmarkanir á flutningi úrgangs, sbr. 26. gr.

  6. 6. Ákvæðum um skyldur söluaðila rafhlaðna og rafgeyma, sbr. 3. mgr. 33. gr.

  7. 7. Banni við markaðssetningu rafhlaðna, rafgeyma, raf- og rafeindatækja án greiðslu úrvinnslugjalds, sbr. 4. mgr. 34. gr. og 2. mgr. 45. gr.

  8. 8. Ákvæðum um upplýsingaskyldu framleiðenda og innflytjenda rafhlaðna, rafgeyma, raf- og rafeindatækja, sbr. 35. og 46. gr.

  9. 9. Banni við förgun raf- og rafeindatækjaúrgangs án viðeigandi meðhöndlunar, sbr. 44. gr. b.

  10. 10. Ákvæðum um skráningarskyldu framleiðenda og innflytjenda rafhlaðna, rafgeyma, raf- og rafeindatækja, sbr. 36. og 50. gr.

  11. 11. Banni við blöndun spilliefna, sbr. 2. mgr. 54. gr.

  12. 12. Ákvæðum um merkingu spilliefna, sbr. 55. gr.

  13. 13. Ákvæðum um skráningu spilliefna, sbr. 56. gr.

  14. 14. Ákvæðum um eftirlit og vöktun með urðunarstöðum, sbr. 60. gr.

  15. 15. Ákvæðum um lokun urðunarstaðar, sbr. 61. gr.

  16. 16. Ákvæðum um losunarmörk brennslustöðva, sbr. 64. gr. Ráðherra er heimilt í reglugerð að ákveða fjárhæð stjórnvaldssekta fyrir brot á einstökum ákvæðum laga þessara og reglugerðum settum samkvæmt þeim innan þess ramma sem ákveðinn er í 4. mgr. Hafi fjárhæð sekta ekki verið ákveðin í reglugerð skal við ákvörðun sekta m.a. taka tillit til alvarleika brots, hvað það hefur staðið lengi, samstarfsvilja hins brotlega aðila og hvort um ítrekað brot er að ræða. Jafnframt skal líta til þess hvort ætla megi að brotið hafi verið framið í þágu hagsmuna fyrirtækisins. [Umhverfis- og orkustofnun] 1) er heimilt að ákveða hærri sektir hafi aðili hagnast á broti. Skal upphæð stjórnvaldssektar þá ákveðin sem allt að tvöfalt margfeldi af hagnaði aðila. Sektir sem eru lagðar á einstaklinga geta numið frá 10.000 kr. til 10.000.000 kr. Sektir sem eru lagðar á lögaðila geta numið frá 25.000 kr. til 25.000.000 kr. Gjalddagi stjórnvaldssektar er 30 dögum eftir að ákvörðun um sektina var tekin. Hafi stjórnvaldssekt ekki verið greidd innan 15 daga frá gjalddaga skal greiða dráttarvexti af fjárhæð sektarinnar frá gjalddaga. Ákvörðun [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) um stjórnvaldssekt er aðfararhæf og renna sektir í ríkissjóð að frádregnum kostnaði við álagningu og innheimtu. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir lögum um vexti og verðtryggingu. Stjórnvaldssektum skal beitt óháð því hvort lögbrot eru framin af ásetningi eða gáleysi. https://www.althingi.is/lagas/nuna/2003055.html 30/33 27/08/2026, 15:47 55/2003: Lög um meðhöndlun úrgangs | Lög | Alþingi Ákvörðun [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) er endanleg á stjórnsýslustigi. Aðili máls getur skotið ákvörðun um stjórnvaldssekt til dómstóla og er málshöfðunarfrestur þrír mánuðir frá því að ákvörðun var tekin. Málskot frestar aðför.] 2) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 58/2019, 22. gr. [67. gr. b. Réttur manna til að fella ekki á sig sök. Í máli sem beinist að einstaklingi og lokið getur með álagningu stjórnvaldssekta eða kæru til lögreglu hefur sá sem rökstuddur grunur leikur á að hafi gerst sekur um lögbrot rétt til að neita að svara spurningum eða afhenda gögn eða muni nema hægt sé að útiloka að það geti haft þýðingu fyrir ákvörðun um brot hans. [Umhverfis- og orkustofnun] 1) skal leiðbeina hinum grunaða um þennan rétt.] 2) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 58/2019, 22. gr. [67. gr. c. Fyrning. Heimild [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) til að leggja á stjórnvaldssektir samkvæmt lögum þessum fellur niður þegar fimm ár eru liðin frá því að háttsemi lauk. Fyrningarfrestur rofnar þegar [Umhverfis- og orkustofnun] 1) tilkynnir aðila um upphaf rannsóknar á meintu broti. Rof frests hefur réttaráhrif gagnvart öllum sem staðið hafa að broti.] 2) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 58/2019, 22. gr. [67. gr. d. Kæra til lögreglu. [Umhverfis- og orkustofnun] 1) er heimilt að kæra brot á lögum þessum og reglugerðum sem settar eru á grundvelli þeirra til lögreglu. Varði meint brot á lögum þessum og reglugerðum sem settar eru á grundvelli þeirra bæði stjórnvaldssektum og refsingu metur [Umhverfis- og orkustofnun] 1) hvort mál skuli kært til lögreglu eða því lokið með stjórnvaldsákvörðun hjá stofnuninni. Ef brot eru meiri háttar ber [Umhverfis- og orkustofnun] 1) að vísa þeim til lögreglu. Brot telst meiri háttar ef verknaður er framinn með sérstaklega vítaverðum hætti eða við aðstæður sem auka mjög á saknæmi brotsins. Jafnframt getur [Umhverfis- og orkustofnun] 1) á hvaða stigi málsins sem er vísað máli vegna brota á lögum þessum eða reglugerðum sem settar eru á grundvelli þeirra til opinberrar rannsóknar. Gæta skal samræmis við úrlausn sambærilegra mála. Með kæru [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) skulu fylgja afrit þeirra gagna sem grunur um brot er studdur við. Ákvæði IV.–VII. kafla stjórnsýslulaga gilda ekki um ákvörðun [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) um að kæra mál til lögreglu. [Umhverfis- og orkustofnun] 1) er heimilt að láta lögreglu og ákæruvaldi í té upplýsingar og gögn sem stofnunin hefur aflað og tengjast brotum sem til rannsóknar eru hjá lögreglu og ákæruvaldi og taka þátt í aðgerðum lögreglu að öðru leyti. Lögreglu og ákæruvaldi er heimilt að láta [Umhverfis- og orkustofnun] 1) í té upplýsingar og gögn sem þau hafa aflað og tengjast brotum sem til meðferðar eru hjá stofnuninni og taka þátt í aðgerðum hennar að öðru leyti. Telji ákærandi að ekki séu efni til málshöfðunar vegna ætlaðrar refsiverðrar háttsemi sem jafnframt varðar stjórnsýsluviðurlögum getur hann sent eða endursent málið til [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) til meðferðar og ákvörðunar.] 2) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 58/2019, 22. gr. [68. gr.]1) Viðurlög. Brot gegn ákvæðum laga þessara, reglugerðum settum samkvæmt þeim og samþykktum sveitarfélaga varða sektum hvort sem þau eru framin af ásetningi eða stórfelldu gáleysi. Sé um stórfelld eða ítrekuð ásetningsbrot að ræða varða brot á lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim fangelsi allt að fjórum árum. Tilraun til brota gegn lögum þessum, reglugerðum og https://www.althingi.is/lagas/nuna/2003055.html 31/33 27/08/2026, 15:47 55/2003: Lög um meðhöndlun úrgangs | Lög | Alþingi samþykktum sem settar eru á grundvelli þeirra varðar refsingu sem fullframið brot, sbr. III. kafla almennra hegningarlaga. Sama gildir um hlutdeild í brotum. Sektir má ákvarða lögaðila þó að sök verði ekki sönnuð á fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðra þá einstaklinga sem í þágu hans starfa, enda hafi brotið orðið eða getað orðið til hagsbóta fyrir lögaðilann. Einnig má, með sama skilorði, gera lögaðila sekt ef fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans eða aðrir einstaklingar sem í þágu hans starfa gerast sekir um brot. 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 63/2014, 30. gr. [XIV. kafli.]1) [Innleiðing og gildistaka.]2) 1) L. 65/2017, 15. gr. 2)L. 63/2014, 36. gr. [69. gr. Innleiðing. Lög þessi eru sett til innleiðingar á eftirfarandi gerðum:

  17. 1. Tilskipun 2008/98/EB um úrgang og um niðurfellingu tiltekinna tilskipana sem vísað er til í lið 32ff í XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2011.

  18. 2. Tilskipun 1999/31/EB um urðun úrgangs sem vísað er til í lið 32d í XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 56/2001.

  19. 3. Tilskipun 2000/53/EB um úr sér gengin ökutæki sem vísað er til í lið 32e í XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 92/2003.

  20. 4. Tilskipun 2000/76/EB um brennslu úrgangs sem vísað er til í lið 20 í XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 57/2003. 5. [Tilskipun 2012/19/ESB um raf- og rafeindabúnaðarúrgang sem vísað er til í lið 32fa í XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 195/2015.] 1) 6. … 1)

  21. 7. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs sem vísað er til í lið 32c í XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 73/2008.

  22. 8. Tilskipun 2006/21/EB um meðhöndlun úrgangs frá námuiðnaði og breytingu á tilskipun 2004/35/EB sem vísað er til í lið 1i í XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2009.

  23. 9. Tilskipun 2006/66/EB um rafhlöður og rafgeyma og notaðar rafhlöður og rafgeyma og um niðurfellingu tilskipunar 91/157/EBE sem vísað er til í lið 12x í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 141/2007. [10. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013 um endurvinnslu skipa og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1013/2006 og tilskipun 2009/16/EB.] 1)] 2) 1) L. 65/2017, 18. gr. 2)L. 63/2014, 35. gr. [70. gr.]1) Lög þessi öðlast þegar gildi. Reglugerðir sem settar hafa verið á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og eiturefni og hættuleg efni og varða úrgang halda gildi sínu að svo miklu leyti sem þær samræmast lögum þessum. 1) L. 63/2014, 35. gr. Ákvæði til bráðabirgða. I. https://www.althingi.is/lagas/nuna/2003055.html 32/33 27/08/2026, 15:47 55/2003: Lög um meðhöndlun úrgangs | Lög | Alþingi Rekstraraðilar urðunarstaða sem eru í rekstri við gildistöku laga þessara skulu fyrir 31. desember 2003 senda Umhverfisstofnun áætlun um hvernig unnt sé að laga rekstur urðunarstaðarins að ákvæðum laga þessara. Þeir urðunarstaðir sem eru í rekstri við gildistöku laga þessara skulu uppfylla kröfur laganna fyrir 16. júlí 2009, ella skal þeim lokað. Ef urðunarstaður er í rekstri í eyju hér við land við gildistöku laga þessara og er lokað eftir gildistöku laganna getur Umhverfisstofnun veitt undanþágu frá sýnatöku eftir því sem aðstæður á viðkomandi urðunarstað mæla með vegna vöktunar á sigvatni, grunnvatni og mælingum á breytingum á umfangi þess úrgangs sem urðaður hefur verið. Slík undanþága er þó einungis heimil hafi eingöngu verið tekið við heimilis- og rekstrarúrgangi eða óvirkum úrgangi á viðkomandi urðunarstað og um er að ræða urðunarstað sem getur að hámarki tekið við 15.000 tonnum af úrgangi eða að hámarki 1.000 tonnum á ári og er eini urðunarstaðurinn í eyjunni og þjónar henni einni. Í reglugerð skal kveðið nánar á um aðlögun starfandi urðunarstaða. II. Frá gildistöku laga þessara til ársins 2010 skal starfa samráðsnefnd umhverfisráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga um framkvæmd laganna. Nefndin skal skipuð sex mönnum, þremur samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga og þremur samkvæmt tilnefningu umhverfisráðherra. Nefndin skal fylgjast með þróun meðhöndlunar úrgangs hérlendis og á Evrópska efnahagssvæðinu. Sérstaklega skal nefndin fylgjast með hvernig markmiðum laganna er náð og meta þann kostnað sem hlýst af því. Nefndin skal skila árlegri skýrslu til umhverfisráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga og setja fram eftir því sem þörf krefur tillögur um hvernig kostnaðinum verði mætt. Tilnefningaraðilar skulu bera kostnað vegna fulltrúa sinna í nefndinni. [III. Þrátt fyrir ákvæði 5. málsl. 2. mgr. 23. gr. er sveitarfélagi heimilt að innheimta allt að 50% af heildarkostnaði sveitarfélagsins til 1. janúar 2025.] 1) 1) L. 103/2021, 27. gr. [Viðauki I. …1)]2) 1) L. 58/2011, 21. gr. 2)L. 73/2008, 4. gr. https://www.althingi.is/lagas/nuna/2003055.html 33/33

Waste Management Act (No. 55 of 2003) · Nelum