تخطَّ إلى المحتوى
Nelum
قوانين آيسلندا

Regulation no. 1273 on support for horticulture

صدر في 2020-12-16 · النص بتاريخ 2026-10-01

القانون العام والإرشادات الرسمية منشورة بوصفها أبحاثاً. ليست مشورة قانونية أو ضريبية أو مالية.

البحث نفسه مكتوب بالإنجليزية. العناوين والوسوم مترجمة؛ أما النتائج والاقتباسات فغير مترجمة.

عن هذا القانون

العنوان الأصلي
Reglugerð um stuðning við garðyrkju.
اللغة
Icelandic
النوع
لائحة
الدولة
آيسلندا
الموضوعات
Energy, Cultivated plants
الكلمات المفتاحية
plant production, urban and peri-urban agriculture, agricultural commodities, subsidy/incentive, special fund, ecological production/organic production, data collection/reporting, procedural matters, inspection, research
الفئات
agriculture

أين تقرؤه

النص

نص القانون نفسه، مادةً مادة، كما هو محفوظ. لكل مادة رابطها.

  1. 1. Nafn, heimilisfang og kennitölu handhafa beingreiðslna ásamt virðisaukaskattsnúmeri og búsnúmeri garðyrkjubýlis. https://files.reglugerd.is/pdf/1273-2020/current Bls. 5 af 11 Nr. 1273/2020 Útgáfa í gildi frá 17. des. 2020 (Dags. skjals 28. mars 2022)

  2. 2. Nafn, heimilisfang og kennitölu kaupanda ásamt virðisaukaskattsnúmeri.

  3. 3. Upplýsingar um framleiðslu eða afreikninga. Ef um beingreiðslur B er að ræða skal jafnframt skila inn mánaðarlega fjölda fermetra að grunnfleti í framleiðslu hverrar tegundar. Ef um beingreiðslur vegna raforku er að ræða þá rauntölur notkunar.

  4. 4. Sölunótur skulu bera með sér tegund afurðar, selt magn í kg/einingu, skiptingu magns eftir gæðaflokkum, verð á kg fyrir hverja afurðaeiningu og verðmæti alls. Séu þessar upplýsingar sendar á rafrænu formi er ekki skylt að afreikningar eða sölunótur fylgi, aðeins að þessi gögn séu til staðar og aðgengileg sé eftir þeim leitað og að viðeigandi fylgiskjalsnúmer sé skráð og komi fram. Þau gögn sem þannig eru frágengin skulu staðfest með undirritun eða öðrum fullnægjandi hætti, af eða fyrir hönd viðkomandi handhafa beingreiðslna eftir umboði. Ráðuneytið getur hvenær sem er óskað eftir aðgangi að frumgögnum til staðfestingar. Handhafa beingreiðslna er skylt að halda eftir afriti af gögnum til að vinna lokauppgjör ársins eftir. 21. gr. Staðfesting lokauppgjörs fyrir árið. Hver framleiðandi, sem hlotið hefur beingreiðslur á árinu, skal senda ráðuneytinu rafrænt, fyrir 15. febrúar ár hvert, heildaruppgjör fyrir árið staðfest af löggiltum endurskoðanda. Uppgjörið skal sýna selt magn eftir tegundum, yrki og gæðaflokkum eigin framleiðslu skv. 13. gr., fermetrafjölda að grunnfleti ef um beingreiðslur B er að ræða ásamt reikningum vegna orkukaupa. Komi fram misræmi frá áður innsendum gögnum, þ.e. afreikningum og sölunótum skal leggja fram afrit af þeim bókhaldsgögnum sem standa þar að baki og gera grein fyrir leiðréttingum. Við lokauppgjör eru beingreiðslur A greiddar á kg af tómötum, gúrkum og papriku, eftir seldu magni árið áður. Beingreiðslur B eru greiddar á fermetrafjölda gróðurhúsa að grunnfleti og beingreiðslur vegna flutnings- og dreifingarkostnaðar raforku greiddar á MWh. Ráðuneytinu er heimilt að láta sannreyna niðurstöður uppgjörs með vettvangsheimsókn. 22. gr. Fullnægjandi skil á skýrsluhaldi. Til þess að uppfylla skilyrði um fullnægjandi skýrsluhald þarf að skrá eftirfarandi upplýsingar í Jörð:

  5. 1. Nafn, kennitölu og heimilisfang framleiðanda, búsnúmer og landnúmer jarðar sem ræktað er á. ÍSAT- númer búrekstrar samkvæmt skráningu hjá RSK.

  6. 2. Virkt virðisaukaskattsnúmer búrekstrar.

  7. 3. Eftirfarandi upplýsingar um hvert ræktunarrými/spildu: a. Nafn og/eða einkvæmt númer ræktunarrýmis/spildu. b. Ræktun til manneldis, þ.e. útiræktað grænmeti, garðávextir, ylræktartegundir og sveppir. c. Tegund, yrki ræktunar og skiptingu garðávaxta í rótarafurðir eða afurðir ræktaðar ofanjarðar. d. Stærð ræktunarýmis/spildu í fermetrum eða hekturum, eftir því sem við á. e. Ræktunartímabil/ræktunarár. f. Dagsetningu sáningar eða útplöntunar, eftir því sem við á. g. Uppskerutímabil. h. Notkun alls áburðar (áburðargjöf). i. Notkun á öllum plöntuverndarvörum, ef við á. j. Heildaruppskeru í kg eða einingum, eftir því sem við á.

  8. 4. Ef um beingreiðslur B skv. III. kafla er að ræða: https://files.reglugerd.is/pdf/1273-2020/current Bls. 6 af 11 Nr. 1273/2020 Útgáfa í gildi frá 17. des. 2020 (Dags. skjals 28. mars 2022) a. Fasteignanúmer gróðurhúss.

  9. 5. Ef um ræktunarstyrk skv. IX. kafla er að ræða: a. Hnitsetningu ræktunarspildu byggða á landupplýsingakerfi (LUK) sem byggir á stafrænu túnkorti. Kortið á að sýna nákvæmlega þær ræktunarspildur sem eru grundvöllur að styrkjum. Þegar metið er hvort túnkort er fullnægjandi skal byggja það mat á því hvort fagaðili hafi teiknað og mælt viðkomandi ræktun með viðurkenndum aðferðum. VI. KAFLI Kynbótaverkefni. 23. gr. Ráðstöfun framlaga. Framkvæmdanefnd búvörusamninga gerir tillögu til ráðherra um greiðslu framlaga til kynbótaverkefna í garðyrkju að fenginni ráðgefandi umsögn fagráðs í garðyrkju. Sérstaka áherslu skal leggja á loftslagstengd verkefni. VII. KAFLI Lífræn framleiðsla. 24. gr. Rétthafar stuðnings. Framleiðendur sem uppfylla skilyrði 3. gr. og hafa byrjað lífræna aðlögun undir eftirliti faggiltrar vottunarstofu og í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar, með síðari breytingum, geta sótt um stuðning til aðlögunar að lífrænum framleiðsluháttum. Skilyrði fyrir stuðningi eru fullnægjandi skil á skýrsluhaldi hverju sinni. 25. gr. Auglýsing og umsókn. Umsóknum skal skila rafrænt til ráðuneytisins, eigi síðar en 15. maí ár hvert. Í umsókn skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:

  10. 1. Upplýsingar um nafn, kennitölu og lögheimili framleiðanda sem sækir um stuðning.

  11. 2. Upplýsingar um búsnúmer lögbýlis sem verið er að aðlaga að lífrænni framleiðslu.

  12. 3. Lýsing á búrekstrinum sem verið er að aðlaga að lífrænni framleiðslu, þar með talið upplýsingar um tegund ræktunar, flatarmál lands eftir tegund nytja og aðstæður í ræktun sem breyta þarf til að mæta kröfum um lífræna ræktun.

  13. 4. Áætlaður aðlögunarkostnaður á umsóknarári samkvæmt kostnaðaráætlun.

  14. 5. Upplýsingar um áður fenginn aðlögunarstuðning ef við á. Fylgiskjöl með fyrstu umsókn:

  15. 1. Kostnaðaráætlun unnin af fagaðila. Í kostnaðaráætlun skal meðal annars leggja mat á þann kostnað vegna lífrænnar aðlögunar sem framleiðandi þarf að bera frá því að lífræn aðlögun hefst og þar til að lífræn vottun fæst. Kostnaðinn skal áætla fyrir hvert ár aðlögunarinnar og skal líta til eftirfarandi þátta: a. Fjárfestingar: Breytingar á húsakosti til að uppfylla kröfur, námskeið og fræðsluefni til að byggja upp þekkingu framleiðanda. b. Rekstrarútgjöld sem tengjast sérstaklega aðlögunarferlinu: Gerð aðlögunaráætlunar; greiningar jarðvegssýna, gerð jarðakorta, ráðgjöf búnaðarráðunauta; og fyrstu úttektir vottunarstofu. https://files.reglugerd.is/pdf/1273-2020/current Bls. 7 af 11 Nr. 1273/2020 Útgáfa í gildi frá 17. des. 2020 (Dags. skjals 28. mars 2022) c. Lækkun tekna vegna minni framleiðslu á hverja flatar- og búfjáreiningu: Ræðst m.a. af þekkingu og hæfni framleiðanda, jarðvegsgerðar, landsháttum, veðurfari og fyrirkomulagi búreksturs árin áður en aðlögun hefst.

  16. 2. Afrit af áætlun um aðlögun að lífrænni landbúnaðarframleiðslu, staðfest af faggildri vottunarstofu.

  17. 3. Staðfesting faggildrar vottunarstofu um að umsækjandi hafi undirritað samning við hana um reglubundið eftirlit með framleiðslunni samkvæmt reglum um lífræna framleiðslu. Einnig skal fylgja staðfesting faggiltrar vottunarstofu um að umsækjandi hafi lokið a.m.k. átta klukkustunda námskeiði fagaðila, eins eða fleiri, um lífræna aðlögun landbúnaðarframleiðslu, þar sem fjallað er um aðlögunarferlið, skráningar og skýrsluhald í lífrænum búskap, fyrirkomulag eftirlits og vottunar og fyrirkomulag ráðgjafar og stuðnings við lífræna aðlögun. 26. gr. Hámarksframlög. Stuðningur við hvern framleiðanda getur að hámarki numið 50% af árlegum aðlögunarkostnaði skv. 4. tl. 1. mgr. 25. gr. með tilliti til umfangs aðlögunar. Hver framleiðandi getur þó ekki fengið hærra framlag árlega en 20% af heildarframlögum stuðningsins samkvæmt fjárlögum. Heimilt er að veita framleiðanda árlegan aðlögunarstuðning á meðan aðlögun undir eftirliti faggiltrar vottunarstofu stendur yfir. Umsækjandi skal þá sækja um að nýju skv. 25. gr. Ný umsókn skal vera með uppfærðum upplýsingum og fylgiskjölum auk þess skal fylgja með umsókn staðfesting faggiltrar vottunarstofu á að aðlögun standi yfir samkvæmt áætlun. 27. gr. Eftirlit og úttektir. Heimilt er að kalla eftir frekari upplýsingum frá framleiðanda til að meta umsókn. Hætti framleiðandi lífrænni aðlögun án þess að hljóta lífræna vottun innan tveggja ára frá því aðlögunarstuðningur var síðast veittur er heimilt að krefjast endurgreiðslu á greiddum stuðningi, að hluta til eða í heild sinni, ásamt kostnaði við innheimtu. VIII. KAFLI Þróunarfjármunir. 28. gr. Þróunarverkefni í garðyrkju. Fjármunum vegna þróunarverkefna er ætlað að styðja við kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun í garðyrkju. Styrkhæf eru: Ráðgjafaverkefni, kynningarverkefni, rannsókna- eða tilraunaverkefni, vöruþróunarverkefni og endurmenntunarverkefni. Auglýst er eftir umsóknum tvisvar á ári og styrkjum er úthlutað eftir umsóknum og í samræmi við reglugerð þessa. 29. gr. Umsagnir fagráða. Fagráð í garðyrkju skal gefa umsagnir um allar umsóknir sem berast, eftir því sem við á. Fagráðið skal leggja faglegt mat á umsóknir um styrk. Meðmæli fagráðs er forsenda styrkveitingar. Sé fagráð vanhæft til að fjalla um umsókn skal það tilkynna ráðuneytinu um vanhæfi sitt. Heimilt er að afgreiða umsókn án umsagnar fagráðs. Í slíkum tilvikum er heimilt að leita til sérfræðinga eða fagaðila til að leggja mat á umsóknina. Fagráð skulu setja sér verklagsreglur um mat á umsóknum um þróunarfé. Í reglunum er heimilt að kveða á um hámarkshlutfall þróunarfjár af heildarkostnaði hvers verkefnis sem talið er styrkhæft. https://files.reglugerd.is/pdf/1273-2020/current Bls. 8 af 11 Nr. 1273/2020 Útgáfa í gildi frá 17. des. 2020 (Dags. skjals 28. mars 2022) 30. gr. Styrkþegar og umsókn. Þrátt fyrir 3. gr. geta styrkþegar verið einstaklingar, rannsóknarhópar, háskólar, rannsóknarstofnanir, félög og fyrirtæki. Umsóknum skal skila til ráðuneytisins með rafrænum hætti. Umsókn skulu fylgja eftirtalin gögn, eftir því sem við á: a. Listi yfir alla sem aðild eiga að verkefninu. b. Yfirlit um tilgang og markmið verkefnis þ.m.t. rökstuðningur fyrir því hvernig það fellur að þeim markmiðum sem tilgreind eru í 28. gr. og hvernig það gagnast að öðru leyti. c. Tímaáætlun verkefnisins og upplýsingar um helstu áfanga þess. d. Fjárhagsáætlun verkefnisins í heild. e. Upplýsingar um hvernig niðurstöður verkefnisins verða kynntar. Heimilt er að óska eftir frekari gögnum sé þess þörf til að leggja mat á umsókn. 31. gr. Greiðsla. Áður en styrkur er greiddur skal umsækjandi staðfesta að fjármögnun verkefnisins í heild hafi verið tryggð, sbr. d-lið 30. gr. Greiða má allt að 40% af samþykktum styrk til styrkþega þegar verkefni er sannanlega hafið. 20% af styrk má svo greiða þegar áfangaskýrslu hefur verið skilað sem gefur til kynna að framvinda verkefnisins sé a.m.k. 60% af heildarverkefninu. Eftirstöðvar framlagsins, 40%, má þá greiða þegar lokaskýrslu hefur verið skilað og hún samþykkt af fagráði. Heimilt er að víkja frá þessu ef eðli verkefnisins eða aðrar veigamiklar ástæður krefjast þess. 32. gr. Lokaskýrsla. Styrkþegar skulu skila skýrslu um verkefnið til ráðuneytisins eigi síðar en 6 mánuðum eftir að því lýkur. Sé verkefnið til lengri tíma en eins árs skal skila árlegri áfangaskýrslu. Í skýrslunni skal lagt mat á framgang verkefnisins og hverju það hafi skilað fyrir viðkomandi framleiðanda. Heimilt er að leita umsagna viðkomandi fagráðs um verkefnaskýrslur sem styrkþegum er gert að skila. Allar lokaskýrslur skulu samþykktar í viðkomandi fagráði. 33. gr. Styrkur fellur niður. Styrkveitingar til verkefna þar sem ekki tekst að uppfylla skilyrði þessara reglna um skýrsluskil og lok verkefnis, skv. 30. og 31. gr., innan 12 mánaða frá því að ráðuneytið samþykkir fyrirheit um styrk, falla niður. Heimilt er, vegna sérstakra aðstæðna, að veita frest til ráðstöfunar framlaga á næsta ári eftir úthlutun, enda hafi borist formleg beiðni þess efnis frá styrkþega fyrir lok úthlutunarárs. Heimilt er að krefjast endurgreiðslu á greiddum styrk, að hluta til eða í heild sinni ásamt kostnaði við innheimtu, ef verkefni sem veittur hefur verið styrkur fyrir er ekki framkvæmt í samræmi við áætlanir. https://files.reglugerd.is/pdf/1273-2020/current Bls. 9 af 11 Nr. 1273/2020 Útgáfa í gildi frá 17. des. 2020 (Dags. skjals 28. mars 2022) IX. KAFLI Jarðræktarstyrkur. 34. gr. Framlögum skal varið til jarðræktar, þ.e. vegna útiræktunar á grænmeti, kartöflum og garðávöxtum til manneldis. Uppskera er forsenda fyrir jarðræktarstyrk. Rafrænni umsókn skal skila eigi síðar en 15. ágúst ár hvert vegna ræktunar á yfirstandandi ári. Skilyrði fyrir veitingu stuðnings skv. IX. kafla eru fullnægjandi skil á skýrsluhaldi skv. 22. gr. Í umsókn bús um framlög skulu koma upplýsingar um nafn, kennitölu og heimilisfang umsækjanda, búsnúmer og landnúmer jarðar sem ræktað er og framleiðanda er heimilt að nýta. Þá skal vera tenging við spildur í Jörð, þar sem liggur til grundvallar fullnægjandi túnkort af ræktunarspildu sem sótt er um styrk fyrir. Þegar ræktað er aðeins í hluta af spildu sem sækja á um styrk út á, skal tiltaka hve stór hluti er nýttur fyrir hvert yrki hverrar tegundar. Framlag á hvern hektara (ha) fyrir hvert bú tekur mið af heildarfjölda hektara sem sótt er um. Ekki er greitt framlag fyrir ræktun undir einum hektara. Fjöldi hektara sem sótt er um reiknast í samræmi við eftirfarandi stuðla: Hver framleiðandi getur ekki fengið hærri greiðslur samtals en 10% af því fjármagni sem til ráðstöfunar er árlega. Fjöldi ha sem sótt er um Stuðull umsóttra ha 1-30 ha 1,0 fyrir rótarafurðir 1-30 ha 4,0 fyrir afurðir ræktaðar ofanjarðar > 30 ha 0,7 fyrir rótararfurðir > 30 ha 3,0 fyrir afurðir ræktaðar ofanjarðar 35. gr. Úttektir. Skilyrði þess að ræktun njóti framlags er að fram hafi farið úttekt. Til að standast úttekt vegna jarðræktar þarf að liggja fyrir fullnægjandi stafrænt og hnitsett túnkort af ræktarlandinu í Jörð. Úttektaraðili sannreynir stærð ræktunar og hvort skilyrði til styrkveitinga eru að öðru leyti uppfyllt. Heimilt er að vettvangsúttekt fari einungis fram með tilviljunarkenndu úrtaki, óháð umfangi ræktunar. Ef til staðar eru fullnægjandi gervihnattamyndir af umsóttum spildum, sem nægja til úttektar á umsókn, telst það fullgild vettvangsúttekt. Úttektaraðili skal vera starfsmaður búnaðarsambands eða leiðbeiningarmiðstöðvar sem hefur almenna þekkingu á viðkomandi sviði og ráðuneytið viðurkennir. Um fyrirkomulag úttekta og kostnað við þær skal kveðið á um í samningum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins við úttektaraðila. Úttektir á framkvæmdum skulu berast 15. október á sama ári eftir að umsókn berst og skulu styrkir greiddir fyrir árslok. Úttektir skulu skráðar með hnitsetningu í rafrænt umsóknarkerfi. X. KAFLI Ýmis ákvæði. https://files.reglugerd.is/pdf/1273-2020/current Bls. 10 af 11 Nr. 1273/2020 Útgáfa í gildi frá 17. des. 2020 (Dags. skjals 28. mars 2022) 36. gr. Kolefnishlutleysi. Framkvæmdanefnd búvörusamninga ráðstafar þeim fjármunum sem ætlaðir eru til að stuðla að kolefnishlutleysi íslenskrar garðyrkju að fengnum tillögum Sambands garðyrkjubænda. XI. KAFLI 37. gr. Endurgreiðsla ofgreiddra greiðslna. Ef greiðslur samkvæmt reglugerð þessari hafa verið ofgreiddar ber handhafa greiðslna að endurgreiða ríkinu hið ofgreidda fé. Beri að endurgreiða greiðslur skal handhafi endurgreiða þær með vöxtum sem Seðlabanki Íslands ákveður og birtir skv. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, frá þeim tíma er greiðslan átti sér stað og þar til endurgreiðsla fer fram. Auk almennra vaxta skal handhafi greiða dráttarvexti skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, sbr. 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001. Vextir skulu þó ekki greiddir ef endurgreiðsla fer fram innan 30 daga frá því að greiðsla fór fram. 38. gr. Skerðing og niðurfelling greiðslna. Heimilt er að skerða, fella niður eða krefjast endurgreiðslu á stuðningsgreiðslum samkvæmt reglugerð þessari ef framleiðandi gefur vísvitandi rangar upplýsingar eða brýtur á annan hátt skilyrði reglugerðarinnar. 39. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í búvörulögum nr. 99/1993, með síðari breytingum og öðlast gildi 1. janúar 2021. Við gildistöku þessarar reglugerðar fellur úr gildi reglugerð nr. 630/2020 um stuðning við garðyrkju. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. desember 2020. Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Ása Þórhildur Þórðardóttir. Fyrirvari Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005. Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða. https://files.reglugerd.is/pdf/1273-2020/current Bls. 11 af 11

Regulation no. 1273 on support for horticulture · Nelum