تخطَّ إلى المحتوى
Nelum
قوانين آيسلندا

Act on aquaculture

صدر في 2008-06-11 · النص بتاريخ 2026-10-01

القانون العام والإرشادات الرسمية منشورة بوصفها أبحاثاً. ليست مشورة قانونية أو ضريبية أو مالية.

البحث نفسه مكتوب بالإنجليزية. العناوين والوسوم مترجمة؛ أما النتائج والاقتباسات فغير مترجمة.

عن هذا القانون

العنوان الأصلي
Lög um fiskeldi.
اللغة
English
النوع
قانون
المنظمة
European Union
الدولة
آيسلندا
الموضوعات
Fisheries and aquaculture
الكلمات المفتاحية
basic legislation, aquaculture, mariculture, environmental impact assessment (EIA), coastal zone management, authorization/permit, special fund, stock enhancement/repopulation, fishery management and conservation

أين تقرؤه

    لا يوجد رابط مصدر مسجل لهذا القانون.

النص

نص القانون نفسه، مادةً مادة، كما هو محفوظ. لكل مادة رابطها.

  1. Lagasafn (útgáfa 148b) – Íslensk lög 15. apríl 2018 Nr. 71 2008 1 2008 nr. 71 11. júní Lög um fiskeldi Tóku gildi 1. júlí 2008. Breytt með l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011), l. 131/ 2011 (tóku gildi 1. jan. 2012), l. 157/2012 (tóku gildi 3. jan. 2013), l. 49/2014 (tóku gildi 29. maí 2014 nema 3. gr., 5. gr., 2. mgr. 7. gr., 3. og 5. mgr. c-liðar 8. gr., a-liður 11. gr., 12. gr., 16. gr., 21. gr. og 22. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2015) og l. 113/2015 (tóku gildi 1. júlí 2016). Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við sjávarútvegs- og landbúnaðarráð herra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. I. kafli. Markmið, gildissvið og skilgreiningar. � 1. gr. Markmið. � Markmið laga þessara er að skapa skilyrði til uppbygg ingar fiskeldis og efla þannig atvinnulíf og byggð í landinu, stuðla að ábyrgu fiskeldi og tryggja verndun villtra nytja stofna. Skal í því skyni leitast við að tryggja gæði framleiðsl unnar, koma í veg fyrir hugsanleg spjöll á villtum nytjastofn um og lífríki þeirra og tryggja hagsmuni þeirra sem nýta slíka stofna. [Til að ná því markmiði skal tryggt að eldisbúnaður og framkvæmd í sjókvíaeldi standist ströngustu staðla sem gerðir eru fyrir fiskeldismannvirki í sjó.]1) � Við framkvæmd laganna skal þess ávallt gætt að sem minnst röskun verði á vistkerfi villtra fiskstofna og að sjálf bærri nýtingu þeirra sé ekki stefnt í hættu. 1) L. 49/2014, 1. gr. � 2. gr. Gildissvið. � Lög þessi taka til eldis vatnafiska og nytjastofna sjávar á íslensku forráðasvæði. Við framkvæmd þeirra skal gætt sam ræmis við framkvæmd laga um lax- og silungsveiði, laga um fiskrækt og laga um varnir gegn fisksjúkdómum. � 3. gr. Skilgreiningar. � Í lögum þessum, reglugerðum og reglum, settum á grund velli þeirra, er merking hugtaka sem hér segir: 1. Alifiskur: Fiskur sem alinn er eða látinn ganga sjálfala í tjörnum eða ílátum. [2. Burðarþolsmat: Mat á þoli fjarða eða afmarkaðra haf svæða til að taka á móti auknu lífrænu álagi án þess að það hafi óæskileg áhrif á lífríkið og þannig að viðkomandi vatns hlot uppfylli umhverfismarkmið sem sett eru fyrir það sam kvæmt lögum nr. 36/2011, um stjórn vatnamála. Hluti burð arþolsmats er að meta óæskileg staðbundin áhrif af eldisstarf semi.]1) [3.]1) Eldisdýr: Lifandi fiskur, krabbadýr eða lindýr frá eld isstöð, óháð þroskastigi, að meðtöldum dýrum sem lifa upp runalega villt en eru ætluð fyrir eldisstöð. [4.]1) Fiskeldi: Geymsla, gæsla og fóðrun vatnafiska, ann arra vatnadýra og nytjastofna sjávar, klak- og seiðaeldi, hvort sem er í söltu eða ósöltu vatni. [5.]1) Fiskeldisstöð: Staður þar sem vatn, sjór, land eða mannvirki er nýtt í þágu fiskeldis. [6.]1) Fiskrækt: Hvers konar aðgerðir sem ætla má að skapi eða auki fisk í veiðivatni eða sjó. [7.]1) Fiskræktarslepping: Slepping samstofna smáseiða eða gönguseiða í því skyni að auka fiskigengd í veiðivatni eða sjó. [8.]1) Fiskstofn: Hópur fiska sömu tegundar sem hrygnir á tilteknum stað og tíma en gerir það ekki í neinum mæli með öðrum hópum á öðrum stað eða tíma. [9.]1) Fiskur: Fiskur í merkingu laga þessara tekur til allra tegunda lagardýra sem lifa í vatni og sjó, hvort sem er við náttúrulegar aðstæður eða í eldi. [10.]1) Geldstofn: Fiskur sem ekki framleiðir frjóar kyn frumur. [11.]1) Göngusilungur: Silungur er gengur úr sjó í ósalt vatn, svo sem sjóbirtingur (urriði) og sjóreyður (bleikja). [12.]1) Hafbeit: Slepping gönguseiða til sjógöngu og föngun þeirra sem fullvaxta fiska á sleppistað þegar þeir ganga úr sjó í ferskt vatn, annaðhvort til slátrunar eða flutnings í annað veiðivatn til endurveiða. [13.]1) Heilsárseldi: Hefðbundið eldi í sjókvíum frá 50 gramma göngustærð upp í markaðsstærð. [14.]1) Kvíaeldi: Fiskeldi í netkvíum (netbúrum) í fersku vatni eða söltu. [15.]1) Kynbætur: Markvisst val með tilliti til ákveðinna arf gengra eiginleika. Slíkir eiginleikar geta verið mikill vaxtar hraði eða síðbúinn kynþroski. Til undaneldis eru valdir fiskar sem sýna ákjósanlega eiginleika umfram aðra fiska í stofn inum. Slíku vali er viðhaldið og það aukið með vali í hverri kynslóð. [16.]1) Lagardýr: Öll dýr með kalt blóð sem lifa og geta af kvæmi í sjó eða fersku vatni. [17.]1) Netlög: Vatnsbotn 115 metra út frá bakka landareign ar að stöðuvatni, svo og sjávarbotn 115 metra út frá stór straumsfjöruborði landareignar. [18.]1) Nytjastofnar: Fiskar og sjávardýr, svo og sjávargróð ur, sem nytjuð eru eða kunna að verða nytjuð í íslenskri fisk veiðilandhelgi, íslensku landgrunni eða á landi með eldi. [19.]1) Sjávarfiskur: Fiskur sem lifir allan sinn lífsferil í sjó. [20.]1) Sjókvíaeldi: Eldi á fiski í netbúrum sem komið er fyrir í sjó eða söltu vatni. [21. Sjókvíaeldissvæði: Fjörður eða afmarkað hafsvæði fyr ir sjókvíaeldi þar sem gert er ráð fyrir einum árgangi eldis fisks hverju sinni og möguleiki er að fleiri en einn rekstr arleyfishafi starfræki sjókvíaeldisstöðvar á sama svæði með skilyrtri samræmingu í útsetningu seiða og hvíld svæðisins. Afmörkun sjókvíaeldissvæða tekur á hverjum tíma mið af niðurstöðum rannsókna á dreifingu sjúkdómsvalda.]1) [22.]1) Sjór: Salt vatn utan árósa. [23.]1) Skiptieldi: Eldi á fiski í strandeldi upp í 250–1.000 grömm og framhaldseldi í sjókvíum upp í markaðsstærð. [24.]1) Strandeldi: Eldi fiska til slátrunar í tönkum eða kerum á landi. [25.]1) Straumvatn: Ósalt vatn, á eða ósasvæði sem í er greinilegur straumur, þá er enginn vöxtur er í, og um stór straumsfjöru. [26.]1) Stöðuvatn: Ósalt vatn sem eigi er í greinilegur straumur annar en sá sem stafar af sjávarföllum, vindi eða aðrennsli í leysingum. [27.]1) Vatn: Ósalt vatn með föstu legi eða farvegi, straum vatn eða stöðuvatn. [28.]1) Vatnadýr: Öll dýr með kalt blóð sem lifa að hluta eða allan sinn lífsferil í fersku vatni. [29.]1) Vatnafiskur: Lax (Salmo salar), silungur (urriði (Salmo trutta), bleikja (Salvelinus alpinus) og regnboga silungur (Oncorhynchus mykiss)), áll (Anguilla anguilla) eða annar vatnafiskur ef ræktaður verður. [30.]1) Vatnasilungur: Silungur sem elur allan aldur sinn í ósöltu vatni, svo sem vatnaurriði, vatnableikja (reyður), lækjasilungur og murta. [31.]1) Veiðivatn: Á eða stöðuvatn sem veiði er í eða mætti í vera ef fiskur væri ræktaður þar. 2 Nr. 71 2008 Lagasafn (útgáfa 148b) – Íslensk lög 15. apríl 2018 [32.]1) Villtur fiskstofn: Fiskstofn þar sem meiri hluti fisks er klakinn í náttúrulegu umhverfi, elst þar upp og er kominn undan villtum foreldrum. [33.]1) Örmerkingar: Merkingar á fiski með málmflísum í trjónuna. 1) L. 49/2014, 2. gr. II. kafli. Stjórnsýsla. � 4. gr. Stjórnsýsla. � [Ráðherra]1) fer með yfirstjórn mála samkvæmt lögum þessum, en framkvæmd stjórnsýslunnar er að öðru leyti í höndum [Matvælastofnunar]2) sem hefur eftirlit með því að ákvæðum laganna sé framfylgt. � [Ákvarðanir [Matvælastofnunar]2) er lúta að veitingu, endurskoðun og afturköllun rekstrarleyfis til fiskeldis, sbr. III. og V. kafla, sæta kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæruna fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefndina. Aðrar ákvarðanir sem [Matvælastofnun]2) tekur á grundvelli laga þessara sæta kæru til ráðherra og fer um kærurnar sam kvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.]3) � Ráðherra skal í samræmi við fyrirmæli einstakra greina laga þessara setja nánari ákvæði um framkvæmd þeirra í reglugerð. Við setningu reglugerða skal ávallt leitað faglegrar umsagnar Fiskistofu, Matvælastofnunar . . . 4) og [Hafrann sóknastofnunar]5) og leitað álits Sambands íslenskra sveit arfélaga, Landssambands fiskeldisstöðva og Landssambands veiðifélaga. � Allar fiskeldisstöðvar skulu hafa með sér samtök, Lands samband fiskeldisstöðva, sem gæta sameiginlegra hagsmuna fiskeldismanna. 1) L. 126/2011, 483. gr. 2) L. 49/2014, 3. gr. 3) L. 131/2011, 2. gr. 4) L. 113/2015, 8. gr. 5) L. 157/2012, 22. gr. � [4. gr. a. Móttaka og afgreiðsla umsókna. � Til starfrækslu fiskeldisstöðva þarf starfsleyfi Umhverfis stofnunar og rekstrarleyfi Matvælastofnunar. � Afhenda skal Matvælastofnun umsóknir um leyfi skv. 1. mgr. og skulu þær afgreiddar samhliða. � Matvælastofnun skal framsenda umsókn um starfsleyfi fyrir eldi ferskvatns- og sjávarlífvera til Umhverfisstofnun ar til meðferðar samkvæmt lögum nr. 7/1998, um hollustu hætti og mengunarvarnir. Umsóknir um starfsleyfi og rekstr arleyfi skal afgreiða innan sex mánaða frá því að þær ber ast. Matvælastofnun skal tilkynna umsækjanda hvort umsókn telst fullnægjandi innan mánaðar frá því að umsóknin berst stofnuninni. Verði tafir á málsmeðferð vegna ófullnægjandi gagna umsækjanda framlengist frestur til afgreiðslu sem því nemur. Þegar Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi skal það sent Matvælastofnun. Ef umsóknir eru samþykktar skulu starfsleyfi og rekstrarleyfi afhent umsækjanda samtímis.]1) 1) L. 49/2014, 4. gr. � 5. gr. Svæðaskipting fiskeldis. � [Ráðherra]1) skal, ef vistfræðileg eða hagræn rök mæla með því, ákveða samkvæmt lögum þessum skiptingu fisk eldissvæða meðfram ströndum landsins. Áður en ákvörð un um slíka svæðaskiptingu er tekin skal ráðherra afla um sagnar [þess ráðuneytis er fer með málefni náttúruvernd ar],1) Fiskistofu, Matvælastofnunar, Landssambands fiskeld isstöðva, Landssambands veiðifélaga, . . . 2) [Hafrannsókna stofnunar]3) og viðkomandi sveitarstjórnar. 1) L. 126/2011, 483. gr. 2) L. 113/2015, 8. gr. 3) L. 157/2012, 22. gr. � 6. gr. Staðbundið bann við starfsemi. � [Ráðherra]1) getur, að fenginni umsögn Fiskistofu, Mat vælastofnunar, . . . 2) [Hafrannsóknastofnunar]3) og viðkom andi sveitarstjórnar, takmarkað eða bannað fiskeldi eða ákveðnar eldisaðferðir í einstaka fjörðum, flóum eða á svæð um sem teljast sérlega viðkvæm gagnvart starfsemi þeirri sem fram fer samkvæmt lögum þessum. � Við ákvörðun ráðherra skv. 1. mgr. skal taka mið af því að markmið laga þessara er m.a. að vernda villta nytjastofna, hvort sem um er að ræða ferskvatnsfiska eða sjávarfiska, og hlífa þeim við fisksjúkdómum og öðrum neikvæðum vist fræðilegum áhrifum. Skal í því sambandi m.a. litið til stað setningar eldisstöðva, stærðar þeirra, fjarlægðar frá veiðiám og veiðiverðmætis á viðkomandi svæði, þ.e. firði eða flóa. Jafnframt skal litið til þess hvort fiskeldissvæði séu á göngu leiðum lax og silungs og hvort straumar geti leitt sleppifisk í ár. � Um skaðabætur vegna tjóns, sem leiðir af banni eða tak mörkun samkvæmt grein þessari, fer eftir því sem mælt er fyrir um í 18. gr. 1) L. 126/2011, 483. gr. 2) L. 113/2015, 8. gr. 3) L. 157/2012, 22. gr. III. kafli. Rekstrarleyfi til fiskeldis. � 7. gr. Rekstrarleyfi. � Til starfrækslu fiskeldisstöðva þarf rekstrarleyfi sem [Matvælastofnun]1) veitir. � [Áður en leyfi skv. 1. mgr. er veitt getur Matvælastofnun aflað umsagnar Fiskistofu, . . . 2) Hafrannsóknastofnunar og viðkomandi sveitarstjórnar eftir því sem við á um hvort nátt úrulegar aðstæður á fyrirhuguðu starfssvæði fiskeldisstöðvar eða fyrirhugaðar eldistegundir, eldisstofnar eða eldisaðferðir gefi tilefni til neikvæðra vistfræði- eða erfðafræðiáhrifa sem leitt getur af leyfisskyldri starfsemi. Þá skal Matvælastofn un meta hvort umsækjandi uppfylli kröfur sem gerðar eru í reglugerð um heilbrigðiskröfur vegna lagareldisdýra og af urða þeirra og um forvarnir og varnir gegn tilteknum sjúk dómum í lagardýrum.]3) � Sé um endurnýjun á rekstrarleyfi að ræða telst ekki nauð synlegt að afla slíkra umsagna enda sé ekki um verulegar breytingar að ræða á eðli og umfangi reksturs. 1) L. 49/2014, 3. gr. 2) L. 113/2015, 8. gr. 3) L. 49/2014, 5. gr. � 8. gr. Umsókn um rekstrarleyfi. � [Umsókn um rekstrarleyfi til fiskeldis skal vera skrifleg. Í henni skulu m.a. koma fram upplýsingar um eignaraðild að fiskeldisstöð, að umsækjandi hafi fullnægjandi fagþekkingu á viðkomandi sviði, að gæðakerfi stöðvarinnar og eldisbúnað ur standist kröfur, sem nánar er kveðið á um í reglugerð um fiskeldi, um stærð og framleiðslugetu stöðvar, eldistegund ir, eldisstofna og eldisaðferðir. Umsókn um rekstrarleyfi sjó kvíaeldisstöðvar skulu fylgja upplýsingar um að eldisbúnað ur umsækjanda standist ströngustu staðla sem gerðir eru fyrir fiskeldismannvirki í sjó en nánar er kveðið á um þær kröf ur sem þarf að uppfylla samkvæmt þessum stöðlum í reglu gerð um fiskeldi. Þá skal fylgja umsókn burðarþolsmat fyrir viðkomandi sjókvíaeldissvæði sem framkvæmt hefur verið af Hafrannsóknastofnun eða öðrum aðila sem ráðuneytið sam þykkir að fenginni bindandi umsögn Hafrannsóknastofnunar. Einnig skal fylgja umsókn afrit af ákvörðun Skipulagsstofn unar um að framkvæmdin sé ekki matsskyld eða álit stofn unarinnar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000, nema fyrir liggi heimild Skipulagsstofnunar skv. 2. mgr. 17. gr. þeirra laga til að vinna samtímis að mati á umhverfisáhrif um og starfsleyfi. Lagasafn (útgáfa 148b) – Íslensk lög 15. apríl 2018 Nr. 71 2008 3 � Umsókn skv. 1. mgr. skulu fylgja skilríki um heim ild til afnota af landi, vatni og sjó. Umsókn skal einnig fylgja áætlun um fjármögnun mannvirkja og annars búnaðar, ásamt staðfestingu um a.m.k. 30% eigin fjármögnun eldisins, rekstraráætlun sem sýnir m.a. uppbyggingarferil eldis, öflun hrogna og seiða og leyfi til mannvirkjagerðar, svo og önnur gögn sem Matvælastofnun eru nauðsynleg til að meta hvort skilyrði til útgáfu rekstrarleyfis séu fyrir hendi.]1) 1) L. 49/2014, 6. gr. � 9. gr. Málsmeðferð umsóknar. � [Umsóknir um rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi á sama sjó kvíaeldissvæði skulu afgreiddar í þeirri röð sem þær berast Matvælastofnun, enda fullnægi umsókn skilyrðum laga þess ara. � Við meðferð umsóknar um rekstrarleyfi til fiskeldis skal Matvælastofnun leggja mat á sjúkdómstengda og vistfræði lega þætti sem kunna að fylgja starfsemi fiskeldisstöðvar.]1) 1) L. 49/2014, 7. gr. � 10. gr. Efni og útgáfa rekstrarleyfis. � Telji [Matvælastofnun]1) að umsókn um rekstrarleyfi full nægi skilyrðum laga þessara skal stofnunin gefa út rekstrar leyfi til tíu ára í senn. Ef vistfræðileg rök mæla með því er heimilt að gefa út rekstrarleyfi til skemmri tíma. � Í rekstrarleyfi skulu vera ákvæði um stærð fiskeldisstöðv ar og hvort um sé að ræða seiðaeldi, strandeldi, skiptieldi eða heilsárseldi. Þá skal í rekstrarleyfi kveðið á um leyfilegar teg undir í eldi, leyfilega eldisstofna, leyfilegt framleiðslumagn og skyldu rekstrarleyfishafa til að annast vöktun og rann sóknir á nánasta umhverfi sínu. Jafnframt skulu í rekstrarleyfi vera ákvæði um varúðarráðstafanir til að koma í veg fyrir að fiskur sleppi vegna eldis eða flutnings á fiski, og ákvæði um áætlun um aðgerðir til að endurheimta fisk sem sleppur. [Í rekstrarleyfi fyrir laxeldi skal kveðið á um skyldu til notk unar erfðavísa þannig að unnt sé að rekja uppruna eldislaxa til ákveðinna sjókvíaeldisstöðva. Ráðherra skal setja í reglu gerð ákvæði um utanáliggjandi merkingu á eldislaxi til að auðveldara sé að aðgreina hann frá villtum laxi.]2) � Ráðherra er í reglugerð heimilt að mæla fyrir um nánari skilyrði sem setja má í rekstrarleyfi. . . . 2) � Við útgáfu rekstrarleyfis skal þess ávallt gætt að fullnægt sé ákvæðum laga um mat á umhverfisáhrifum og laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. � [Matvælastofnun skal hafna útgáfu rekstrarleyfis til sjó kvíaeldis sem felur í sér meiri framleiðslu en viðkomandi sjó kvíaeldissvæði þolir samkvæmt burðarþolsmati. Burðarþols mat skal framkvæmt af Hafrannsóknastofnun eða aðila sem ráðuneytið samþykkir að fenginni bindandi umsögn Hafrann sóknastofnunar. � Gefi Matvælastofnun út rekstrarleyfi til sjókvíaeldis sem gerir ráð fyrir minni nýtingu en 40% af burðarþoli viðkom andi sjókvíaeldissvæðis skulu þau einungis veitt til tiltekins tíma, allt að fjórum árum. Heimilt er að endurnýja slíkt leyfi í fjögur ár í senn en liggi fyrir, við lok leyfistíma, fleiri en ein umsókn um rekstrarleyfi á umræddu svæði og þær uppfylla skilyrði laga þessara skal Matvælastofnun gefa út rekstrar leyfi til þess umsækjanda sem nær hagkvæmastri nýtingu á svæðinu með tilliti til burðarþols. Þó er heimilt að endurnýja fyrra leyfi sem ekki er með hagkvæmasta nýtingu ef munur á nýtingu er óverulegur. � Matvælastofnun skal hafna umsókn um rekstrarleyfi ef umsækjandi uppfyllir ekki kröfur skv. 2. málsl. 2. mgr. 7. gr. � Matvælastofnun skal hafna umsókn ef umsækjandi legg ur ekki fram þau gögn sem kveðið er á um í 8. gr., enda hafi umsækjanda verið gefinn hæfilegur frestur til að leggja fram þau gögn sem vantar. � Matvælastofnun skal hafna umsókn ef mat skv. 2. mgr. 9. gr. bendir til þess að fyrirhugað eldi feli í sér umtalsverða hættu á útbreiðslu sjúkdóma eða umtalsverð óæskileg áhrif á vistkerfi.]2) 1) L. 49/2014, 3. gr. 2) L. 49/2014, 8. gr. IV. kafli. Starfræksla fiskeldisstöðva. � 11. gr. Upphaf starfsemi. � Rekstrarleyfi samkvæmt lögum þessum tekur þá fyrst gildi þegar [Matvælastofnun]1) hefur gert úttekt á fiskeldis stöð [og m.a. staðfest að því er varðar sjókvíaeldi laxfiska að framkvæmd og eldisbúnaður standist ströngustu staðla sem gerðir eru fyrir fiskeldismannvirki í sjó].2) Markmið úttektar er að staðreyna eftir föngum að rekstrarleyfishafi sé fær um að fullnægja skilyrðum laga þessara og skilmálum rekstrar leyfis. � Fiskeldisstöðvum er óheimilt að flytja eldisfisk eða seiði í fiskeldisstöð fyrr en rekstrarleyfi er fengið og úttekt hefur farið fram. 1) L. 49/2014, 3. gr. 2) L. 49/2014, 9. gr. � 12. gr. Friðunarsvæði í sjó. � [Matvælastofnun]1) er heimilt, að fenginni umsögn . . . 2) [Hafrannsóknastofnunar],3) að ákveða friðunarsvæði í sjó framan við frárennsli fiskeldisstöðva með sömu skilyrðum og kveðið er á um í 5. mgr. 15. gr. og 16. gr. laga um lax- og silungsveiði. � Ef sannað þykir að veiðitakmarkanir skv. 1. mgr. hafi í för með sér tjón á fjárhagslegum hagsmunum eiganda sjáv arjarðar skulu þeir bæta honum tjónið sem takmörkunin er til hagsbóta fyrir. Bætur skulu ákveðnar með mati skv. VII. kafla laga um lax- og silungsveiði. 1) L. 49/2014, 3. gr. 2) L. 113/2015, 8. gr. 3) L. 157/2012, 22. gr. � 13. gr. Veiðar fisks sem sleppur. � Rekstrarleyfishafi samkvæmt lögum þessum, sem missir fisk úr fiskeldisstöð, skal án tafar tilkynna slíkan atburð til Fiskistofu. � Rekstrarleyfishafa er skylt að grípa til allra þeirra ráðstaf ana, sem nauðsynlegar eru og í hans valdi standa, til þess að varna því að slíkur atburður, sem greinir í 1. mgr., valdi vist fræðilegu tjóni. Er honum í því skyni m.a. skylt, þrátt fyrir friðun á villtum fiski á svæðinu og án tillits til réttar eigenda sjávarjarða í netlögum, að gera allt sem í hans valdi stendur til að veiddur verði slíkur fiskur á svæði innan 200 metra frá stöðinni. Skal hver eldisstöð eiga og viðhalda nauðsynleg um búnaði í því skyni. Ráðherra skal í reglugerð setja nánari fyrirmæli um hvernig að slíkum veiðum skal staðið. � Skylda til veiða skv. 2. mgr. takmarkast við þrjá sólar hringa frá því að ljóst er að fiskur hafi sloppið út, ef slíkur atburður gerist á göngutíma laxfiska, en veiðitíminn í slíkum tilvikum skal að öðru leyti háður ákvörðun Fiskistofu. Veið ar þær sem hér um ræðir skulu ávallt fara fram í samráði við fulltrúa Fiskistofu. � Ef rekstrarleyfishafi hefur ekki hafið aðgerðir skv. 2. mgr. innan tólf klukkustunda frá því að ljóst er að eldisfiskur slapp út getur Fiskistofa, ef þörf krefur, gefið út almenna heimild til veiða á svæðinu með sömu skilyrðum og fram koma í 2. mgr. � Allan kostnað Fiskistofu og annarra stjórnvalda vegna 4 Nr. 71 2008 Lagasafn (útgáfa 148b) – Íslensk lög 15. apríl 2018 nauðsynlegra aðgerða samkvæmt þessari grein skal rekstr arleyfishafi greiða. � 14. gr. Eftirlit og skýrslugjöf. � [Matvælastofnun]1) skal hafa eftirlit með fiskeldisstöðv um í samræmi við fyrirmæli laga þessara. Eftirlitið skal ná til rekstrar- og fiskeldisþátta í starfsemi stöðvanna og þess að skilyrði í rekstrarleyfi séu haldin. Eftirlit með heilbrigði fiska og heilnæmi eldisafurða skal [einnig]2) framkvæmt af Matvælastofnun í samræmi við lög þar að lútandi. � Til að [Matvælastofnun]1) geti framkvæmt eftirlit skv. 1. mgr. skal rekstrarleyfishafi árlega gefa [Matvælastofnun]1) skýrslu um starfsemi sína. Þar skulu m.a. koma fram upplýs ingar um framleiðslumagn stöðvar, eldisrými, fóðurnotkun, birgðir af fiski, uppruna hans, sjúkdóma og önnur óhöpp í rekstri, svo og önnur þau atriði sem stofnuninni eru nauðsyn leg til virks eftirlits samkvæmt lögum þessum. Þá skal færð dagbók um starfsemina í fiskeldisstöðvum samkvæmt reglu gerð sem [ráðherra]3) setur. [Matvælastofnun]1) skal ætíð vera heimill aðgangur að eldisstöð og dagbók hennar. � Ráðherra skal í reglugerð mæla nánar fyrir um eftirlits hlutverk [Matvælastofnunar].1) [Matvælastofnun]1) er heimilt að fela aðilum sem hlotið hafa faggildingu samkvæmt lögum um faggildingu o.fl. að annast framkvæmd eftirlitsins sam kvæmt sérstökum samningi. Þeir skulu bundnir þagnarskyldu um það sem þeir fá vitneskju um við framkvæmd eftirlitsins og leynt á að fara. Um þagnarskylduna gilda ákvæði 18. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, og skal brot á henni varða refsingu skv. 136. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. � [Fyrir eftirlit Matvælastofnunar eða faggiltra eftirlitsað ila á hennar vegum skulu fiskeldisstöðvar greiða eftirlits gjald samkvæmt gjaldskrá sem ráðherra staðfestir. Eftirlits gjald skal greitt samkvæmt framlögðum reikningi Matvæla stofnunar. Ef eftirlitsgjald er ekki greitt á eindaga reiknast hæstu lögleyfðir dráttarvextir af fjárhæð þess frá gjalddaga til greiðsludags. Eftirlitsgjald má innheimta með fjárnámi án undangengins dóms eða sáttar. Eftirlitsgjaldið skal ekki vera hærra en raunkostnaður sem hlýst af eftirlitinu og er ætlað að standa straum af eftirtöldum kostnaðarþáttum: a. launum starfsfólks sem sinnir störfum vegna eftirlits, b. öðrum kostnaði vegna starfsfólks, þ.m.t. vegna að stöðu, áhalda, búnaðar, þjálfunar, ferðalaga og tengds kostn aðar, c. kostnaði við greiningu á rannsóknastofu og sýna töku.]2) � [Matvælastofnun sér um afmarkaða þætti eftirlits með fiskeldi sem Umhverfisstofnun er falið samkvæmt lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, á grundvelli þjónustusamnings við Umhverfisstofnun. Nánar skal kveðið á um umfang og tilhögun eftirlits og gerð og efni þjónustu samnings í reglugerð sem ráðherra setur.]2) 1) L. 49/2014, 3. gr. 2) L. 49/2014, 10. gr. 3) L. 126/2011, 483. gr. [IV. kafli A. Gjaldtaka og trygging.]1) 1) L. 49/2014, 11. gr. � [14. gr. a. Gjaldtaka. � Við móttöku Matvælastofnunar á umsókn um rekstrarleyfi samkvæmt lögum þessum skulu umsækjendur greiða Mat vælastofnun þjónustugjald vegna þess kostnaðar sem til fell ur við afgreiðslu umsóknar. Ráðherra staðfestir, að fengnum tillögum Matvælastofnunar, gjaldskrá fyrir veitta þjónustu sem stofnuninni er falið að annast í tengslum við afgreiðslu á umsóknum um rekstrarleyfi samkvæmt lögum þessum. Um sóknir um rekstrarleyfi skulu ekki teknar til afgreiðslu fyrr en þjónustugjald hefur verið greitt.]1) 1) L. 49/2014, 11. gr. � [14. gr. b. Trygging. � Fyrir útgáfu rekstrarleyfis til sjókvíaeldis skal umsækj andi leggja fram sönnun þess að hann hafi keypt ábyrgð artryggingu hjá vátryggingafélagi. Ábyrgðartrygging tak markast við að greiða þann kostnað sem til fellur við að fjar lægja búnað sjókvíaeldisstöðvar sem hætt hefur starfsemi, viðgerð á búnaði, hreinsun eldissvæðis og nauðsynlegar ráð stafanir vegna sjúkdómahættu, sbr. 21. gr. b. Ábyrgðartrygg ing skal gilda út gildistíma rekstrarleyfis og í tvö ár að gild istíma loknum. Ráðherra getur sett nánari ákvæði um trygg inguna í reglugerð.]1) 1) L. 49/2014, 11. gr. V. kafli. Afturköllun rekstrarleyfis. � 15. gr. Forsendubrestur. � [Ef fiskeldisstöð hefur ekki innan þriggja ára frá útgáfu rekstrarleyfis hafið starfsemi í samræmi við rekstraráætlun sem fylgdi umsókn samkvæmt ákvæðum 8. gr. skal Mat vælastofnun fella rekstrarleyfið úr gildi. Matvælastofnun get ur veitt undanþágu frá 1. málsl. ef málefnaleg sjónarmið búa að baki töfinni, þó ekki lengur en 12 mánuði. Rekstrarleyfi skal fellt úr gildi ef starfsemi fiskeldisstöðvar stöðvast í tvö ár. Matvælastofnun er heimilt, fimm árum frá útgáfu rekstr arleyfis til sjókvíaeldis, að minnka leyfilegt framleiðslumagn samkvæmt rekstrarleyfi sé nýting þess minni en 50% af burð arþoli sjókvíaeldissvæðis.]1) � Áður en gripið er til afturköllunar leyfis skv. 1. mgr. skal [Matvælastofnun]2) ávallt veita rekstrarleyfishafa skrif lega viðvörun og hæfilegan frest til úrbóta. 1) L. 49/2014, 12. gr. 2) L. 49/2014, 3. gr. � 16. gr. Afturköllun rekstrarleyfis. � [Matvælastofnun]1) getur afturkallað rekstrarleyfi ef leyf ishafi eða starfsmenn hans brjóta gegn ákvæðum laga þessara eða stjórnvaldsfyrirmælum sem sett eru á grundvelli þeirra. Einnig er heimilt að afturkalla leyfi ef leyfishafi eða starfs menn hans brjóta gegn skilyrðum rekstrarleyfis eða skilyrð um þess er að öðru leyti ekki fullnægt. Þá er og heimilt að afturkalla rekstrarleyfi ef leyfishafi verður ófær um að stunda rekstur og þegar eldisfiskur sleppur ítrekað frá fiskeldisstöð. � Áður en gripið er til afturköllunar leyfis skv. 1. mgr. skal [Matvælastofnun]1) ávallt veita rekstrarleyfishafa skrif lega viðvörun og hæfilegan frest til úrbóta. 1) L. 49/2014, 3. gr. VI. kafli. Ýmis ákvæði. � 17. gr. Framsal. � Framsal, leiga og veðsetning á rekstrarleyfi til fiskeldis án skriflegs samþykkis [Matvælastofnunar]1) er óheimil. Slíku samþykki skal þinglýst í samræmi við ákvæði þinglýsinga laga. 1) L. 49/2014, 3. gr. � 18. gr. Skaðabætur. � Ef rekstrarleyfishafi samkvæmt lögum þessum verður um fram aðra fyrir tjóni vegna þess að tekin er ákvörðun um bann eða takmörkun á starfsemi með heimild í 6. gr. laga þessara skal slíkt tjón bætt úr ríkissjóði. Um ákvörðun bóta fer sam kvæmt almennum reglum. � Ef sannað þykir að missir eldisfisks úr fiskeldisstöð valdi tjóni á hagsmunum veiðiréttarhafa, sem verndar njóta sam kvæmt lax- og silungsveiðilögum, skal viðkomandi rekstrar Lagasafn (útgáfa 148b) – Íslensk lög 15. apríl 2018 Nr. 71 2008 5 leyfishafi bæta tjónið á grundvelli mats skv. VII. kafla laga um lax- og silungsveiði. Hið sama á við um tjón annarra þeirra sem hafbeit, fiskeldi eða fiskrækt stunda. � Ef sannað þykir að starfsemi samkvæmt lögum þessum valdi tjóni í veiðivatni samkvæmt lax- og silungsveiðilögum í öðrum tilvikum en þeim sem greinir í 2. mgr. skal það tjón bætt eftir mati skv. VII. kafla þeirra laga, ef eigi semur. � 19. gr. Tilflutningur eldisfisks. � Kynbættan eldisfisk er eingöngu heimilt að nýta til fisk eldis og óheimilt er að sleppa honum í fiskrækt eða haf beit. Þó getur Fiskistofa veitt rannsóknaraðila undanþágu til sleppitilrauna í óverulegum mæli, að fenginni umsögn Mat vælastofnunar, [Hafrannsóknastofnunar]1) . . . 2) eða annarra fagaðila ef ástæða þykir til. � Flutningur eldistegunda, sem ekki eru tilgreindar í rekstr arleyfi, milli fiskeldisstöðva, svo og flutningur og sleppingar lifandi fisks og frjóvgaðra hrogna milli ótengdra vatnasvæða, er óheimill. � . . . 1) 1) L. 49/2014, 13. gr. 2) L. 113/2015, 8. gr. � 20. gr. Eldisbúnaður. � Innflutningur á notuðum eldisbúnaði er óheimill. Til slíks búnaðar teljast eldiskvíar, eldisker, nætur, fóðrarar og fiski dælur. Þó er heimilt að flytja inn notuð vísindatæki og tækni búnað, m.a. tæki til flutnings sem sannanlega er hægt að sótt hreinsa að mati Matvælastofnunar. Einnig getur Matvæla stofnun með sömu skilyrðum heimilað innflutning á öðrum eldisbúnaði enda þyki sannað að ekki berist smitefni með honum sem valda dýrasjúkdómum. Sækja skal um leyfi fyrir innflutningi á notuðum vísindatækjum, tæknibúnaði og eldis búnaði til Matvælastofnunar sem getur heimilað innflutning að fenginni jákvæðri umsögn fisksjúkdómanefndar. [Ráð herra]1) skal í reglugerð setja nánari fyrirmæli um notkun flutningstækja og búnaðar sem notaður er í starfsemi rekstr arleyfishafa. 1) L. 126/2011, 483. gr. [VI. kafli A. Umhverfissjóður sjókvíaeldis.]1) 1) L. 49/2014, 14. gr. � [20. gr. a. Umhverfissjóður sjókvíaeldis. � Umhverfissjóður sjókvíaeldis er sjálfstæður sjóður í eigu ríkisins og á forræði ráðherra. Markmið sjóðsins er að lág marka umhverfisáhrif sjókvíaeldis. Með sjóðnum skal greiða kostnað við rannsóknir vegna burðarþolsmats, vöktunar og annarra verkefna sem stjórn sjóðsins ákveður. Jafnframt er heimilt að veita veiðiréttarhöfum styrki úr sjóðnum til að mæta þeim kostnaði eða tekjumissi sem þeir hafa orðið fyrir vegna tjóns sem er ekki hægt að rekja til ákveðinnar eldis stöðvar.]1) 1) L. 49/2014, 14. gr. � [20. gr. b. Stjórn Umhverfissjóðs sjókvíaeldis. � Umhverfissjóður sjókvíaeldis lýtur fjögurra manna stjórn sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn. Einn stjórnar maður skal skipaður samkvæmt tilnefningu Landssambands fiskeldisstöðva, einn samkvæmt tilnefningu Landssambands veiðifélaga og einn samkvæmt tilnefningu ráðherra sem fer með umhverfismál. Ráðherra skal skipa formann sjóðsins án tilnefningar og skal atkvæði hans ráða úrslitum ef atkvæði falla jafnt. Varamenn skal skipa með sama hætti.]1) 1) L. 49/2014, 14. gr. � [20. gr. c. Verkefni stjórnar. � Stjórn Umhverfissjóðs sjókvíaeldis hefur yfirumsjón með starfsemi hans í samræmi við lög þessi og reglugerð setta samkvæmt þeim. Verkefni stjórnar eru að: a. skila ársreikningum og reglulegu yfirliti um starfsemi sjóðsins til ráðherra, b. taka ákvarðanir um forgangsröðun verkefna og greiðsl ur úr sjóðnum, c. taka ákvarðanir um ávöxtun eigin fjár, d. tryggja að upplýsingar og gögn sem unnin eru á vegum sjóðsins séu aðgengileg.]1) 1) L. 49/2014, 14. gr. � [20. gr. d. Ráðstöfunarfé Umhverfissjóðs sjókvíaeldis. � Ráðstöfunarfé Umhverfissjóðs sjókvíaeldis er: a. innheimt árgjald af rekstrarleyfishöfum sjókvíaeldis, b. arður af eigin fé.]1) 1) L. 49/2014, 14. gr. � [20. gr. e. Árgjald Umhverfissjóðs sjókvíaeldis. � Rekstrarleyfishafi sjókvíaeldis skal greiða árlegt gjald að upphæð 12 SDR fyrir hvert tonn sem heimilt er að framleiða samkvæmt rekstrarleyfi og rennur það óskipt til Umhverfis sjóðs sjókvíaeldis. � Árgjald skal endurskoðað á fimm ára fresti.]1) 1) L. 49/2014, 14. gr. � [20. gr. f. Álagning og innheimta árgjalds. � Matvælastofnun annast álagningu og innheimtu árgjalds skv. 20. gr. e. Ráðherra er þó heimilt að fela innheimtumönn um ríkissjóðs eða öðrum aðilum innheimtu þess. � Eigi síðar en 30. ágúst ár hvert skal Matvælastofnun hafa lokið álagningu á gjaldendur skv. 20 gr. e og skal gjaldendum tilkynnt bréflega um hana. � Gjöld skv. 20. gr. e vegna yfirstandandi almanaksárs falla í gjalddaga 1. október ár hvert. Ef gjöld eru ekki greidd innan 30 daga frá gjalddaga skal greiða dráttarvexti af þeim skv. III. kafla laga um vexti og verðtryggingu. Álagning gjalds eða úr skurður um gjaldtöku eru aðfararhæfar ákvarðanir. Matvæla stofnun getur krafist fullnustu með aðfarargerð þegar liðnir eru 30 dagar frá gjalddaga.]1) 1) L. 49/2014, 14. gr. � [20. gr. g. Reglugerðarheimild. Kostnaður af rekstri. � Ráðherra er heimilt að setja með reglugerð nánari ákvæði um starfsemi Umhverfissjóðs sjókvíaeldis, þ.m.t. um máls meðferð og reglur um greiðslur úr sjóðnum. � Allur kostnaður af starfsemi Umhverfissjóðs sjókvíaeldis greiðist af sjóðnum.]1) 1) L. 49/2014, 14. gr. VII. kafli. Reglugerðarheimild, refsiákvæði o.fl. � 21. gr. Reglugerðarheimild o.fl. � [Ráðherra]1) setur nánari reglur um framkvæmd laga þess ara með reglugerð.2) Þar skal m.a. kveðið á um útgáfu rekstr arleyfa, merkingar á seiðum í kvíaeldi, fóðurnotkun, end urnýjun eldisbúnaðar, úttekt á fiskeldisstöðvum, eftirlit með starfsemi fiskeldisstöðva, flutning eldistegunda milli fiskeld isstöðva, flutning fisks og frjóvgaðra hrogna milli ótengdra vatnasvæða o.fl. � [Matvælastofnun]3) er, eftir því sem þörf krefur, heimilt að setja svæðis- eða tímabundnar reglur á grundvelli slíkra reglugerða. � [Ráðherra er heimilt að kveða í reglugerð á um skyldu til notkunar geldstofns í sjókvíaeldi.]4) 1) L. 126/2011, 483. gr. 2) Rg. 1254/2008, sbr. 936/2014. Rg. 736/2009, sbr. 10/ 2011. Rg. 168/2011, sbr. 1010/2011, 661/2012, 142/2013, 389/2014, 169/2015 og 317/2017. Rg. 346/2012. Rg. 401/2012, sbr. 626/2015 og 931/2015. Rg. 220/2013. Rg. 221/2013. Rg. 271/2013. Rg. 272/2013. Rg. 273/2013. Rg. 1170/2015, sbr. 283/ 6 Nr. 71 2008 Lagasafn (útgáfa 148b) – Íslensk lög 15. apríl 2018 2016, 93/2017 og 561/2017. Rg. 300/2018. 3) L. 49/2014, 3. gr. 4) L. 49/2014, 15. gr. � [21. gr. a. Dagsektir. � Fari rekstrarleyfishafi ekki að fyrirmælum Matvælastofn unar samkvæmt lögum þessum, reglugerðum settum sam kvæmt þeim eða skilyrðum í rekstrarleyfi innan tiltekins frests getur stofnunin ákveðið að leyfishafi greiði dagsektir þar til úr verður bætt. Ákvörðun um dagsektir skal tilkynnt leyfishafa. � Dagsektir mega nema allt að 500.000 kr. á sólarhring. Við ákvörðun um fjárhæð dagsekta skal m.a. taka tillit til þess hve aðkallandi úrbæturnar eru og hversu stór og umsvifamik ill viðkomandi atvinnurekstur er. � Dagsektir skulu renna í ríkissjóð. � Aðila er heimilt að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um beitingu dagsekta til ráðuneytisins innan fjórtán daga frá því að honum er tilkynnt ákvörðunin. Ráðuneytið skal kveða upp úrskurð eins fljótt og unnt er og að jafnaði innan mánaðar frá því að kæra berst. � Ákvarðanir Matvælastofnunar um dagsektir eru aðfarar hæfar. Málskot til ráðuneytisins frestar aðför.]1) 1) L. 49/2014, 16. gr. � [21. gr. b. Úrbætur á kostnað rekstrarleyfishafa. � Matvælastofnun er heimilt á kostnað rekstrarleyfishafa að láta fjarlægja búnað fiskeldisstöðvar sem hætt hefur starf semi, gera við búnað og hreinsa eldissvæði og gera aðr ar nauðsynlegar ráðstafanir vegna sjúkdómahættu fari hann ekki að fyrirmælum Matvælastofnunar samkvæmt lögum þessum, reglugerðum settum samkvæmt þeim eða skilyrð um í rekstrarleyfi. Skal kostnaður þá greiddur til bráðabirgða af Matvælastofnun en innheimtast síðar hjá rekstrarleyfishafa eða úr ábyrgðartryggingu hans. Kostnað má innheimta með fjárnámi.]1) 1) L. 49/2014, 16. gr. � [21. gr. c. Starfsemi án rekstrarleyfis. � Ef fiskeldisstöð er rekin án þess að rekstrarleyfi sé í gildi skal Matvælastofnun stöðva starfsemina. Eftir þörfum ber lögreglu að veita Matvælastofnun liðsinni í því skyni. Mat vælastofnun er heimilt að slátra eða farga eldisdýrum, fjar lægja búnað sem notaður hefur verið til starfseminnar og gera aðrar nauðsynlegar ráðstafanir skv. 21. gr. b á kostnað þess aðila sem rekið hefur fiskeldisstarfsemi án leyfis. Eld isdýr sem hæf eru til manneldis skulu seld og andvirðið að frádregnum kostnaði Matvælastofnunar vegna sölunnar skal renna í ríkissjóð.]1) 1) L. 49/2014, 16. gr. � 22. gr. Um refsingar. � Það varðar stjórnarmenn og framkvæmdastjóra rekstrar leyfishafa sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, ef sakir eru miklar: a. ef eldisfiskur sleppur úr fiskeldisstöð þar sem umbún aði við fiskeldið hefur verið áfátt vegna athafna eða athafna leysis þeirra sem framið hefur verið af ásetningi eða gáleysi, b. ef þeir brjóta gegn ákvæðum 1. eða 2. mgr. 13. gr. laga þessara af ásetningi eða gáleysi, c. ef fiskeldisstöðvar gefa ekki lögboðnar skýrslur um starfsemi sína eða veita eftirlitsmönnum rangar upplýsingar, d. ef fiskeldisstöðvar gerast að öðru leyti brotlegar gagn vart lögum þessum. VIII. kafli. Gildistökuákvæði. � 23. gr. Gildistaka o.fl. � Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2008. . . . � Ákvæði til bráðabirgða. � Frá gildistöku laga þessara og til loka ársins 2010 skal starfa samráðsnefnd um framkvæmd þeirra, laga um lax og silungsveiði, laga um Veiðimálastofnun, laga um fisk rækt og laga um varnir gegn fisksjúkdómum. Hlutverk sam ráðsnefndar er að fylgjast með og stuðla að greiðri fram kvæmd og virkum skoðanaskiptum þeirra er lögin varða helst. Nefndin skal skipuð af sjávarútvegs- og landbúnaðar ráðherra og í henni sitja tólf fulltrúar tilnefndir af eftirtöldum aðilum: Landssambandi veiðifélaga, Landssambandi stanga veiðifélaga, Landssambandi fiskeldisstöðva, Félagi eigenda sjávarjarða, fisksjúkdómanefnd, Veiðimálastofnun, Matvæla stofnun, Fiskistofu, umhverfisráðuneyti, Hafrannsóknastofn uninni og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Þá skipar sjáv arútvegs- og landbúnaðarráðherra einn nefndarmann án til nefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Sker at kvæði formanns úr ef ágreiningur verður í nefndinni.

Act on aquaculture · Nelum