تخطَّ إلى المحتوى
Nelum
قوانين آيسلندا

Act No. 66 on veterinarians and animal health services

صدر في 1998-06-15 · النص بتاريخ 2026-10-01

القانون العام والإرشادات الرسمية منشورة بوصفها أبحاثاً. ليست مشورة قانونية أو ضريبية أو مالية.

البحث نفسه مكتوب بالإنجليزية. العناوين والوسوم مترجمة؛ أما النتائج والاقتباسات فغير مترجمة.

عن هذا القانون

العنوان الأصلي
Lög um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr.
اللغة
Icelandic
النوع
قانون
المنظمة
European Union
الدولة
آيسلندا
الموضوعات
Livestock, Food and nutrition
الكلمات المفتاحية
animal health, animal welfare, pests/diseases, hygiene/sanitary procedures, slaughtering, governance, authorization/permit, offences/penalties, institution, drugs, food safety and quality

أين تقرؤه

    لا يوجد رابط مصدر مسجل لهذا القانون.

النص

نص القانون نفسه، مادةً مادة، كما هو محفوظ. لكل مادة رابطها.

  1. Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 66 1998 1 1998 nr. 66 15. júní Lög um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr 1) 1) 8. gr. laganna var breytt með l. 100/2020, 112. gr.; breytingin tekur gildi 1. jan. 2021 skv. 111. gr. s.l. Tóku gildi 1. janúar 1999. Breytt með: L. 72/2003 (tóku gildi 10. apríl 2003). L. 49/2004 (tóku gildi 14. júní 2004). L. 76/2005 (tóku gildi 1. jan. 2006). L. 167/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008). L. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008). L. 173/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 20. gr.). L. 143/2009 (tóku gildi 1. mars 2010 nema II.–IV. kafli sem tóku gildi 1. nóv. 2011 (utan 43. gr. í IV. kafla sem tók gildi 1. mars 2010) og 54. og 55. gr. og 9. efnismgr. 63. gr. sem tóku gildi 1. mars 2011; EES-samningurinn: I. og II. viðauki reglugerð 178/2002). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 55/2013 (tóku gildi 1. jan. 2014). L. 33/2018 (tóku gildi 1. jan. 2019 nema a-liður 2. gr. sem tekur gildi 1. jan. 2022). L. 129/2018 (tóku gildi 28. des. 2018). L. 100/2020 (taka gildi 1. jan. 2021 nema 5. mgr. 53. gr. og 79. gr. sem tóku gildi 23. júlí 2020; EES-samningurinn: sjá 110. gr.). L. 101/2020 (tóku gildi 23. júlí 2020). Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við sjávarútvegs- og landbúnaðarráð herra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. I. kafli. Almenn ákvæði. ! 1. gr. " [Lög þessi taka til hvers þess dýralæknis sem er skipaður, settur eða ráðinn til starfa í þágu ríkisins og þeirra dýralækna og heilbrigðisstarfsmanna dýra sem starfa samkvæmt leyfi þar að lútandi sem veitt er eftir lögum þessum.]1) 1) L. 55/2013, 49. gr. ! 2. gr. " [Dýralæknar og heilbrigðisstarfsmenn dýra skulu standa vörð um heilsu dýra í landinu, stuðla að bættu heilsufari og velferð þeirra, aukinni arðsemi búfjár og góðum aðbúnaði og meðferð dýra. Dýralæknar skulu vera á verði gagnvart því að einstaklingar eða samfélagið í heild bíði tjón af völdum dýra sjúkdóma. Með starfi sínu skulu þeir leitast við að girða fyrir hættur sem stafað geta af sjúkum dýrum og neyslu spilltra bú fjárafurða, af innflutningi lifandi dýra og búfjárafurða, efna, áhalda eða hluta sem borið geta með sér smitefni.]1) 1) L. 55/2013, 49. gr. II. kafli. Yfirstjórn. ! 3. gr. " [Ráðherra]1) fer með mál sem þessi lög varða. 1) L. 126/2011, 272. gr. ! 4. gr. " [Ráðherra]1) skipar dýralæknaráð sem skipað er fjórum dýralæknum til fimm ára í senn og er [Matvælastofnun]2) til ráðuneytis. Skal einn tilnefndur af Bændasamtökum Íslands, annar af stjórn Dýralæknafélags Íslands, þriðji af stjórn Til raunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og fjórði án tilnefningar og skal hann jafnframt vera formaður ráðsins. Varamenn skulu tilnefndir á sama hátt. " Ráðið skal ávallt fjalla um innflutning búfjár og erfðaefn is þess sé hans óskað. Einnig skal ráðið fjalla um innflutning annarra dýra, búfjárafurða og aðra þætti er snerta heilbrigð ismál dýra og dýraafurða þegar þess er óskað af ráðherra eða [Matvælastofnun].2) Ráðinu er heimilt, ef aðstæður krefja, að kalla sérfræðinga til ráðuneytis. " Sömu aðilar og taldir eru í 2. mgr. geta vísað ágreinings málum varðandi dýralæknisþjónustu til ráðsins. Við úrlausn þeirra ágreiningsmála skal ráðherra kalla til starfa með ráð inu lögfræðing sem fullnægir skilyrðum um skipan til starfa héraðsdómara. " Ráðið skal halda gerðabók um störf sín. 1) L. 126/2011, 272. gr. 2) L. 167/2007, 63. gr. ! 5. gr. " [[Matvælastofnun]1) er ráðherra og ríkisstjórn til ráðu neytis um allt er varðar heilbrigðismál dýra og hollustuhætti við framleiðslu og meðferð búfjárafurða. " [Matvælastofnun]1) skal m.a. annast: a. [yfirstjórn og eftirlit með störfum . . . 2) dýralækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna dýra sem leyfi hafa sam kvæmt lögum þessum],3) b. yfirumsjón með öllu er varðar heilbrigðismál dýra, hollustu dýrafóðurs og eftirlit þar að lútandi, c. yfirumsjón með heilbrigði sláturdýra, heilbrigðiseftir liti í sláturhúsum og framleiðslu mjólkur auk yfirumsjónar með heilbrigði búfjár og afurða þess, d. yfirumsjón með sjúkdómavörnum dýra, forvörnum, fræðslustarfi varðandi búfjársjúkdóma, innflutningi og út flutningi lifandi dýra, erfðaefnis og búfjárafurða og útgáfu opinberra heilbrigðisvottorða þar að lútandi, e. [skipulagningu, gagnaöflun, sýnatökur, rannsóknir, skýrslugerð og aðrar aðgerðir varðandi dýrasjúkdóma, heil brigðisskoðun sláturafurða og heilbrigðiseftirlit með fram leiðslu mjólkur].2) Stofnunin skal einnig afla upplýsinga um heilbrigðisástand dýra og hollustu dýraafurða í öðrum lönd um eftir því sem nauðsyn krefur og sjá um árlega útgáfu heilbrigðisskýrslna.]4) 1) L. 167/2007, 63. gr. 2) L. 33/2018, 3. gr. 3) L. 55/2013, 49. gr. 4) L. 76/2005, 2. gr. III. kafli. Réttindi og skyldur. ! 6. gr. " [Dýralæknar samkvæmt lögum þessum eru þeir dýra læknar er lokið hafa prófi frá dýralæknaháskóla sem er við urkenndur af íslenskum stjórnvöldum. Jafnframt teljast þeir dýralæknar sem heimild hafa til að starfa hér á landi und ir starfsheiti heimalands síns í samræmi við reglur Evr ópska efnahagssvæðisins eða stofnsamning Fríverslunarsam taka Evrópu. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra setur nánari reglur um leyfisveitingu, menntunarkröfur og viður kenndar menntastofnanir. Ef um er að ræða próf frá dýra læknaháskóla sem er utan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss skal leita umsagnar dýralæknaráðs áður en leyfi er veitt samkvæmt lögunum.]1) " [Þeir einir mega stunda dýralækningar hér á landi sem hlotið hafa til þess leyfi Matvælastofnunar og skulu dýra læknar undirrita eiðstaf þar að lútandi. Ráðherra setur í reglu gerð nánari fyrirmæli um veitingu leyfis til dýralækninga.]2) " . . . 2) [Matvælastofnun]3) heldur skrá yfir dýralækna sem hafa leyfi til að stunda dýralækningar. " Dýralækni er skylt að tilkynna [Matvælastofnun]:3) 1. þegar hann hyggst hefja dýralæknisstörf og aðsetur starfsemi sinnar, 2. flutning aðseturs, 3. starfslok sem dýralæknir. " [Dýralæknum, sem hefja störf á Íslandi, ber að kynna sér íslensk lög og reglur um dýralækningar. [Matvælastofnun er heimilt að gera kröfu í reglugerð um að dýralæknir búi yfir kunnáttu í íslensku eftir því sem við á hverju sinni, enda sé slík kunnátta talin nauðsynleg í starfi.]4) " [Matvælastofnun er heimilt]2) að fela dýralæknanemum á síðari hluta námsferils að gegna tímabundið ákveðnum dýra læknisstörfum undir stjórn dýralæknis . . . 2) 1) L. 143/2009, 36. gr. 2) L. 101/2020, 1. gr. 3) L. 167/2007, 63. gr. 4) L. 129/ 2018, 1. gr. 2 Nr. 66 1998 Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 ! [6. gr. a. " Rétt til þess að starfa hér á landi sem heilbrigðisstarfs maður dýra hefur sá einn sem lokið hefur prófi í einhverri grein heilbrigðisfræði dýra eða lokið námskeiði á viðkom andi sviði viðurkenndu af Matvælastofnun og fengið leyfi stofnunarinnar. " Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um nám og menntunarskilyrði fyrir hverja starfsgrein sem hann ákveður að fella undir lög þessi. Í reglugerð þessari skal m.a. kveðið á um að dýrahjúkrunarfræðingar teljist þeir vera sem hafa lokið prófi í dýrahjúkrun frá skóla sem er viðurkenndur af íslensk um stjórnvöldum. Jafnframt teljast þeir dýrahjúkrunarfræð ingar sem heimild hafa til að starfa hér á landi undir starfs heiti heimalands síns í samræmi við reglur Evrópska efna hagssvæðisins eða stofnsamning Fríverslunarsamtaka Evr ópu. Ráðherra setur nánari reglur um leyfisveitingu, mennt unarkröfur og viðurkenndar menntastofnanir. Ef um er að ræða próf frá skóla sem er utan Evrópska efnahagssvæðis ins og Sviss skal leita umsagnar dýralæknaráðs áður en leyfi er veitt samkvæmt lögunum. " Ráðherra setur jafnframt í reglugerð ákvæði um réttindi og skyldur hverrar starfsgreinar. " Matvælastofnun heldur skrá yfir heilbrigðisstarfsmenn dýra sem hafa leyfi samkvæmt þessari grein.]1) 1) L. 55/2013, 49. gr. ! 7. gr. " [Eingöngu þeir dýralæknar sem hafa leyfi skv. 2. mgr. 6. gr. mega sjúkdómsgreina dýr, ávísa lyfjum, meðhöndla og framkvæma skurð- og læknisaðgerðir á dýrum. " Eingöngu þeir heilbrigðisstarfsmenn dýra sem hafa leyfi skv. 6. gr. a mega meðhöndla og framkvæma aðgerðir á dýr um sem tilgreindar eru í reglugerð samkvæmt sömu grein.]1) 1) L. 55/2013, 49. gr. ! 8. gr. " Dýralækni er einungis heimilt að afhenda eða ávísa lyf seðilsskyldum lyfjum handa dýri þegar hann hefur greint sjúkdóminn. ! 9. gr. " [Dýralækni og heilbrigðisstarfsmanni dýra ber að sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og halda við þekk ingu sinni. Dýralæknir ber ábyrgð á greiningu sjúkdóms og meðferð sjúklinga sinna. Heilbrigðisstarfsmaður dýra ber ábyrgð á þeirri meðhöndlun sem hann framkvæmir.]1) " Dýralækni ber sem kostur er að upplýsa eiganda eða um ráðamann dýrs sem hann fær til meðferðar um ástand, með ferð, horfur og væntanlegan kostnað af meðhöndlun og lyfja meðferð sé þess óskað. Einnig skal hann upplýsa eiganda eða umráðamann um þær hættur sem geta fylgt viðkomandi aðgerð, algengar aukaverkanir lyfja sem notuð eru og lyfja mengun afurða. " Dýralækni ber, sé til hans leitað eða hann nærstaddur og náist ekki í vakthafandi dýralækni, að veita fyrstu nauðsyn lega læknishjálp í skyndilegum sjúkdóms- eða slysatilfellum, nema þeim mun alvarlegri forföll hamli. " Dýralæknar, sem stunda almennar dýralækningar, eiga rétt á og þeim ber skylda til að taka þátt í vaktafyrirkomu lagi sem skipulagt er á viðkomandi vaktsvæði, sbr. 12. gr., nema þeir séu sjálfir sjúkir eða hindraðir af öðrum meira að kallandi embættisstörfum. Dýralækni er heimilt að semja við annan dýralækni um að taka við vaktskyldunni. " Verði dýralæknir var við eða hafi hann grun um að upp sé kominn alvarlegur smitsjúkdómur í dýrum á starfssvæði hans skal hann gera nauðsynlegar bráðabirgðaráðstafanir til að staðfesta gruninn, hefta útbreiðslu sjúkdómsins og koma í veg fyrir tjón sem af honum getur leitt. [Hann skal tafar laust tilkynna [Matvælastofnun]2) um sjúkdóminn og gera í samráði við stofnunina ráðstafanir sem þurfa þykir.]3) " Dýralækni ber að gera árlega skýrslu um læknisstörf sín og senda [Matvælastofnun].2) [Matvælastofnun]2) setur regl ur um hvaða upplýsingar skýrslurnar skuli geyma. " [Dýralækni ber að sýna nákvæmni í útgáfu vottorða og læknisyfirlýsinga. Dýralæknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn dýra eru bundnir þagnarskyldu um þá vitneskju sem þeir öðl ast í starfi sínu og þeim er trúað fyrir og varðar ekki almanna heill. " Dýralækni og öðru heilbrigðisstarfsfólki dýra er einungis heimilt að auglýsa leyfisskylda starfsemi sína með efnisleg um og látlausum auglýsingum.]1) 1) L. 55/2013, 49. gr. 2) L. 167/2007, 63. gr. 3) L. 76/2005, 3. gr. ! 10. gr. " [Dýralæknir hefur leyfi til að kalla sig sérfræðing og starfa sem slíkur hér á landi hafi hann fengið til þess leyfi [Mat vælastofnunar],1) fengið viðurkenningu til að starfa sem sér fræðingur í ríki sem er aðili að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið eða í aðildarríki stofnsamnings Fríverslun arsamtaka Evrópu. " Umsóknir um sérfræðingsleyfi skulu lagðar fyrir dýra læknaráð til umsagnar þegar menntunar er aflað utan Evr ópska efnahagssvæðisins eða utan aðildarríkja stofnsamn ings Fríverslunarsamtaka Evrópu. Við afgreiðslu einstakra umsókna er heimilt að kveðja til sérfróðan dýralækni úr þeirri sérgrein sem sótt er um viðurkenningu á.]2) 1) L. 101/2020, 2. gr. 2) L. 72/2003, 33. gr. IV. kafli. [Héraðsdýralæknar.]1) 1) L. 33/2018, 5. gr. ! 11. gr. " [. . . 1) " Héraðsdýralæknar skulu eingöngu sinna opinberum eft irlitsstörfum og hafa m.a. eftirlit með sláturdýrum, sláturaf urðum og afurðastöðvum, eftirlit með heilbrigði, hirðingu, aðbúnaði og aðstöðu nautgripa á búum þar sem framleidd er mjólk til sölu og lyfjanotkun vegna búfjár, sbr. ákvæði 4. mgr. 11. gr. lyfjalaga. Einnig ber þeim að hafa með hönd um framkvæmd sóttvarnaaðgerða í sínum umdæmum. Þeir skulu annast eftirlit með velferð búfjár í samræmi við lög um búfjárhald. Þá ber þeim að hafa eftirlit með búfé og öðrum dýrum eftir því sem lög ákveða. Matvælastofnun getur falið héraðsdýralækni og öðrum starfsmönnum [umdæmisstofu]1) stofnunarinnar að annast verkefni í öðrum umdæmum þegar þörf er á og einnig önnur eftirlitsverkefni sem stofnuninni eru falin. [Héraðsdýralæknar starfa á umdæmisstofum Matvæla stofnunar.]1) " Að fengnum tillögum Matvælastofnunar setur ráðherra reglur um gjald sem skal innheimt fyrir eftirlit og skoðan ir héraðsdýralækna og annarra dýralækna og eftirlitsmanna sem starfa við [umdæmisstofur]1) stofnunarinnar.]2) 1) L. 33/2018, 4. gr. 2) L. 143/2009, 37. gr. ! 12. gr. " [Til að tryggja velferð dýra og almenna þjónustu við dýra eigendur skal dýralæknir jafnan vera á bakvakt utan venju legs dagvinnutíma á hverju vaktsvæði, sbr. 3. mgr. Héraðs dýralæknar, hver í sínu umdæmi, skipuleggja bakvaktir í samráði við sjálfstætt starfandi dýralækna sem þar starfa og er heimilt að skipta bakvakt innan sama vaktsvæðis milli Lagasafn (útgáfa 150c) – Íslensk lög 1. október 2020 Nr. 66 1998 3 fleiri dýralækna samtímis. Við skipulagningu bakvakta er ætlast til að tekið sé mið af vegalengdum og umfangi þjón ustu innan viðkomandi vaktsvæða. Komi upp ágreiningur um skiptingu bakvakta innan vaktsvæða skal leita úrskurðar Mat vælastofnunar. " Fyrir bakvaktaþjónustu greiðist samkvæmt samningi Dýralæknafélags Íslands við sjávarútvegs- og landbúnað arráðuneyti og fjármálaráðuneyti. " [Vaktsvæði dýralækna skulu afmörkuð í reglugerð sem ráðherra setur.]1)]2) 1) L. 101/2020, 3. gr. 2) L. 143/2009, 38. gr. ! 13. gr. " [Í því skyni að tryggja velferð dýra og dreifðum byggðum reglubundna dýralæknaþjónustu svo og bráðaþjónustu skal sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra setja reglugerð1) um hvernig tryggja skal starfsaðstöðu og greiðslu staðaruppbótar og/eða ferðakostnaðar dýralæknis sem tekur að sér að veita slíka þjónustu. Við ákvörðun um hvar þörf er á opinberum greiðslum fyrir dýralæknaþjónustu skal ráðherra hafa samráð viðDýralæknafélag Íslands, Bændasamtök Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga og Matvælastofnun.]2) 1) Rg. 405/2020. 2) L. 143/2009, 39. gr. V. kafli. Sérgreinadýralæknar. ! 14. gr. " [Matvælastofnun skal eftir þörfum ráða sérgreinadýra lækna til að sinna verkefnum m.a. á sviði sóttvarna, dýravel ferðar, dýralyfja, dýraheilbrigðis og heilbrigðis dýraafurða. " Sérgreinadýralæknar skulu vinna að bættu heilbrigði bú fjár og sjúkdómavörnum með sértækum aðgerðum, almennri fræðslu, forvarnastarfi og eftirliti með framkvæmd sótt varnaaðgerða. Sérgreinadýralæknar skulu hafa frumkvæði að sýnatökum, rannsóknum og öðrum aðgerðum til að stuðla að heilbrigði og velferð dýra og öryggi búfjárafurða. " Ráðherra er heimilt að setja reglugerð þar sem nánar er kveðið á um störf sérgreinadýralækna.]1) 1) L. 143/2009, 40. gr. ! 15. gr. " [Matvælastofnun]1) skal hafa aðgang að viðunandi að stöðu, búnaði og sérþekkingu til greiningar dýrasjúkdóma vegna sjúkdómsvarna og forvarnastarfa. 1) L. 167/2007, 63. gr. ! 16. gr. " . . . 1) Sérgreinadýralæknar skulu ráðnir samkvæmt ákvæðum laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfs manna ríkisins. 1) L. 76/2005, 6. gr. VI. kafli. Viðurlög, gildistaka o.fl. ! 17. gr. " [Ráðherra]1) setur með reglugerð2) nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara. 1) L. 126/2011, 272. gr. 2) Augl. 10/1964. Rg. 21/1983. Rg. 156/1987. Rg. 557/ 1998. Rg. 60/2000. Rg. 651/2001, sbr. 726/2004, 807/2006 og 938/2014. Rg. 279/ 2002. Rg. 438/2002. Rg. 859/2002. Rg. 935/2004, sbr. 817/2005 og 202/2020. Rg. 160/2006. Rg. 773/2006. Rg. 550/2008. Rg. 353/2011, sbr. 518/2012. Rg. 303/2012. Rg. 916/2012, sbr. 748/2016. Rg. 136/2015, sbr. 291/2017. Rg. 167/2015, sbr. 354/ 2015, 421/2015, 956/2015, 12/2016, 412/2016, 480/2016, 1047/2016, 330/2017, 464/2017, 470/2017, 743/2017, 357/2018, 173/2019, 513/2019 og 788/2019. Rg. 170/2015. Rg. 540/2016. Rg. 977/2017. Rg. 324/2018. Rg. 359/2019. Rg. 520/2019. Rg. 1250/2019. Rg. 200/2020. Rg. 201/2020. Rg. 406/2020. Rg. 503/2020. ! 18. gr. " [Verði Matvælastofnun þess vör að dýralæknir eða annar heilbrigðisstarfsmaður dýra sem hefur leyfi samkvæmt lög um þessum vanræki skyldur sínar og störf, fari út fyrir verk svið sitt eða brjóti alvarlega í bága við fyrirmæli sem honum er skylt að starfa eftir ber Matvælastofnun að áminna hann um að bæta ráð sitt. " Nú kemur ítrekuð áminning ekki að haldi eða sé um óhæfu í leyfisskyldum störfum að ræða og ber þá Matvæla stofnun að afturkalla leyfi sem stofnunin hefur veitt eða að kæra málið til ráðherra. Getur þá ráðherra úrskurðað að við komandi skuli sviptur leyfi að fullu eða um tiltekinn tíma. " Uppfylli leyfisskyldur aðili samkvæmt lögum þessum ekki lengur þær kröfur sem gerðar voru þegar leyfi var veitt, svo sem vegna bilunar á andlegri eða líkamlegri heilsu eða misnotkunar vímuefna, ber Matvælastofnun að greina ráð herra frá málavöxtum. " Ráðherra skal leita álits dýralæknaráðs um mál skv. 2. og 3. mgr. ákvæðis þessa. Svipta má viðkomandi dýralækni eða dýrahjúkrunarfræðing leyfi ef dýralæknaráð leggur það til.]1) 1) L. 55/2013, 49. gr. ! 19. gr. " Brot gegn lögum þessum, reglugerðum og fyrirmælum gefnum samkvæmt þeim varða sektum eða fangelsi ef sak ir eru miklar. . . . 1) 1) L. 88/2008, 233. gr. ! 20. gr. " Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1999. . . . 1) 1) Sbr. þó ákvæði l. 158/1998, 2. gr. Ákvæði til bráðabirgða. ! I. " Meðan ekki hafa tekist samningar milli Dýralæknafélags Íslands og [þess ráðuneytis er fer með málefni starfsmanna ríkisins]1) um endurmenntun gildir eftirfarandi ákvæði: Fyr ir hver tíu ár, sem héraðsdýralæknir hefur gegnt þjónustu, á hann rétt á að hljóta sex mánaða frí frá störfum með full um launum til framhaldsnáms í samráði við [Matvælastofn un].2) Greiðir ríkissjóður fargjaldskostnað til þess lands þar sem hann hyggst dveljast og heim til Íslands að dvöl lokinni. 1) L. 126/2011, 272. gr. 2) L. 167/2007, 63. gr. ! II. " Sé starf lagt niður á dýralæknir sem skipaður hefur verið eða ráðinn í þjónustu ríkisins fyrir gildistöku laga þessara rétt til biðlauna í samræmi við ákvæði í 34. gr. laga nr. 70/1996. ! [III. " Störf héraðsdýralækna hjá Matvælastofnun eru lögð niður við gildistöku þessara laga. Viðkomandi starfsmönnum skulu boðin störf hjá Matvælastofnun. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/ 1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, gildir ekki um störf sem ráðið er í samkvæmt þessu ákvæði. " Ráðherra er heimilt að fela héraðsdýralækni að sinna tímabundið almennri þjónustu við dýraeigendur á tilteknu svæði ef heilbrigði eða velferð dýra er stefnt í hættu enda fáist ekki dýralæknar til að sinna slíkri þjónustu við dýraeig endur á umræddu svæði. Heimild ráðherra samkvæmt þessari málsgrein fellur úr gildi 1. janúar 2015. " Ráðherra skal setja reglugerð skv. 13. gr. eigi síðar en 1. júlí 2010.]1) 1) L. 143/2009, 41. gr.

Act No. 66 on veterinarians and animal health services · Nelum