تخطَّ إلى المحتوى
Nelum
قوانين آيسلندا

Act No. 57 on the exploration and utilization of ground resources

صدر في 1998-06-10 · النص بتاريخ 2026-10-01

القانون العام والإرشادات الرسمية منشورة بوصفها أبحاثاً. ليست مشورة قانونية أو ضريبية أو مالية.

البحث نفسه مكتوب بالإنجليزية. العناوين والوسوم مترجمة؛ أما النتائج والاقتباسات فغير مترجمة.

عن هذا القانون

العنوان الأصلي
Lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu.
اللغة
Icelandic; English
النوع
قانون
المنظمة
European Union
الدولة
آيسلندا
الموضوعات
Energy, Mineral resources, Water
الكلمات المفتاحية
groundwater, water supply, hydropower generation, irrigation, water abstraction, renewable energy, energy conservation/energy production, access right, authorization/permit, concession, exploration, minerals, legal proceedings/administrative proceedings, liability/compensation, mining, natural gas, procedural matters, monitoring
الفئات
energy

أين تقرؤه

    لا يوجد رابط مصدر مسجل لهذا القانون.

النص

نص القانون نفسه، مادةً مادة، كما هو محفوظ. لكل مادة رابطها.

  1. 1. Að samþykktir leyfishafa, ef um félag er að ræða, séu viðurkenndar af ráðherra.

  2. 2. Tímalengd leyfis, sérákvæði um hvenær starfsemi skuli hefjast í síðasta lagi og hvenær henni skuli vera lokið.

  3. 3. Staðarmörk svæðis.

  4. 4. Til hvaða auðlinda samkvæmt lögum þessum leyfið tekur, ákvæði um magn og nýtingarhraða.

  5. 5. Að [Umhverfis- og orkustofnun] 1) samþykki frumdrætti að fyrirhuguðum mannvirkjum.

  6. 6. Upplýsinga- og tilkynningarskyldu leyfishafa, þar með talda skyldu til afhendingar á sýnum og gögnum og hvernig hún skuli innt af hendi.

  7. 7. Öryggis- og umhverfisverndarráðstafanir.

  8. 8. Kaup vátrygginga vegna hugsanlegrar skaðabótaábyrgðar leyfishafa.

  9. 9. Eftirlit og greiðslu kostnaðar af eftirliti.

  10. 10. Greiðslu leyfisgjalds til að mæta kostnaði við undirbúning og útgáfu leyfis.

  11. 11. Hvernig skuli ráðstafa vinnslumannvirkjum og vinnslutækjum að leyfistíma loknum.

  12. 12. Frágang á starfsstöðvum og landi sem breytt hefur verið við rannsókn eða nýtingu. 1) L. 110/2024, 8. gr. https://www.althingi.is/lagas/nuna/1998057.html Page 7 of 12 57/1998: Lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu | Lög | Alþingi 27/08/2026, 16:56 19. gr. [Umhverfis- og orkustofnun] 1) er heimilt að auglýsa í einu lagi eftir umsóknum um rannsóknarleyfi skv. 4. gr. á tilteknu landsvæði. Á sama hátt er [Umhverfis- og orkustofnun] 1) heimilt að auglýsa eftir umsóknum um nýtingarleyfi skv. 6. gr. 1) L. 110/2024, 8. gr. 20. gr. [Umhverfis- og orkustofnun] 1) getur afturkallað leyfi samkvæmt lögum þessum ef skilyrðum þeirra er ekki fullnægt. Nú hlítir leyfishafi ekki skilyrðum þeim sem sett eru í leyfinu eða samningum sem tengjast leyfinu og skal þá ráðherra veita honum skriflega aðvörun og frest til úrbóta. Sinni leyfishafi ekki slíkri aðvörun skal afturkalla leyfið. Heimilt er að afturkalla leyfi ef bú leyfishafa er tekið til gjaldþrotaskipta eða hann leitar nauðasamninga. 1) L. 110/2024, 8. gr. [20. gr. a. Fyrir leyfi sem [Umhverfis- og orkustofnun] 1) veitir á grundvelli 4., 6. og 34. gr. og fyrir eftirlit sem stofnuninni er falið skv. 21. gr. er heimilt að innheimta gjald. Gjaldið má ekki vera hærra en nemur kostnaði við undirbúning, svo sem vegna nauðsynlegrar aðkeyptrar þjónustu, afgreiðslu leyfis og eftirlits með leyfishöfum. Gjald skv. 1. mgr. skal vera í samræmi við gjaldskrá sem ráðherra staðfestir og birt skal í B-deild Stjórnartíðinda. Upphæð gjalda samkvæmt gjaldskrá skal taka mið af kostnaði við þjónustu og framkvæmd einstakra verkefna og skal byggð á rekstraráætlun þar sem þau atriði eru rökstudd sem ákvörðun gjalds byggist á. Gjöld samkvæmt þessari grein eru aðfararhæf án undangengins dóms eða sáttar.] 2) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 79/2024, 3. gr. IX. kafli. Vernd og eftirlit með vinnslusvæðum, upplýsingagjöf, meðferð upplýsinga o.fl. 21. gr. [Umhverfis- og orkustofnun] 1) annast eftirlit með leitar- og vinnslusvæðum jarðefna og jarðhitasvæðum, svo og vinnslusvæðum grunnvatns þar sem leyfi skv. 4. eða 6. gr. hefur verið veitt. [Umhverfis- og orkustofnun] 1) gefur [ráðherra] 2) skýrslu um framkvæmd leitar, rannsókna og vinnslu samkvæmt nánari fyrirmælum sem ráðherra setur með reglugerð. Um vernd og eftirlit með leitar- og vinnslusvæðum gilda einnig lög um náttúruvernd. [Til að sinna hlutverki skv. 1. mgr. er Umhverfis- og orkustofnun heimilt að krefjast gagna um nýtingu á auðlindum samkvæmt lögum þessum. Skylt er þeim sem stunda atvinnurekstur er varðar framangreint að afhenda stofnuninni nauðsynleg gögn innan frests sem hún tilgreinir. Í reglugerð skal kveða nánar á um tegund gagna, gæði þeirra og skilafrest. Sé gögnum ekki skilað innan tilgreinds frests er Umhverfis- og orkustofnun heimilt að leggja dagsektir á viðkomandi fyrirtæki eða stofnun. Dagsektir geta numið 10–100 þús. kr. á dag. Ákvörðun um dagsektir skal tilkynnt bréflega á sannanlegan hátt þeim sem hún beinist að. Ákvarðanir um að leggja á dagsektir eru aðfararhæfar. Sé sekt samkvæmt þessari grein ekki greidd innan mánaðar frá ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar skal greiða dráttarvexti af fjárhæð sektarinnar. Um ákvörðun og https://www.althingi.is/lagas/nuna/1998057.html Page 8 of 12 57/1998: Lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu | Lög | Alþingi 27/08/2026, 16:56 útreikning dráttarvaxta fer eftir lögum um vexti og verðtryggingu. Óinnheimtar dagsektir, sem lagðar eru á fram að efndadegi, falla ekki niður þótt aðili efni síðar viðkomandi kröfu nema Umhverfis- og orkustofnun ákveði það sérstaklega. Innheimtar dagsektir skulu renna í ríkissjóð að frádregnum kostnaði við innheimtuna.] 1) 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 126/2011, 268. gr. 22. gr. Handhafi rannsóknar- eða nýtingarleyfis skal eigi sjaldnar en árlega og við lok leyfistíma senda [Umhverfis- og orkustofnun] 1) skýrslu þar sem fram koma upplýsingar um niðurstöður leitar og rannsókna, upplýsingar um eðli og umfang auðlinda, heildarmagn og mat á verðmæti auðlindar sem nýtt hefur verið og fleiri atriði samkvæmt nánari ákvæðum í viðkomandi leyfi. Þá skal leyfishafi senda sýni af jarðfræðilegum efnum óski [Umhverfis- og orkustofnun] 1) þess. Við jarðboranir, sem framkvæmdar eru samkvæmt lögum þessum, þar með taldar jarðboranir landeiganda, skal færa dagbók er gefi upplýsingar um staðsetningu holunnar, jarðlög, gerð þeirra og dýpi, hvenær vatn eða gufa kemur í holuna, hitastig og önnur atriði sem nánar skal ákveða í reglum sem ráðherra setur að fengnum tillögum [Umhverfis- og orkustofnunar]. 1) Skylt er að láta [Umhverfis- og orkustofnun] 1) í té afrit af dagbókinni eigi síðar en einum mánuði eftir að borun er lokið. [Umhverfis- og orkustofnun] 1) getur krafist þess að berg- og jarðvegssýnishorn séu varðveitt. Ef [Umhverfis- og orkustofnun] 1) mælir svo fyrir er leyfishafa jarðborunar skylt að tilkynna henni þegar í stað er heitt vatn eða gufa kemur upp eða eykst í borholu. Ef verðmæt jarðefni finnast við jarðborun skal þegar í stað tilkynna það til [Umhverfis- og orkustofnunar]. 1) 1) L. 110/2024, 8. gr. 23. gr. Upplýsingar, sem veittar eru [Umhverfis- og orkustofnun] 1) eða öðrum opinberum aðilum samkvæmt lögum þessum, svo og niðurstöður rannsókna á innsendum sýnum, skulu bundnar trúnaði á gildistíma leyfis og framlengingar þess og forgangsréttartíma eins og hann er ákveðinn í [3. mgr. 5. gr.], 2) svo og á gildistíma nýtingarleyfis sem veitt er rannsóknarleyfishafa í kjölfar rannsóknarleyfis, nema annað sé sérstaklega ákveðið í leyfinu. Upplýsingar, sem leyfishafi veitir [Umhverfis- og orkustofnun] 1) samkvæmt lögum þessum, skulu vera í vörslu stofnunarinnar. Nú er trúnaðarskylda skv. 1. mgr. fallin niður, og er [Umhverfis- og orkustofnun] 1) þá heimilt að láta umræddar upplýsingar í té eða nýta þær í þágu frekari leyfisveitingar. 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 5/2006, 4. gr. 24. gr. Óheimilt er að spilla jarðhitasvæðum eða grunnvatni hvort sem það er með ofaníburði, framræslu eða með öðrum hætti. Ekki má breyta farvegi þess vatns er frá jarðhitasvæði rennur, nema talið sé nauðsynlegt til varnar landi eða landsnytjum eða til þeirrar hagnýtingar jarðhita sem heimil er að lögum. Verði ágreiningur um þetta atriði skal afla mats dómkvaddra manna um það. Mannvirki öll til hagnýtingar á auðlindum skulu þannig úr garði gerð að af þeim stafi hvorki hætta né veruleg óþægindi fyrir umferð eða spjöll á eign annars manns, nema honum sé skylt að hlíta því samkvæmt lögum eða samningum. Þegar notkun borhola er hætt skal leyfishafi eða eigandi þeirra loka þeim og merkja. https://www.althingi.is/lagas/nuna/1998057.html Page 9 of 12 57/1998: Lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu | Lög | Alþingi 27/08/2026, 16:56 25. gr. Aðilar, sem vinna jarðhita eða grunnvatn úr jörðu, skulu haga vinnslu sinni með þeim hætti að nýting verði sem best þegar til lengri tíma er litið. Í því sambandi skal m.a. ekki tekinn meiri jarðvarmi eða vatn en þörf er. Borunum skal hagað þannig að þær takmarki sem minnst frekari nýtingu síðar. 26. gr. Landeiganda eða umráðamanni lands er skylt að veita rannsóknarleyfishöfum samkvæmt lögum þessum óhindraðan aðgang að eignarlandi því sem í hlut á. Þá er landeiganda og umráðamanni lands skylt að veita nýtingarleyfishöfum aðgang að því landi sem nýtingarleyfið tekur til, en þó ekki fyrr en leyfishafi hefur náð samkomulagi við landeiganda um endurgjald fyrir auðlindir eða eignarnám farið fram og umráðataka samkvæmt því. Ber landeiganda eða umráðamanni skv. 1. mgr. að hlíta hvers konar afnotum af landi, takmörkun á umráðarétti og óþægindum sem nauðsynleg eru vegna rannsóknar eða nýtingar á auðlind í samræmi við viðkomandi leyfi. Við nýtingu eða rannsóknir á auðlindum í jörðu skulu landeigendur og leyfishafar samkvæmt lögum þessum gæta þess að framkvæmdir valdi hvorki mönnum, munum né búpeningi hættu eða skaða. Jafnframt skulu landeigendur og leyfishafar gæta þess að valda ekki mengun og spjöllum á lífríki. Sama gildir um frágang nýtingarsvæðis ef nýting leggst af. 27. gr. Komi upp ágreiningur milli rétthafa um nýtingu auðlindar, sem ekki fæst jafnaður, t.d. ef landamerki tveggja eða fleiri rétthafa liggja þannig að nýting auðlindar verður ekki aðskilin, skal afla mats dómkvaddra matsmanna um hvernig hagkvæmast er að hagnýta auðlindina og hver sé hlutfallslegur réttur hvers og eins til nýtingar. X. kafli. Eignarnáms- og bótaákvæði. 28. gr. Nú veitir [Umhverfis- og orkustofnun] 1) öðrum en landeiganda leyfi til að leita að og rannsaka auðlind innan eignarlands, og getur landeigandi þá krafist bóta vegna tjóns sem hann verður sannanlega fyrir af þeim sökum vegna röskunar eða skemmda á landi og mannvirkjum. Náist ekki samkomulag um bætur skal ákveða þær með eignarnámsmati. 1) L. 110/2024, 8. gr. 29. gr. Nú hefur [Umhverfis- og orkustofnun] 1) veitt aðila nýtingarleyfi vegna auðlinda í eignarlandi, en leyfishafi nær ekki samkomulagi við landeiganda um þau atriði sem nýtingarleyfið tekur til, þar með talið um endurgjald fyrir auðlind, og getur [ráðherra] 2) þá tekið þær auðlindir eignarnámi ásamt nauðsynlegu landi, mannvirkjum, aðstöðu til vinnslu auðlindanna og öðrum réttindum landeiganda að því leyti sem nauðsyn ber til svo að leyfið geti komið að notum. Ráðherra afhendir leyfishafa þau verðmæti sem tekin eru eignarnámi. Leyfishafi ber allan kostnað af eignarnáminu. Ráðherra er heimilt að ákveða að ríkið taki eignarnámi auðlindir í jörðu sem fylgja eignarlandi, https://www.althingi.is/lagas/nuna/1998057.html Page 10 of 12 57/1998: Lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu | Lög | Alþingi 27/08/2026, 16:56 ásamt nauðsynlegu landi og mannvirkjum, ef þess reynist þörf til að koma við nýtingu þeirra eða koma í veg fyrir að nýting þeirra spilli fyrir hagnýtingu sömu auðlindar utan landareignarinnar. Ráðherra getur heimilað sveitarfélagi að taka eignarnámi auðlindir sem fylgja eignarlandi, ásamt nauðsynlegu landi og mannvirkjum, ef brýna nauðsyn ber til vegna almannahagsmuna í sveitarfélaginu. Ef eignarnám skv. 1.–3. mgr. á hluta af eignarlandi hefur í för með sér verulega rýrnun þess að öðru leyti á landeigandi rétt á að eignarnámið verði látið ná til þess í heild sinni. 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 126/2011, 268. gr. 30. gr. Þegar ákvörðun um eignarnám skv. 29. gr. liggur fyrir skal landeigandi segja til um það innan 45 daga hvort hann óskar eftir að endurgjald fyrir auðlindirnar verði metið sem bætur sem greiðast í einu lagi eða sem árleg greiðsla meðan vinnsla auðlindar samkvæmt nýtingarleyfi stendur yfir. Meta skal sérstaklega bætur vegna annars en endurgjalds fyrir auðlindina. Óski landeigandi eftir því að fá bætur greiddar sem árlega greiðslu skal sú greiðsla ákveðin með eignarnámsmati og vera ákveðinn hundraðshluti eða önnur fast ákveðin eining miðað við verðmæti á tilteknu vinnslustigi. Heimilt er að tengja endurgjald að nokkru eða öllu leyti við afkomu viðkomandi vinnslu. Ákveða skal í matinu gjalddaga greiðslunnar, hvort og þá hvernig hún skuli breytast eða endurskoðuð. Landeigandi getur krafist þess að sett sé trygging fyrir hinni árlegu greiðslu og skal úrskurða um þá kröfu í matinu og form tryggingar. Framkvæmd eignarnáms á grundvelli þessara laga fer eftir almennum reglum. Við ákvörðun eignarnámsbóta skal taka sérstakt tillit til óvissu um auðlindina og kostnaðar af leit og vinnslu. XI. kafli. Ýmis ákvæði. 31. gr. [Ráðherra] 1) hefur heimild til að semja við nýtingarleyfishafa um endurgjald fyrir auðlindir í eignarlöndum ríkisins að höfðu samráði við þann aðila sem fer með forræði eignarinnar, [sbr. þó ákvæði 5. mgr. 3. gr. a]. 2) Til nýtingar á auðlindum í þjóðlendum þarf auk leyfis samkvæmt þessum lögum leyfi samkvæmt ákvæðum [laga um þjóðlendur]. 3) Um samninga um endurgjald fyrir auðlindir í þjóðlendum og leigu fyrir nauðsynlegt land og önnur réttindi sem leyfishafi þarf til að hagnýta auðlind í þjóðlendum sem leyfið tekur til fer eftir reglum [laga um þjóðlendur]. 3) 1) L. 126/2011, 268. gr. 2)L. 58/2008, 8. gr. 3)L. 87/2024, 16. gr. 32. gr. Leyfi samkvæmt lögum þessum eru ekki framseljanleg né má setja þau til tryggingar fjárskuldbindingum nema með leyfi [Umhverfis- og orkustofnunar]. 1) 1) L. 110/2024, 8. gr. 33. gr. [Ráðherra] 1) er heimilt að setja með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara. [Ákvarðanir [Umhverfis- og orkustofnunar] 2) er lúta að veitingu, endurskoðun og afturköllun rannsóknar- eða nýtingarleyfa samkvæmt lögum þessum sæta kæru til úrskurðarnefndar https://www.althingi.is/lagas/nuna/1998057.html Page 11 of 12 57/1998: Lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu | Lög | Alþingi 27/08/2026, 16:56 umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæruna fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefndina. Stjórnvaldsákvarðanir [Umhverfis- og orkustofnunar] 2) sem ekki má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sæta kæru til ráðherra. Kæra til ráðherra skal vera skrifleg. Um meðferð kæru til ráðherra fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.] 3) 1) L. 126/2011, 268. gr. 2)L. 110/2024, 8. gr. 3)L. 131/2011, 4. gr. 34. gr. Lög þessi taka eftir því sem við á til rannsókna og nýtingar á örverum sem vinna má á jarðhitasvæðum. Rannsóknir og nýting örvera á jarðhitasvæðum er óheimil án leyfis [Umhverfis- og orkustofnunar] 1) samkvæmt lögum þessum. Leyfi samkvæmt þessari grein skal veitt að höfðu samráði við [þann ráðherra er fer með málefni náttúruverndar]. 2) Náttúrufræðistofnun … 3) fer með eftirlit með rannsókn og nýtingu samkvæmt þessari grein. [Ráðherra] 2) setur nánari reglur 4) um framkvæmd þessarar greinar í samráði við [þann ráðherra er fer með málefni náttúruverndar]. 2) Með örverum er átt við örverufræðilega einingu, myndaða af frumum eður ei, sem fær er um eftirmyndun eða yfirfærslu erfðaefnis. 1) L. 110/2024, 8. gr. 2)L. 126/2011, 268. gr. 3)L. 54/2024, 12. gr. 4)Rg. 234/1999. 35. gr. Brot gegn lögum þessum varða sektum, nema þyngri refsingu varði samkvæmt öðrum lögum. Dæma má jafnt lögaðila sem einstakling til greiðslu sekta vegna brota á lögum þessum. Lögaðila má ákvarða sekt án tillits til þess hvort sök verði sönnuð á starfsmann lögaðilans. 36. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. … Leyfi, sem veitt eru samkvæmt lögum nr. 24/1973 og eru í gildi við gildistöku laga þessara, halda gildi sínu. Samningar um gjaldtöku vegna nýtingar á auðlindum, sem gerðir eru fyrir gildistöku laga þessara, halda gildi sínu. Endurskoða skal ákvæði 34. gr. laganna fyrir 1. janúar 2001. https://www.althingi.is/lagas/nuna/1998057.html Page 12 of 12

Act No. 57 on the exploration and utilization of ground resources · Nelum